Í fyrsta sinn frá árinu 2012 fluttu fleiri erlendir ríkisborgarar af landinu en til þess

Þegar mest lét starf­aði rúmur fjórð­ungur erlends vinnu­afls í ferða­þjón­ustu en almennt atvinnu­leysi erlendra rík­is­borg­ara hér­lendis var 18,5 pró­sent í júní síð­ast­liðnum. Á árunum eftir hrun fækk­aði erlendum rík­is­borg­urum sem búsettir voru hér á landi.

Flutn­ings­jöfn­uður erlendra rík­is­borg­ara var nei­kvæður á síð­asta árs­fjórð­ungi í fyrsta sinn frá því á örðum árs­fjórð­ungi árs­ins 2012. Á síð­asta árs­fjórð­ungi fluttu um 260 fleiri erlendir rík­is­borg­arar frá land­inu en til þess. Samkvæmt tölum Hag­stof­unnar fluttu til lands­ins um 1.100 erlendir rík­is­borg­arar á síð­asta árs­fjórð­ungi en um 1.350 erlendir rík­is­borg­arar fluttu af land­inu.

Ef litið er á fjölda aðfluttra og brott­fluttra Íslend­inga sést að fjöldi þeirra sveifl­ast tölu­vert á milli árs­fjórð­unga. Á öðrum árs­fjórð­ungi flutt­ust 280 fleiri Íslend­ingar til lands­ins heldur en fluttu frá því. Frá árinu 2016 hefur flutn­ings­jöfn­uður íslenskra rík­is­borg­ara alltaf verið jákvæður á öðrum árs­fjórð­ungi. Hann hefur þó aldrei verið jafn mik­ill og í ár, næst kemst annar árs­fjórð­ungur árs­ins 2017 þegar 270 fleiri íslenskir rík­is­borg­arar fluttu til lands­ins heldur en fluttu af landi brott.

Erlent starfsfólk í lykilhlutverki í ferðaþjónustu

Erlendir rík­is­borg­arar léku lyk­il­hlut­verk í hag­vaxt­ar­skeið­inu sem hófst árið 2011 og ómögu­legt hefði veið að manna öll þau störf sem sköp­uð­ust á tíma­bil­inu ef ekki hefði verið fyrir erlent vinnu­afl.

Árið 2011 kom rúm hálf milljón erlendra ferða­manna til lands­ins. Þá störf­uðu í ein­kenn­andi greinum ferða­þjón­ustu rúm­lega 13.500 manns, þar af um 2.300 erlendir rík­is­borg­arar eða um um 13,7 pró­sent af öllu erlendu vinnu­afli hér á landi. Árið 2014 kom hingað tæp­lega í ein milljón ferða­manna. Þá störf­uðu í ferða­þjón­ustu um 18.300 manns, þar af rúm­lega 3.600 erlendir rík­is­borg­arar. Þá starf­aði um 17 pró­sent af erlendu vinnu­afli hér­lendis við ferða­þjón­ustu.

Hoppum nú til árs­ins 2019, fjöldi ferða­manna hefur aðeins lækkað frá metár­inu 2018 en hingað komu rétt rúm­lega tvær millj­ónir erlendra ferða­manna árið 2019. Í ferða­þjón­ustu störf­uðu rétt rúm­lega 28 þús­und manns, þar af um 10.700 erlendir rík­is­borg­arar. Það þýðir að rúm­lega fjórð­ungur erlends vinnu­afls hér á landi starf­aði í ferða­þjón­ustu á síð­asta ári. Hlutfall erlends vinnu­afls sem starfar við ferða­þjón­ustu næstum því tvö­fald­að­ist á tíma­bil­inu 2011-2019. Til sam­an­burðar fór hlut­fall íslensks vinnu­afls sem starfar í ferða­þjón­ustu úr 6,2 pró­sentum upp í 9,7 pró­sent á sama tíma­bili.

Mikið atvinnuleysi meðal erlendra ríkisborgara

Í mán­að­ar­skýrslu Vinnu­mála­stofn­unar fyrir júní kemur fram að í lok mán­að­ar­ins voru alls 8.487 erlendir rík­is­borg­arar á atvinnu­leys­is­skrá, 6.656 í almenna bóta­kerf­inu og 1.831 í minnk­uðu starfs­hlut­falli. Í sama mán­uði í fyrra voru 2.578 erlendir rík­is­borg­arar án atvinnu. Í skýrsl­unni kemur fram að almennt atvinnu­leysi meðal erlendra rík­is­borg­ara hafi verið mikið áður en kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn setti mark sitt á íslenskan vinnu­markað í formi auk­ins atvinnu­leysis: „Hlutfall erlendra rík­is­borg­ara á almennu skránni er nú um 41% líkt og það var í des­em­ber og fram í febr­úar.“

Þá kemur fram í skýrsl­unni að áætlað atvinnu­leysi meðal erlendra rík­is­borg­ara hafi verið um 21,5 pró­sent á heild­ina litið í júní. Af því hafi þrjú pró­sent verið vegna minnk­aðs starfs­hlut­falls en almennt atvinnu­leysi erlendra rík­is­borg­ara hafi numið 18,5 pró­sentum. Til sam­an­burðar var almennt atvinnu­leysi í heild á íslenskum vinnu­mark­aði í júní 7,5 pró­sent.

Fjöldi erlendra ríkisborgara í takti við hagsveifluna

Hlutfall erlendra rík­is­borg­ara af íbúum lands­ins fór hratt hækk­andi eftir árið 2005 þegar það var 3,6 pró­sent. Hlut­fallið náði ákveðnu hámarki árið 2009 þegar það stóð í 7,6 pró­sentum en fór svo lækk­andi. Árin 2011 og 2012 varð hlut­fallið lægst eftir hrun þegar það stóð í 6,6 pró­sentum. Síðan þá hefur það farið hratt hækk­andi aftur og á fyrsta fjórð­ungi árs­ins 2020 var það komið í 13,9 pró­sent.

Áhrif þess­arar fjölg­unar á íbúa­tölur eru þónokkur og hefur fjölg­unin verið drifin áfram af erlendum rík­is­borg­urum frá árinu 2012. Frá upp­hafi árs­ins 2012 hefur íbúum lands­ins fjölgað úr 320 þús­undum upp í tæp 367 þús­und, það er um tæp­lega 47 þús­und. Á þessu tíma­bili fjölg­aði aðfluttum erlendum rík­is­borg­urum um tæp 27 þús­und.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

íbúafjöldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár