Íbúum miðborgar fækkað um tæplega 800

Mið­borgin er eina hverfið í borg­inni þar sem færra fólk býr nú en fyrir sex árum. Fjöl­menn­asta hverfið er Breið­holt, og fleiri búa nú í Laug­ar­dal en Vesturbæ. Íbúum borg­ar­innar hefur fjölgað um tæp­lega fimm þús­und.

Íbúar í miðborginni eru tæplega 800 færri nú en þeir voru fyrir sex árum síðan.
Íbúar í mið­borg­inni eru tæp­lega 800 færri nú en þeir voru fyrir sex árum síðan. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Íbúum í mið­borg Reykja­víkur hefur fækkað á hverju ári frá árinu 2011, sam­kvæmt tölum frá Reykja­vík­ur­borg. Í lok árs 2011 voru íbúar mið­borg­ar­innar 8.611 tals­ins en í lok síð­asta árs voru þeir 7.842. Það er fækkun um 769 íbúa á sex árum.

Mið­borgin er eina hverfi borg­ar­innar þar sem færri búa nú en í lok árs­ins 2011.

Flestir grein­ing­ar­að­ilar eru sam­mála um að útleiga íbúða til ferða­manna, mest í gegnum Airbnb, hafi tals­verð ruðn­ings­á­hrif og það sé mest í mið­borg­inni enda eru þar flestar íbúðir í útleigu. Í grein­ingu Arion banka frá því í jan­úar sagði að allt að 3.200 íbúðir eða her­bergi væru til leigu á Airbnb eða annarri heimagist­ingu.

Í öllum öðrum hverfum borg­ar­innar eru fleiri íbúar nú en árið 2011, og íbúum í Reykja­vík hefur fjölgað um 4.432 á þessum tíma.

[adspot]

Fækkað í Vesturbæ síðustu ár

Í Vesturbæ Reykja­víkur hefur íbúum fækkað lít­il­lega síð­ustu tvö ár, en íbúar eru engu að síður um 500 fleiri nú en þeir voru fyrir sex árum síðan. Nú búa rétt rúm­lega sextán þús­und manns í vest­ur­bænum, sem er fjórða stærsta hverfi borg­ar­innar.

Lang­fjöl­menn­asta hverfi borg­ar­innar er Breið­holt, þar sem nú búa yfir 21.300 manns. Íbúum þar hefur fjölgað hægt og bít­andi und­an­farin ár, líkt og sjá má hér að neðan.

Næst­fjöl­menn­asta hverfið í Reykja­vík er Graf­ar­vogur, en íbúa­fjöldi þar hefur hald­ist mjög stöð­ugur und­an­farin ár. Í lok árs­ins 2011 bjuggu þar 17.869 ein­stak­lingar en í lok síð­asta árs voru þeir 17.944. Fjölg­unin nemur 75 manns.

Þriðja stærsta hverfið er nú Laug­ar­dalur, þar sem 16.135 íbúar búa, miðað við 15.357 fyrir sex árum síðan. Þar hefur einnig fjölgað á hverju ein­asta ári frá 2011. Það ár var Laug­ar­dalur örlítið fámenn­ari en Vest­ur­bær­inn en hverfin hafa nú haft sæta­skipti og Vest­ur­bær­inn er orð­inn fjórða stærsta hverfi borg­ar­innar.

Íbúum í Graf­ar­holti og Úlf­ars­felli hefur fjölgað mest á þessum sex árum sem töl­fræðin nær yfir. Úlf­arsár­dalur er nýjasta hverfi borg­ar­innar svo fjölg­unin kemur ekki á óvart. 928 fleiri bjuggu í Graf­ar­holti og Úlf­arsár­dal í lok síð­asta árs en árið 2011. Íbúum í Árbæ hefur fjölgað um 854 á sama tíma­bili og í Breið­holti búa nú 839 fleiri en gerðu fyrir sex árum.

Hér að neðan má sjá íbúa­fjölda í hverfum borg­ar­innar, en taflan er fengin af töl­fræði­vef Reykja­vík­ur­borgar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

íbúafjöldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár