Slökkva á báðum ofnum PCC á Bakka í júlílok og segja stórum hluta starfsfólks upp

Stórum hluta starfs­fólks kís­il­vers PCC á Bakka verður sagt upp og slökkt verður tíma­bundið á báðum ofnum verk­smiðj­unnar í júlí­lok. Rekstr­ar­stöðv­unin er að sögn fyr­ir­tæk­is­ins tíma­bundin, þar til heims­mark­aður á kís­il­málmi tekur við sér á ný.

Slökkt verður á báðum ofnum verksmiðjunnar í lok júlí og stórum hluta starfsmanna sagt upp.
Slökkt verður á báðum ofnum verk­smiðj­unnar í lok júlí og stórum hluta starfs­manna sagt upp. Mynd: Úr safni.

Fram­leiðsla í kís­il­veri PPC á Bakka nærri Húsavík verður stöðvuð í lok júlí og stórum hluta starfs­fólks sagt upp. Ráðist er í þessar aðgerðir vegna áhrifa COVID-19 far­ald­urs­ins á heims­mark­aðs­verð og eft­ir­spurn eftir kís­il­málmi. Lokunin er sögð tíma­bundin, í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu, og stefnt er að því að hefja rekstur á ný þegar mark­að­ur­inn nær sér á strik.

Félagið seg­ist hafa leitað allra leiða til að halda fram­leiðsl­unni gang­andi við þessar aðstæður, en nú hafi verið ákveðið að slökkva á báðum ofnum verk­smiðj­unnar í júlí­lok.

Fram kemur í til­kynn­ingu að bæði starfs­menn og trún­að­ar­menn þeirra hafi verið upp­lýstir um ákvörð­un­ina. Gert er ráð fyrir því að starfs­fólk verði end­ur­ráðið þegar fram­leiðslan fer aftur af stað.

Á meðan slökkt verður á ofn­unum mun félagið sinna við­haldi og end­ur­bótum á hreinsi­virki verk­smiðj­unnar, sem felur meðal ann­ars í sér að hluti þaks­ins verður fjar­lægður og nýjum tækja­bún­aði komið fyrir. Þessari við­halds- og end­ur­bóta­vinnu ætti að vera lokið í ágúst­lok 2020, segir í til­kynn­ingu félags­ins.

Hefur trú á að markaðurinn taki við sér

Rúnar Sig­ur­páls­son, for­stjóri PCC BakkiSilicon hf., segir að erfitt hafi verið að taka þessa ákvörðun og ef raun­hæf leið hefð­ist fund­ist til að forð­ast upp­sagnir hefði hún verið farin.

„Ég er hins vegar viss um að heims­mark­að­ur­inn muni taka við sér að nýju. Þegar það ger­ist munum við setja upp­gerða verk­smiðj­una aftur í gang og ráða aftur eins mikið af fólk­inu okkar og við getum,“ er haft er Rúnari í til­kynn­ingu frá PCC.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár