Norrænu ráðuneytin svara því ekki hvað þeim þótti um afstöðu Íslands

Kjarninn er búinn að fá svör frá fjár­mála­ráðu­neytum Finn­lands, Sví­þjóðar, Dan­merkur og Noregs vegna máls Þor­valdar Gylfa­sonar, sem íslenska ráðu­neytið sagði að væri of virkur í póli­tík til að við­eig­andi væri að hann rit­stýrði fræða­tíma­riti.

Full­trúar hvorki norska né danska fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins, sem eiga sæti í stýri­hópi nor­ræna fræða­tíma­rits­ins Nordic Economic Policy Review, vilja svara því hvað þeim hafi þótt um þá afstöðu sem íslenska fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið setti fram gagn­vart Þorvaldi Gylfa­syni, þegar hann til kom til tals sem mögu­legur næsti rit­stjóri tíma­rits­ins.

Sænska ráðu­neytið svarar því heldur ekki með beinum hætti, en í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans segir Jonas Norlin full­trúi þess þó að fyrir sænska ráðu­neytið hafi akademískur bak­grunnur og getan til þess að standa sig vel í starfi verið það sem skipti máli við val á nýjum rit­stjóra.[links]

Einnig, segir sænski ráðu­neyt­is­mað­ur­inn, var horft til praktískra atriða eins og þess hvar ein­stak­lingar væru búsettir, með til­liti til mögu­leika þeirra á að ferð­ast á milli nor­rænu land­anna vegna starfs­ins.

Fulltrúi norska ráðu­neyt­is­ins, Nathalie Berner Sørhaug, segir það eitt í svari til Kjarnans að norska ráðu­neytið hafi ekki haft athuga­semdir við það að Þor­valdur Gylfason yrði rit­stjóri NEPR. „Við höfum ekk­ert meira að segja um þetta mál,“ bætir hún við.

„Einhverskonar misskilningur“ að Danmörk hafi lagst gegn Þorvaldi

Starfs­maður danska ráðu­neyt­is­ins, Morten Krægpøth, segir í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans að danska fjár­mála­ráðu­neytið hafi ekki tekið neina afstöðu hvorki með að á móti Þorvaldi, heldur hafi hann ein­fald­lega lýst því yfir þegar afstaða Íslands lá ljós fyrir að best væri að finna kandídat í starfið sem öll löndin gætu fellt sig við.

[adspot]

Hann segir það „ein­hvers­konar mis­skiln­ing“ að Danmörk hafi lagst sér­stak­lega á sveif með Íslandi innan nor­ræna stýri­hóps­ins í afstöðu til Þorvalds, en það sagði Lars Calmfors hag­fræði­pró­fessor og fyrr­ver­andi rit­stjóri fræða­tíma­rits­ins, sem átti sem slíkur sæti í stýri­hópnum, í svari sínu til Kjarnans í síð­ustu viku.

Þá hafði Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra lýst því yfir á Facebook-síðu sinni að Ísland hefði ekki verið eina landið innan stýri­hóps­ins sem studdi ekki að Þor­valdur yrði rit­stjóri þegar til kast­anna kom. Danski full­trú­inn segir þvert á móti að Danmörk hafi ekki tekið sér­staka afstöðu gegn neinum kandídat í starfið nema þegar sam­þykkt var að ráða sænska pró­fess­or­inn Harry Flam, sem að lokum var feng­inn til þess að rit­stýra tíma­rit­inu.

Finnar hleypa stjórnmálamönnum ekki nærri

Þegar hefur verið fjallað um afstöðu finnska ráðu­neyt­is­ins til máls­ins. Markku Stenborg, full­trúi Finn­lands í stýri­hópnum, sagði við Kjarnann að hann myndi ekki leyfa stjórn­mála­mönnum að hafa nokkur áhrif á stjórn tíma­rits­ins, en hann er með það verk­efni á sinni könnu í finnska ráðu­neyt­inu. Hann sagði að hann per­sónu­lega myndi aldrei mis­muna neinum á grund­velli póli­tískra skoð­ana eða ann­arra skoð­ana.

„Að mínu mati er helsta hæfn­is­við­miðið að rit­stjór­inn sé fær um að finna réttu rann­sóknateymin og leiða skrif þeirra, svo úr verði hágæða gagn­reyndar greinar sem geti nýst við stefnu­mót­un,“ sagði Sten­borg og kom því jafn­framt á fram­færi að Þor­valdur hefði litið út fyrir að vera mjög hæfur kandídat í starf­ið.

Kjarninn spurði öll nor­rænu ráðu­neytin að því hvernig þau hefðu brugð­ist við afstöð­unni sem Íslands setti fram í tölvu­póst­sam­skiptum innan nefnd­ar­innar og einnig hvort ráðu­neytin myndu taka stjórn­mála­skoð­anir eða -þátt­töku fræði­manna inn í mynd­ina þegar þau væru að kom­ast að nið­ur­stöðu um hvort ein­hver væri heppi­legur í starfið eður eigi.

Finnska ráðu­neytið sagði skýrt að það yrði ekki gert þar í landi, full­trúi þess sænska þuldi upp þá mats­þætti sem það horfði til og stjórn­mála­skoð­anir eða -þátt­taka var ekki þar á meðal, en hvorki danska né norska ráðu­neytið svar­aði spurn­ing­unni.

Calmfors sagði hreinskiptar umræður hafa farið fram

Lars Calmfors hag­fræði­pró­fessor hefur verið ómyrkur í máli um hvað honum þótti um þá afstöðu sem íslenska ráðu­neytið setti fram innan nefnd­ar­innar og sagði hann í við­tali við Kjarnann í síð­ustu viku að hrein­skiptar umræður hefðu farið fram innan nefnd­ar­innar eftir að afstaða Íslands varð ljós, þar sem hann sjálfur hefði komið því skýrt á fram­færi að það væri óboð­legt að taka hvers konar póli­tískar rök­semdir með í reikn­ing­inn þegar verið væri að velja rit­stjóra. Einnig hefðu full­trúar ann­arra ríkja, sem hann til­tók ekki, lýst yfir óánægju með afstöð­una.

[adspot]

Við sænska blaðið Dagens Nyheter sagði hann svo einnig að póli­tísk afskipti af stjórn tíma­rits­ins gætu rýrt trú­verð­ug­leika þess, en NEPR er rit­rýnt fræða­tíma­rit og hefur tekið fram á síðum sínum að þrátt fyrir að til þess hafi verið stofnað af Norrænu ráð­herra­nefnd­inni séu efn­is­tök þess ekki endi­lega end­ur­speglun á „skoð­un­um, álit­um, við­horfum eða með­mæl­um“ Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­inn­ar. Með öðrum orðum, að það sé óháð tíma­rit, þrátt fyrir að nor­ræni stýri­hóp­ur­inn ákveði í sam­ráði við rit­stjóra hvaða þema eigi að taka fyrir á hverju ári.

Þetta rímar illa við orð fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sem hefur sagt að ekki sé hægt að líta á NEPR sem óháð fræða­tíma­rit, heldur sé rit­inu ætlað að styðja við stefnu­mótun nor­rænu ríkj­anna í efna­hags­málum.

Hann sagði í Facebook-færslu í síð­ustu viku að hann teldi að „sýn og áherslur“ Þorvalds Gylfa­sonar í efna­hags­málum gætu engan veg­inn stutt við stefnu­mótun ráðu­neytis sem hann stýrði.

Enginn virðist vita eða vilja segja af hverju Þorvaldi var boðið starfið

Kjarninn leit­aði eftir útskýr­ingum á því af hverju Þorvaldi Gylfa­syni var veitt starfstil­boð af hálfu Anders Hedberg, starfs­manns Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar, sem Þor­valdur sjálfur segir að hafi verið án allra fyr­ir­vara.

Eins og fram hefur komið sagði þessi starfs­maður nor­rænu ráð­herra­nefnd­ar­innar við Kjarnann að öllum fyr­ir­spurnum vegna máls­ins ætti að beina til nor­rænu fjár­mála­ráðu­neyt­anna, en frá þeim fást heldur ekki skýr svör þrátt fyrir til­raunir blaða­manns.

Ráðu­neytin virð­ast þó ekki standa í þeirri mein­ingu að starfstil­boðið hafi verið fyr­ir­vara­laust. Finnski full­trú­inn sagð­ist hafa tekið því þannig að hann teldi starfstil­boðið hafa verið lagt fram með fyr­ir­vara um sam­hljóða sam­þykki og íslensku og dönsku ráðu­neytin segja það hrein­lega mis­skiln­ing að Þor­valdur hafi verið ráð­inn.

Sænski full­trú­inn svarar því til að það hafi ekk­ert haft með stjórn­sýsl­una í kringum starfstil­boðin að gera og það norska svarar ekki spurn­ing­unni, frekar en öðrum.

Lars Calmfors, sem sjálfur lagði Þorvald til í starfið, sagði við Kjarnann að hann teldi að starfs­maður Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar hefði veitt Þorvaldi til­boð um að taka að sér starfið, áður en form­leg ákvörðun hefði verið tekin í stýri­hópnum, „með þær skilj­an­legu vænt­ingar að allir yrðu ánægðir með það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

alþjóðasamstarf

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár