Atvinnuleysi útlendinga á Íslandi komið yfir 20 prósent

Heild­ar­at­vinnu­leysi á Íslandi mæld­ist 8,8 pró­sent um síð­ustu mán­aða­mót. Atvinnu­leysi er miklu hærra á meðal erlendra rík­is­borg­ara en íslenskra. Rúmlega helm­ingur allra atvinnu­lausra útlend­inga eru frá Póllandi.

Fjöldi erlenda ríkisborgara starfar við mannvirkjagerð á Íslandi.
Fjöldi erlenda rík­is­borg­ara starfar við mann­virkja­gerð á Íslandi. Mynd: Bára Huld Beck

Vinnu­mála­stofnun spáir því að almennt atvinnu­leysi fari í 8,6 pró­sent í ágúst­mán­uði, en það var 7,9 pró­sent í júlí. Að við­bættu mældu atvinnu­leysi vegna hluta­bóta­leið­ar­innar svoköll­uðu, sem felur í sér skert starfs­hlut­fall, mæld­ist atvinnu­leysið 8,8 pró­sent um síð­ustu mán­aða­mót og sam­kvæmt spá Vinnu­mála­stofn­unar verður það 9,0 pró­sent í lok yfir­stand­andi mán­aðar.

Alls voru 17.104 ein­stak­lingar atvinnu­lausir í almenna bóta­kerf­inu um síð­ustu mán­aða­mót og 3.811 á hluta­bóta­leið­inni. Samtals voru því 21.435 manns án atvinnu að öllu leyti eða hluta í lok júlí. Af þeim eru 7.830 erlendir rík­is­borg­arar, en heild­ar­at­vinnu­leysi á meðal þeirra er yfir 20 pró­sent.

Þetta kemur fram í nýrri vinnu­mark­aðs­skýrslu Vinnu­mála­stofn­unar sem birt var í dag og sýnir stöðu mála á vinnu­mark­aði um síð­ustu mán­aða­mót.

[adspot]Flestir þeirra sem eru að missa vinn­una störf­uðu áður í ferða­þjón­ustu­tengdum geirum. Atvinnu­leysið er hlut­falls­lega lang­mest á Suð­ur­nesj­unum, sem er afar háð ferða­þjón­ustu um atvinnu þar sem alþjóða­flug­völlur lands­ins er stað­settur þar. Alls mælist 16,5 pró­sent atvinnu­leysi á svæð­inu. Næst mest atvinnu­leysi mælist á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, eða 9,3 pró­sent. Í skýrsl­unni segir að um helm­ingur atvinnu­lausra á Suð­ur­nesjum í almenna bóta­kerf­inu að komi úr starfi tengt flug­sam­göngum og ferða­þjón­ustu sam­an­borið við um 35 pró­sent atvinnu­lausra á land­inu öllu.

Atvinnu­leysi er nú orðið hærra meðal kvenna en karla alls staðar á land­inu nema á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem það er ívið hærra meðal karla.

Fimmti hver útlendingur á vinnumarkaði án atvinnu

Erlendir rík­is­borg­arar léku lyk­il­hlut­verk í hag­vaxt­ar­skeið­inu sem hófst árið 2011 og ómögu­legt hefði veið að manna öll þau störf sem sköp­uð­ust á tíma­bil­inu ef ekki hefði verið fyrir erlent vinnu­afl. Frá miðju ári 2012 og fram til loka júní­mán­aðar fjölg­aði þeim úr 20.570 í 50.701 hér­lendis, eða um yfir 30 þús­und. Af þeim eru um 75 pró­sent á vinnu­mark­aði.

Rúmlega fjórð­ungur erlends vinnu­afls hér­lendis a síð­asta ári starf­aði í ferða­þjón­ustu. Þessi hópur varð því sá fyrsti til missa vinn­una þegar mik­ill sam­dráttur varð í ferða­þjón­ustu sam­hliða kór­ónu­veiru­far­ald­inum.

Í skýrslu Vinnu­mála­stofn­unar kemur fram að heild­ar­at­vinnu­leysi erlendra rík­is­borg­ara hafi verið nálægt 20,5 pró­sent í júlí. Það þýðir að fimmti hver erlendur rík­is­borg­ari á íslenskum vinnu­mark­aði var án atvinnu um síð­ustu mán­aða­mót, eða alls 6.909 manns. Auk þess voru 921 erlendir rík­is­borg­arar á hluta­bóta­leið­inni. Í fyrra á sama tíma var 2.571 erlendur rík­is­borg­ari án atvinnu og hefur þeim sem eru almennt atvinnu­lausir því fjölgað um 169 pró­sent fá einu ári.

Flestir erlendir rík­is­borg­arar á atvinnu­leys­is­skrá komu frá Póllandi eða 3.520, sem er um 51 pró­sent allra erlendra rík­is­borg­ara á atvinnu­leys­is­skrá. Pól­verjar eru lang­fjöl­menn­asti hópur erlendra rík­is­borg­ara sem búsettur er á Íslandi, en alls voru þeir 20.904 í lok júlí. Það þýðir að 41 pró­sent erlendra rík­is­borg­ara hér á landi eru pólskir rík­is­borg­arar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár