Danmörk snerist á sveif með Íslandi eftir að pólitísk afstaða Íslands lá fyrir

Danska fjár­mála­ráðu­neytið lagð­ist, rétt eins og það íslenska, gegn því að Þor­valdur Gylfason tæki við sem rit­stjóri NEPR. Sú afstaða danska ráðu­neyt­is­ins var þó ein­ungis byggð á því að Þor­valdur nyti ekki stuðn­ings íslenska fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins.

Lars Calmfors er prófessor við Stokkhólmsháskóla og fráfarandi ritstjóri NEPR.
Lars Calmfors er pró­fessor við Stokk­hólms­há­skóla og frá­far­andi rit­stjóri NEPR.

Fyrst þegar gerð var til­laga til nor­ræns stýri­hóps sem fer með ráðn­ingu í starf rit­stjóra fræða­rits­ins Nordic Economic Policy Review (NEPR) um að Þor­valdur Gylfason kæmi til greina í stöð­una lýsti full­trúi danska fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins í stýri­hópnum því yfir að ráðu­neytið sam­þykkti að Þor­valdur tæki að sér starfið. Síðan varð afstaða Íslands ljós og þá sner­ist danska ráðu­neyt­inu hugur.[links]

Þetta segir Lars Calmfors hag­fræði­pró­fessor við Stokk­hólms­há­skóla, sem tók þátt í ákvarð­ana­töku starfs­hóps­ins síð­asta haust sem sitj­andi rit­stjóri NEPR, í svari við spurn­ingu Kjarnans. Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra greindi frá því á Facebook-síðu sinni í morgun að Ísland hefði ekki verið eina ríkið sem ekki féllst á til­lögu um ráðn­ingu Þorvalds í stöð­una, þegar til kast­anna kom.

Hitt ríkið sem studdi Þorvald ekki var Danmörk, en full­trúi danska ráðu­neyt­is­ins í stýri­hópnum hafði þó sem áður segir engar athuga­semdir við það að Þor­valdur tæki að sér starfið áður en Ísland lýsti yfir and­stöðu sinni við að Þor­valdur kæmi til álita vegna stjórn­mála­þátt­töku sinnar.

Calmfors segir að afstaða danska ráðu­neyt­is­ins hafi ekki verið byggð á því að Þor­valdur væri á ein­hvern hátt óhæfur til starfs­ins, heldur segir hann að full­trúi Dan­merkur hafi ein­fald­lega, eftir því hann best muni, borið fyrir sig stuðn­ings­leysi íslenska ráðu­neyt­is­ins.

Pró­fess­or­inn lýsti því í sam­tali við Kjarnann að full­trúar hinna Norð­ur­land­anna í stýri­hópnum hefðu sumir hverjir verið óánægðir með afstöðu íslenska ráðu­neyt­is­ins og komið þeirri óánægju á fram­færi munn­lega á fundi sem hald­inn var eftir að afstaða Íslands í mál­inu var ljós.

Fjármálaráðherra sagði NEPR ekki vera óháð fræðirit

Bjarni Bene­dikts­son full­yrti í færslu sinni í morgun að ekki væri hægt að líta á NEPR sem „óháð fræði­rit“, heldur væri rit­inu ætlað að styðja við stefnu­mótun nor­rænu ríkj­anna í efna­hags­málum. Hann sagði enn­fremur að sýn og áherslur Þor­valdar gætu engan veg­inn stutt við stefnu­mótun í ráðu­neyti sem hann stýrði.

Calmfors sagði í sam­tali við Kjarnann í gær að það flækti vissu­lega málin að Norræna ráð­herra­nefndin væri póli­tísk ein­ing og að flest fræði­rit væru gefin út með sjálf­stæð­ari hætti. En þó væri það svo að rist­jóra­starfið væri akademískt starf, þar sem póli­tískar skoð­anir hæfra fræði­manna ættu ekki að koma til nokk­urra álita við ráðn­ing­una.

Sá munur birt­ist í orða­notkun Bjarna ann­ars vegar og Calmfors hins vegar að að Bjarni segir rit­inu ætlað að „styðja við“ stefnu­mótun nor­rænu ríkj­anna en Calmfors segir að rit­inu sé ætlað að birta rann­sóknir sem geti nýst nor­rænu ríkj­unum við opin­bera stefnu­mótun.

Ritið er rit­rýnt tíma­rit, sem gefið er út undir hatti Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar og er því ætlað, sam­kvæmt lýs­ingu á vef Norð­ur­landa­ráðs að koma nýj­ustu rann­sóknum í hag­fræði á fram­færi við þá sem taka stefnu­mót­andi ákvarð­anir um efna­hags­mál á Norð­ur­löndum og aðra sem hafa áhuga á rann­sóknum. Ritinu er einnig ætlað að vera fram­lag til nor­rænnar þekk­ingaröfl­unar um efna­hags­mál.



Efn­is­tök­unum er stýrt af nor­ræna stýri­hópnum, sem akademískur rit­stjóri og full­trúi rann­sókna­stofn­un­ar­innar Nor­dregio eiga sæti í, auk full­trúa nor­rænu ráðu­neyt­anna. Valið er eitt þema á hverju ári til þess að taka sér­stak­lega fyrir. Í síð­ustu útgáfu rits­ins var fjallað um lofts­lags­mál og Norð­ur­löndin, í sex mis­mun­andi fræði­greinum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

alþjóðasamstarf

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár