Vísbendingar um að brottflutningur erlendra ríkisborgara muni aukast

Vinnu­mála­stofnun gaf út met­fjölda vott­orða í júlí sem gefa ein­stak­lingum kost á atvinnu­leit innan EES án þess að missa bóta­rétt hér á landi. Fjöldi útgef­inna vott­orða gæti gefið til kynna auk­inn brott­flutn­ing erlendra rík­is­borg­ara að mati Seðla­bank­ans.

Vinnu­mála­stofnun gaf út 350 vott­orð sem gefa kost á atvinnu­leit í öðru EES-ríki í júlí en slík vott­orð koma í veg fyrir að ein­stak­lingur missi rétt til atvinnu­leys­is­bóta hér á landi. Það er mesti fjöldi slíkra vott­orða sem gef­inn hefur verið út í einum mán­uði frá byrjun árs 1994 þegar þau voru fyrst gefin út. Þetta má sjá í nýj­ustu vinnu­mark­aðs­skýrslu Vinnu­mála­stofn­unar fyrir júlí síð­ast­lið­inn sem kom út fyrr í mán­uð­inum.

Meðal skil­yrða fyrir útgáfu slíks vott­orðs er að umsækj­andi sé með rík­is­borg­ara­rétt í EES-ríki og að við­kom­andi hafi rétt til atvinnu­leys­is­bóta á Íslandi við brott­för. Fram kemur í Pen­inga­málum Seðla­banka Íslands sem komu út í gær að fjöldi útgef­inna vott­orða í júlí­mán­uði gæti bent til þess að brott­flutn­ingur erlendra rík­is­borg­ara muni aukast á næst­unni.

Flest vott­orð voru gefin út til ein­stak­linga sem fóru í atvinnu­leit til Póllands eða 223 tals­ins. 30 ein­stak­lingar fóru í atvinnu­leit til Litháen og 15 til Lett­lands. Alls voru 82 vott­orð gefin út til við­bótar fyrir atvinnu­leit í 20 öðrum ríkjum.

Flutningsjöfnuður neikvæður í fyrsta sinn síðan 2012

Líkt og Kjarninn hefur fjallað um var flutn­ings­jöfn­uður erlendra rík­is­borg­ara nei­kvæður á síð­asta árs­fjórð­ungi og var það í fyrsta sinn síðan á öðrum árs­fjórð­ungi árs­ins 2012 sem það ger­ist. Samkvæmt tölum Hag­stof­unnar fluttu um 1.100 erlendir rík­is­borg­arar til lands­ins á síð­asta ári en um 1.350 fluttu burt af land­inu.

[links]

Erlendir rík­is­borg­arar hafa leikið lyk­il­hlut­verk í hag­vaxt­ar­skeið­inu sem hófst árið 2011 en ómögu­legt hefði verið að manna öll þau störf sem sköp­uð­ust frá þeim tíma ef ekki hefði verið fyrir erlent vinnu­afl. Til að mynda störf­uðu um 10.700 erlendir rík­is­borg­arar í ferða­þjón­ustu á síð­asta ári eða um fjórð­ungur erlends vinnu­afls sam­kvæmt tölum Hag­stof­unnar.

Nú er svo komið að atvinnu­leysi meðal erlendra rík­is­borg­ara er komið í 19,2 pró­sent sam­kvæmt vinnu­mark­aðs­skýrslu Vinnu­mála­stofn­unar. Ef tekið er til­lit til hluta­bóta­leið­ar­innar mæld­ist atvinnu­leysi þessa hóps tæp­lega 20,5 pró­sent í júlí. Til sam­an­burðar var almennt atvinnu­leysi á íslenskum vinnu­mark­aði alls 7,9 pró­sent í mán­uð­inum og 8,8 pró­sent með til­liti til hluta­bóta­leið­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár