Svartsýni þjóðarinnar jókst í júlí

Vænt­inga­vísi­tala Gallup hefur mælt við­horf þjóð­ar­innar til stöðu og fram­tíð­ar­horfa í efna­hags­málum í nær tvo ára­tugi. Í apríl tók vísi­talan sitt lægsta gildi frá því í októ­ber árið 2010 og í júlí lækk­aði hún á ný eftir tvo mán­uði auk­innar jákvæðni.

Neikvæðni þjóðarinnar mældist sú mesta frá því í október árið 2010 í apríl síðastliðnum, samkvæmt Væntingavísitölu Gallup.
Nei­kvæðni þjóð­ar­innar mæld­ist sú mesta frá því í októ­ber árið 2010 í apríl síð­ast­liðnum, sam­kvæmt Vænt­inga­vísi­tölu Gallup. Mynd: Bára Huld Beck

Vænt­inga­vísi­tala Gallup mæld­ist 52,3 stig í júlí og lækk­aði um 25,5 stig frá fyrri mán­uði, en í júní reis vísi­talan upp í 77,8 stig. Þetta þýðir að fleiri Íslend­ingar eru nei­kvæðir hvað varðar stöðu mála og fram­tíð­ar­horfur í efna­hags- og atvinnu­málum en í síð­asta mán­uði og að heilt yfir eru fleiri nei­kvæðir en jákvæðir.

Vænt­inga­vísi­talan er á skal­anum 0-200 og hefur Gallup mælt hana í hverjum mán­uði frá því í ágúst árið 2001. Þegar Vænt­inga­vísi­talan mælist 100 stig þýðir það að jafn margir svar­endur eru jákvæðir og nei­kvæðir.

Í apríl, þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn var hámarki hér á landi, tók vísi­talan sitt lægsta gildi síðan í októ­ber árið 2010 og mæld­ist þá 44,4 stig. Undir lok síð­asta árs og í upp­hafi þessa árs mæld­ist hún um og yfir 90 stigum, en síðan hall­aði veru­lega undan fæti þegar veiran fór að láta á sér kræla.

Vísi­talan byggir á fimm þáttum; mati á núver­andi efna­hags­að­stæðum, vænt­ingum til efna­hags­lífs­ins eftir hálft ár, mati á núver­andi ástandi í atvinnu­málum, vænt­ingum til ástands­ins í atvinnu­málum eftir hálft ár og vænt­ingum til heild­ar­tekna heim­il­is­ins eftir hálft ár.

Svar­endur eru Íslend­ingar 18 ára og eldri af öllu land­inu sem end­ur­spegla lýð­fræði­lega sam­etn­ingu þjóð­ar­innar og er svörum safnað með svoköll­uðum Gallup­vagni.

Langtímamæling á væntingum þjóðar

Vænt­inga­vísi­talan má segja að end­ur­spegli við­horf þjóð­ar­innar til stöð­unnar í efna­hags- og atvinnu­málum og á vef Gallup má sjá hvernig jákvæðni og nei­kvæðni hefur þró­ast í takt við hina ýmsu há- og lág­punkta í efna­hags­málum frá upp­hafi aldar.

Á bólu­ár­unum fyrir efna­hags­hrunið árið 2008 var vísi­talan nokkuð stöðugt yfir 100 stigum og náði sínu hæsta sögu­lega gildi í maí árið 2007, þegar hún stóð í 154,9 stigum.

Lægsta sögu­lega gildið hingað til mæld­ist svo í jan­úar árið 2009, í sama mán­uði og bús­á­halda­bylt­ingin náði hámarki og rík­is­stjórn­ar­sam­starfi Sjálf­stæð­is­flokks og Sam­fylk­ingar var slitið.

Vænt­inga­vísi­talan skreið ekki aftur upp fyrir 100 stig fyrr en í maí árið 2013, þegar hún mæld­ist 101 stig. Hún var síðan stöðugt yfir 100 stigum á upp­gangs­ár­unum frá ágúst 2015 og fram í júlí 2018, á miklum upp­gangs­tímum í ferða­þjón­ustu­geir­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár