Íslendingar snéru heim í miðjum COVID-19 faraldri

Íslend­ingar sem fluttu til lands­ins voru tvö­falt fleiri en þeir sem fluttu erlendis á öðrum árs­fjórð­ungi árs­ins. Flutn­ings­jöfn­uður erlendra rík­is­borg­ara var nei­kvæður í fyrsta sinn síðan árið 2012.

Alls bjuggu 366.700 manns á Íslandi við lok annars ársfjórðungs.
Alls bjuggu 366.700 manns á Íslandi við lok ann­ars árs­fjórð­ungs. Mynd: Bára Huld Beck

Á öðrum árs­fjórð­ungi árs­ins flutt­ust 570 íslenskir rík­is­borgar til lands­ins en 290 flutt­ust erlendis. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hag­stof­unnar um mann­fjölda­þróun. Flestir aðfluttir íslenskir rík­is­borg­arar komu frá Danmörku, alls 170, frá Noregi komu 60 og frá Svíþjóð 110. Til þess­ara landa fluttu 170 íslenskir rík­is­borgar af þeim 290 sem alls fluttu erlendis á tíma­bil­inu.

Þróunin var á hinn veg­inn hjá erlendum rík­is­borg­urum og er þetta í fyrsta sinn síðan 2012 sem flutn­ings­jöfn­uður erlendra rík­is­borg­ara er nei­kvæður. Alls flutt­ust 1.350 erlendir rík­is­borg­arar frá land­inu og fóru flestir til Póllands, alls 430 manns. Pólland var einnig upp­runa­land flestra erlendra rík­is­borg­ara sem hingað fluttu á árs­fjórð­ungnum en þaðan flutt­ust 270 til lands­ins af alls 1.100 erlendum inn­flytj­endum. Næst­flestir komu frá Litháen, alls 80 manns.[adspot]

Samtals bjuggu 366.700 manns á land­inu við lok ann­ars árs­fjórð­ungs, 188.330 karlar og 178.370 konur. Lands­mönnum fjölg­aði um 560 á tíma­bil­inu eða um 0,2 pró­sent. Alls bjuggu 234.910 á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en 131.790 utan þess.

Á árs­fjórð­ungnum fædd­ust 1.090 börn en 550 ein­stak­lingar lét­ust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

íbúafjöldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár