Kallar eftir hækkun grunnatvinnuleysisbóta

„Það bara er skylda stjórn­mála­manna við þessar aðstæður að koma í veg fyrir að hér skap­ist neyð og fátækt á þús­undum heim­ila,“ sagði Oddný G. Harð­ar­dóttir í Viku­lok­unum í dag. Atvinnu­á­standið á Suð­ur­nesjum er grafal­var­legt að hennar mati.

Oddný G. Harðardóttir er þingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi.
Oddný G. Harð­ar­dóttir er þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar í Suð­ur­kjör­dæmi. Mynd: Aðsend

Hækkun grunnatvinnu­leys­is­bóta er nauð­syn­leg til þess að ekki skap­ist neyð á þús­undum heim­ila vegna atvinnu­leysis að mati Oddnýjar G. Harð­ar­dóttur, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar. Þetta sagði Oddný í Viku­lok­unum á Rás 1 fyrr í dag.

Hún sagði að margar af þeim aðgerðum sem rík­is­stjórnin hefði gripið til til að mæta efna­hags­legum áhrifum kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins væru góðar og gildar en hún hefði viljað sjá grunnatvinnu­leys­is­bætur hækka í nýju frum­varpi félags- og barna­mála­ráð­herra um vinnu­mark­aðsúr­ræði. „Það bara er skylda stjórn­mála­manna við þessar aðstæður að koma í veg fyrir að hér skap­ist neyð og fátækt á þús­undum heim­ila,“ sagði Oddný meðal ann­ars í þætt­inum.

„Nú eru tólf þús­und manns á Íslandi sem þurfa að fram­fleyta sér á grunnatvinnu­leys­is­bótum, sem eru rétt um 290 þús­und krónur fyrir skatt. Það sér hver maður að þetta gengur ekki. Þarna þarf að bæta í og við munum taka okkur tíma í þing­inu til að ræða þau mál, fara yfir stöðu þess fólks og hvað eig­in­lega það á að þýða að halda þeim í neyð þegar lyft er undir með öðrum,“ sagði Oddný í Viku­lok­unum. Nú þegar væri búið að fleyta fyr­ir­tækjum yfir erf­iðan hjalla og það sama þyrfti að gera fyrir heim­ilin að mati hennar.

Atvinnuástandið „grafalvarlegt“ á Suðurnesjum

Oddný tók stöðu Suð­ur­nesja sér­stak­lega fyrir í þætt­inum. „Hjartað í mér slær hratt þegar ég tala um þessi mál því á mínu heima­svæði er grafal­var­legt ástand. Þar er ein af hverjum fimm konum atvinnu­laus og atvinnu­leysi í heild í júli var 16,5 pró­sent á Suð­ur­nesjum,“ sagði hún.

Í síð­ustu mán­að­ar­skýrslu Vinnu­mála­stofn­unar um vinnu­mark­að­inn á Íslandi kemur fram að í síð­asta mán­uði hafi sam­an­lagt atvinnu­leysi, það er almennt atvinnu­leysi og atvinnu­leysi vegna minnk­aðs starfs­hlut­falls, lækkað milli mán­aða alls staðar á land­inu nema á Suð­ur­nesjum en um mán­aða­mótin síð­ustu var sam­an­lagt atvinnu­leysi þar 16,5 pró­sent líkt og kom fram í máli Oddnýjar. Á milli júní og júlí hækk­aði almennt atvinnu­leysi á svæð­inu úr 13,2 pró­sentum upp í 15,2 pró­sent, atvinnu­leysi vegna minnk­aðs starfs­hlut­falls lækk­aði hins vegar úr 2,6 pró­sentum í 1,2 pró­sent. Í skýrsl­unni kemur einnig fram að í öllum mán­uðum árs­ins hefur atvinnu­leysi mælst mest á Suð­ur­nesjum.

Þar hefur atvinnu­leysi vaxið með hverjum mán­uð­inum í ár og nú síð­ast í gær sendi Isavia frá sér til­kynn­ingu þess efnis að félagið hefði sagt upp 133 starfs­mönnum. Í til­kynn­ing­unni kom fram að fjöldi ferða­manna hafi vaxið stöðugt í sumar en algjör við­snún­ingur hefði orðið í kjöl­far ákvörð­unar um tvö­falda sótt­kví. For­sendur fyrir vet­ur­inn væru því brostnar og því útlit fyrir að verk­efni verði af skornum skammti fyrir hóp starfs­manna félags­ins á næstu mán­uðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár