Vísa fólki á félagsmálayfirvöld eða lánastofnanir

Vinnu­mála­stofnun gefur sér allt að átta vikur til þess að afgreiða umsóknir um atvinnu­leys­is­bætur, sem getur valdið þeim sem ekki eiga sparifé til fram­færslu vand­ræðum. Fólki er bent á að leita til lána­stofn­ana eða félags­mála­yf­ir­valda til að brúa bilið.

Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar.
Unnur Sverr­is­dóttir, for­stjóri Vinnu­mála­stofn­unar. Mynd: Lögreglan

Vinnu­mála­stofnun segir að vegna mik­ils álags geti tekið um átta vikur að ljúka við afgreiðslu umsókna um atvinnu­leys­is­bætur, en á meðan ekki er búið að afgreiða umsókn­ina ber­ast engar greiðslur til umsækj­enda.

Sumir þurfa því að leita á náðir félags­mála­yf­ir­valda í sínu sveit­ar­fé­lagi eða lána­stofn­ana til þess að fá lán fyrir fram­færslu á meðan þeir bíða þess að fá atvinnu­leys­is­bætur greiddar út. 

Kjarninn hefur heyrt af dæmum þess að afgreiðslu­tím­inn hafi í sumar verið enn lengri en þær átta vikur sem Vinnu­mála­stofnun gefur upp og ræddi málið við Unni Sverr­is­dóttur, for­stjóra stofn­un­ar­innar.

„Það er ekki lengur þannig. Það er orðið mjög lítið sem er eldra en átta vikna hjá okkur. Við erum búin að vera í mark­vissu átaki og þetta hefur verið í algjörum for­gangi og það er hver ein­asti maður að vinna hér í að afgreiða umsókn­irnar, sama hvaða starfi hann gegndi áður,“ segir Unnur við Kjarnann.

Hún seg­ist átta sig á því að staða þeirra sem voru á lágum launum og þurfi að bíða þetta lengi eftir að fyrstu greiðslur ber­ist frá Vinnu­mála­stofnun sé erfið. „Félags­mála­yf­ir­völd hafa, eins og hérna í Reykja­vík, þau veita lán og lána fólki fyrir fram­færslu á meðan. Það er í raun­inni það eina sem við getum bent fólki á, því miður. Það er annað hvort yfir­dráttur í banka eða eitt­hvað slíkt, eða þá að leita til félags­mála­yf­ir­valda,“ segir Unnur.

Hún seg­ist ekki vita hvort bankar séu almennt til í að gera mikið til að hjálpa atvinnu­lausum tíma­bundið með fram­færslu. „Ætli það sé ekki svo­lítið ein­stak­lings­bundið og snú­ist um í hversu góðu sam­bandi þú ert við bank­ann þinn. Ég held að það hljóti nú að vera, en þetta er auð­vitað gríð­ar­lega erfitt fyrir þá sem eru að missa vinnu og hafa verið á lágum launum. Við gerum okkur alveg full­kom­lega grein fyrir því,“ segir Unnur.

Búist við um 3.000 umsóknum í hverjum mánuði fram að jólum

For­stjór­inn segir að það sé að takast að vinna niður þann flösku­háls sem mynd­að­ist í mars og apríl þegar það voru á bil­inu 40 til 50 þús­und manns í greiðslu­þjón­ustu hjá Vinnu­mála­stofnun, meiri­hluti vegna hluta­bóta­leið­ar­innar. En áfram bæt­ist þó við.

„Grein­ing­ar­deildin hjá okkur er að gera ráð fyrir að jafn­aði um 3.000 umsóknum í hverjum mán­uði fram að jólum,“ segir Unnur. Atvinnu­leysið muni því aukast hægt og síg­andi.

Stofn­unin bætti við sig starfs­fólki í sumar til þess að takast á við aukin verk­efni og seg­ist Unnur finna fyrir stuðn­ingi frá stjórn­völdum til að halda auknum mann­skap í vinnu hjá Vinnu­mála­stofnun, enda sé vet­ur­inn „svo­lítið ískyggi­legur“.

„Ég á ekki von á öðru,“ segir Unnur spurð að því hvort hún haldi að Vinnu­mála­stofnun fái fjár­veit­ingar til að halda því fólki við störf sem ráðið var þegar álagið jókst. „Ég held að stjórn­völd kæri sig ekki um þennan bið­tíma í afgreiðslu, ég finn frekar fyrir stuðn­ingi til þess að halda í þetta fólk heldur en hitt. Það er bara svo ein­falt, það sjá það allir að þetta er ótrú­leg aukn­ing á einu ári.“

Kostnaður vegna atvinnuleysistrygginga þegar kominn yfir 60 milljarða á árinu

Samkvæmt yfir­liti stjórn­valda yfir stöðu stærstu efna­hags­að­gerð­anna sem gripið var til vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins hafa um 18 millj­arðar króna þegar verið greiddir út vegna hinnar svoköll­uðu hluta­bóta­leiðar, sem ætluð var til að verja ráðn­ing­ar­sam­band fyr­ir­tækja og starfs­fólks í því mikla óvissu­á­standi sem skap­að­ist fyrr á árinu. Upp­haf­lega áætl­uðu stjórn­völd að fram­kvæmd hluta­bóta­leið­ar­innar myndi kosta 22 millj­arða króna.

Í yfir­liti stjórn­valda einnig fram að þegar sé búið að greiða út 43,5 millj­arða í almennar atvinnu­leys­is­bætur það sem af er ári. Þetta er langt um fram það sem áætlað var í upp­hafi árs, er fregnir af kór­ónu­veiru­far­aldr­inum voru fjarri vit­und flestra.

Þá gerðu stjórn­völd ráð fyrir því að kostn­aður vegna almennra atvinnu­leys­is­bóta á árinu 2020 yrði 27,4 millj­arðar króna. Uppfærð áætlun stjórn­valda gerir ráð fyrir að 56 millj­arðar fari í að greiða út almennar atvinnu­leys­is­bætur á árinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnuleysi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár