Atvinnuleysi komið undir tíu prósent

Atvinnu­leysi hér­lendis hefur lækkað hratt að und­an­förnu en þar skiptir mestu hröð lækkun atvinnu­leysis vegna minnk­aðs starfs­hlut­falls. Almennt atvinnu­leysi mælist 7,5 pró­sent og hefur lítið sem ekk­ert breyst frá því í apríl.

Atvinnu­leysi í júní mæld­ist 9,5 pró­sent og lækkar umtals­vert milli mán­aða en það var 13 pró­sent í maí. Almennt atvinnu­leysi var 7,5 pró­sent í júní sem er mjög svipað og mán­uð­ina tvo á undan en atvinnu­leysi tengt minnk­uðu starfs­hlut­falli er 2,1 pró­sent og hefur minnkað hratt.

Þetta kemur fram í nýrri mán­að­ar­skýrslu Vinnu­mála­stofn­unar um vinnu­mark­að­inn á Íslandi.

Í skýrsl­unni segir að atvinnu­leysi tengt minnk­uðu starfs­hlut­falli hafi lækkað hraðar heldur en gert var ráð fyrir. Til sam­an­burðar mæld­ist atvinnu­leysi mest í apríl, 17,8 pró­sent, en af því var atvinnu­leysi vegna minnk­aðs starfs­hlut­falls 10,3 pró­sent. Í maí mæld­ist atvinnu­leysi 13 pró­sent og af því var atvinnu­leysi vegna minnk­aðs starfs­hlut­falls 5,6 pró­sent.

[adspot]

Rúmlega 16 þúsund atvinnulausir í almenna bótakerfinu

Gert er ráð fyrir því að atvinnu­leysi vegna minnk­aðs starfs­hlut­falls haldi áfram að minnka, fari undir eitt pró­sent í júlí og lækki niður í hálft pró­sent í ágúst. Spá stofn­un­ar­innar gerir ráð fyrir að mælt atvinnu­leysi haldi áfram að lækka, verði 8,7 pró­sent í júlí en fari svo aftur hækk­andi og nái 9,1 pró­senti í ágúst.

Samkvæmt skýrsl­unni voru alls 16.165 ein­stak­lingar atvinnu­lausir í almenna bóta­kerf­inu í lok júní og 6.742 í minnk­uðu starfs­hlut­falli. Með­al­bóta­hlut­fall þeirra sem voru í minnk­uðu starfs­hlut­falli í júní var um 60 pró­sent, sem er það sama og í maí.

Hrina hópuppsagna gengið niður

Vinnu­mála­stofnun bár­ust þrjár til­kynn­ingar um hóp­upp­sagnir í júní þar sem sagt var upp 147 manns. „Sú hrina hóp­upp­sagna sem hófst í mars tengt covid far­aldr­inum virð­ist þar með hafa gengið niður. Alls hefur um 7.400 manns verið sagt upp störfum í hóp­upp­sögnum síð­ustu mán­uði hjá um 110 fyr­ir­tækjum, að stærstum hluta í ferða­þjón­ustu,“ segir í skýrsl­unni.

Þar segir enn fremur að gera megi ráð fyrir að stór hluti þeirra sem nú eru á upp­sagn­ar­fresti muni sækja um atvinnu­leys­is­bætur að upp­sagn­ar­fresti liðnum. Af þeim sem hafa verið sagt upp munu nærri 4.000 hafa lokið upp­sagn­ar­fresti í byrjun ágúst og um 1.300 að auki í sept­em­ber.

Mest atvinnuleysi á Suðurnesjum

Sam­an­lagt atvinnu­leysi sem og atvinnu­leysi vegna minnk­aðs starfs­hlut­falls fer lækk­andi alls staðar á land­inu. Víðast hvar stendur almennt atvinnu­leysi í stað eða fer lækk­andi, nema á Suð­ur­nesjum. Það fer úr 12,2 pró­sentum í maí upp í 13,2 pró­sent í júní. Sam­an­lagt atvinnu­leysi á svæð­inu er því 15,9 pró­sent. „Ljóst er að erfið staða flug­rekstrar og ferða­þjón­ustu er að bitna hart á atvinnu­lífi Suð­ur­nesja, sem birt­ist í að almennt atvinnu­leysi er að aukast yfir sum­ar­mán­uð­ina,“ segir í skýrsl­unni.

Næst mest er almenna atvinnu­leysið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, 7,8 pró­sent. Sam­an­lagt er atvinnu­leysi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu 9,9 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnuleysi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár