Framlenging vinnumarkaðsúrræða komi til með að kosta 5,4 milljarða

Í vik­unni sam­þykkti rík­is­stjórnin að fram­lengja hluta­bætur út októ­ber og að tekju­teng­ing atvinnu­leys­is­bóta vari tíma­bundið í sex mán­uði í stað þriggja. Þá verður hægt að sækja um greiðslu launa fólks í sótt­kví út árið 2021.

Frumvarp um breytingu á lögum er verða vinnumarkaðinn kemur frá Ásmundi Einari Daðasyni, félags- og barnamálaráðherra.
Frumvarp um breyt­ingu á lögum er verða vinnu­mark­að­inn kemur frá Ásmundi Einari Daðasyni, félags- og barna­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Kostn­aður rík­is­sjóðs vegna fram­leng­ingar hluta­bóta­leiðar, tíma­bund­innar leng­ingar tekju­tengdra atvinnu­leys­is­bóta og greiðslu launa til fólks í sótt­kví er met­inn vera um 5,4 millj­arðar króna. Þetta kemur fram í grein­ar­gerð frum­varps Ásmundar Einars Daða­sonar, félags- og barna­mála­ráð­herra, um breyt­ingu á lögum um til að mæta efna­hags­legum áhrifum heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru. Frum­varpið var sam­þykkt af rík­is­stjórn í vik­unni.

Með sam­þykkt frum­varps­ins var hluta­bóta­leiðin fram­lengd í tvo mán­uði og gildir nú út októ­ber auk þess sem réttur til tekju­tengdra atvinnu­leys­is­bóta verður tíma­bundið lengdur úr þremur mán­uðum í sex. Þá mun greiðsla launa til ein­stak­linga í sótt­kví halda áfram og vera heim­il­aðar á tíma­bil­inu 1. októ­ber 2020 til og með 31. des­em­ber 2021.

Tveir milljarðar í hlutabætur

Í grein­ar­gerð frum­varps­ins kemur fram að áætl­aður kostn­aður við leng­ingu hluta­bóta úrræð­is­ins sé um tveir millj­arðar króna. Sú áætlun mið­ast við að fjöldi umsókna um atvinnu­leys­is­bætur sam­hliða minnk­uðu starfs­hlut­falli á gild­is­tíma úrræð­is­ins verði á bil­inu 2.500 til 3.500. Erfitt sé að spá fyrir um hver þróun fjölda atvinnu­leit­enda sem nýtir sér úrræðið verður.

Þegar mest var nýttu rúm­lega 36.000 ein­stak­lingar sér úrræðið en um miðjan ágúst var fjöldi þeirra kom­inn niður fyrir 3.000. Um miðjan þennan mánuð var búið að greiða út 18 millj­arða króna en áætl­anir höfðu gert ráð fyrir að kostn­aður úrræð­is­ins í ár næmi 22 millj­örðum króna

Aukin tekjutenging kosti rúma þrjá milljarða

Samkvæmt grein­ar­gerð­inni gerir Vinnu­mála­stofnun ráð fyrir að kostn­aður við tíma­bundna aukn­ingu á tekju­teng­ingu atvinnu­leys­is­bóta muni nema um 3,2 millj­örðum króna. Áætlað er sá kostn­aður skipt­ist þannig að 1,7 millj­arðar falli á árið 2020 en 1,5 millj­arðar árið 2021. Mikil óviss er þó í mati kostn­að­ar­ins.

„Mat á mögu­legum útgjöldum Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóðs vegna þeirra breyt­inga sem frum­varp þetta gerir ráð fyrir hvað varðar tíma­bund­inn auk­inn rétt atvinnu­leit­enda til tekju­tengdra atvinnu­leys­is­bóta bygg­ist meðal ann­ars á mögu­legri þróun fjölda umsækj­enda um atvinnu­leys­is­bætur en erfitt er að spá fyrir um hver sú þróun verður,“ segir um matið í grein­ar­gerð­inni.

Mark­miðið með fram­leng­ingu á rétti til tekju­tengdra atvinnu­leys­is­bóta úr þremur mán­uðum í sex mán­uði er að koma til móts við ein­stak­linga sem orðið hafa fyrir atvinnu­missi vegna far­ald­urs­ins og munu búa við skerta mögu­leika á atvinnu næstu miss­eri.

Sóttkvíarlaun ekki kostað jafn mikið og gert var ráð fyrir

Kostn­aður vegna fram­leng­ingar á greiðslu launa í sótt­kví er met­inn verða á bil­inu 200 til 300 millj­ónir króna. Sú tala er fengin með því að áætla að greitt verði til 1.500 til 2.000 ein­stak­linga sem þurfa að sæta sótt­kví og að með­al­greiðsla verði svipuð og verið hefur, um 130.000 krónur til hvers ein­stak­lings.

Hægt var að sækja um greiðslur launa í sótt­kví frá Vinnu­mála­stofn­unar til 1. júlí síð­ast­lið­inn. Alls nemur kostn­aður við úrræðið þar til nú um 190 millj­ónum króna. Í grein­ar­gerð­inni segir að sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Vinnu­mála­stofnun hafi stofn­unin afgreitt rúm­lega 1.000 umsóknir vegna tæp­lega 1.500 ein­stak­linga. Upp­haf­legt kostn­að­ar­mat hafi verið 600 til 700 millj­ónir vegna úrræð­is­ins, en gert var ráð fyrir að lögin myndu ná til 2.500 til 3.000 ein­stak­linga og með­al­greiðsla vegna ein­stak­lings yrði um 240.000. Með­al­greiðslur urðu á end­anum líkt og áður segir um 130.000 krónur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár