Átaksstörf stjórnvalda ganga ekki út

Eft­ir­spurn náms­manna eftir sum­ar­störfum hefur verið tölu­vert minni en áætlað var. Sveit­ar­fé­lög höfðu heim­ild til að ráða í 1.700 störf en ekki hefur tek­ist að ljúka ráðn­ingu nema í tæp­lega 1.450.

Ásmundur Einar Daðason
Ásmundur Einar Daðason Mynd: Bára Huld Beck

Til þess að bregð­ast við því ástandi sem skap­að­ist á vinnu­mark­aði vegna Covid-19, lagði félags- og barna­mála­ráð­herra til að veitt yrði 2,2 millj­örðum króna í átaks­verk­efni til að fjölga tíma­bundnum störfum fyrir náms­menn í sumar um 3.400 störf. Í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu kemur fram að eft­ir­spurn náms­manna eftir stör­f­unum hefur verið tölu­vert minni en vís­bend­ingar voru um að yrði.

Alls höfðu sveit­ar­fé­lög lands­ins heim­ild til að ráða í 1.700 störf í sumar, en ekki hefur tek­ist að ljúka ráðn­ingu nema í tæp­lega 1.450 af þeim þar sem margir umsækj­enda höfðu þegar fengið vinnu ann­ars staðar. Þá er umsókn­ar­fresti lokið hjá stofn­unum rík­is­ins og loka­töl­urnar þar voru að 1.510 náms­menn sóttu um þau 1.500 störf sem í boði voru og sótti hver náms­maður um tæp­lega sjö störf að með­al­tali. Þrátt fyrir að ekki sé búið að úthluta þessum störfum er ljóst að ekki mun takast að fylla í þau vegna þess að margir náms­menn eru þegar komnir með vinnu.

Í til­kynn­ing­unni segir að sveit­ar­fé­lögum og opin­berum stofn­unum á óvart hversu margir náms­menn voru búnir að ráða sig í vinnu þrátt fyrir að hafa sótt um störf sem búin voru til í átak­inu. Því er ljóst að staða náms­manna á vinnu­mark­aði er umtals­vert betri en for­ystu­fólk náms­manna hefur talið hingað til, en alls er um 500 störfum, sem búin voru til í tengslum við átakið, óráð­stafað og líkur á því að þeim fjölgi nokkuð þegar vinnu við umsóknir um störf hjá opin­berum stofn­unum lýkur.

Haft er eftir Ásmundi Einari Daðasyni, félags-og barna­mála­ráð­herra að nú þegar myndin væri að skýr­ast sé „það mikið gleði­efni að tek­ist hefur að skapa það mörg störf að þau ganga ekki út. Við fórum af stað með 3.400 ný sum­ar­störf fyrir náms­menn í fyrstu lotu, og vorum til­búin að bæta enn frekar í ef aðstæður köll­uðu á það. Við sjáum hins vegar á þessum tölum að eft­ir­spurn náms­manna í þessi störf er minni en gert var ráð fyrir, og því ekki þörf á að skapa fleiri tíma­bundin störf í sumar”.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár