Vilji Bjarna að hvorki tilnefna né samþykkja Þorvald Gylfason sem ritstjóra

Bjarni Bene­dikts­son segir að hann beri ábyrgð á því að Þor­valdur Gylfason hafi ekki verið til­nefndur né sam­þykktur sem rit­stjóri hag­fræð­is­rits. Sýn og áherslur Þorvalds í efna­hags­málum styðji ekki við stefnu­mótun ráðu­neytis sem hann stýri.

Bjarni Benediktsson er fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son er fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að þegar hann hafi heyrt stungið upp á því að Þor­valdur Gylfason, pró­fessor í hag­fræði, yrði gerður að rit­stjóra rits­ins Nordic Economic Policy Review þá hefði hann verið afar skýr um að hann kæmi ekki til greina. Hann telji enda að „sýn og áherslur Þor­valdar Gylfa­sonar í efna­hags­málum geti engan veg­inn stutt við stefnu­mótun ráðu­neytis sem ég stýri.“

Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu sem Bjarni birti á Facebook.

Þar segir Bjarni enn fremur að starfs­menn ráðu­neyta starfi í umboði og á ábyrgð ráð­herra. „Þótt ekki séu öll sam­skipti borin undir mig ber ég á þeim ábyrgð og í þessu til­viki end­ur­spegl­ast vilji minn um að til­nefna hvorki né sam­þykkja Þorvald Gylfason til þess­ara starfa. Reyndar hafði mér aldrei dottið í hug sá mögu­leiki og eng­inn nefnt hann við mig.“

Kjarninn greindi frá því fyrr í vik­unni að starfs­maður fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins hefði komið þeim boðum til kollega sinna í nor­rænum fjár­mála­ráðu­neytum og til Nor­rænu ráð­herra­nefnd­ar­innar að ráðu­neytið gæti ekki stutt að Þor­valdur Gylfa­son, hag­fræði­pró­fessor við Háskóla Íslands, yrði ráð­inn sem rit­stjóri nor­ræna fræða­tíma­rits­ins Nor­dic Economic Policy Revi­ew.

Ástæðan sem ráðu­neytið gaf upp var sú að Þor­valdur hefði verið og væri enn, sam­kvæmt bestu vit­neskju ráðu­neyt­is­ins, for­maður stjórn­mála­afls. Hann væri því of póli­tískt virkur til þess að ráðu­neytið gæti stutt að hann yrði rit­stjóri fræða­tíma­rits­ins.

[adspot]Í því svari studd­ist ráðu­neytið við rangar upp­lýs­ing­ar, sem það segir að hafi verið að finna á Wikipedi­a-­síðu um Þor­vald. Ráðu­neytið hefur beðist vel­virð­ingar á því og leið­rétti rang­færsl­urnar um pró­fess­or­inn í tölvu­pósti, sem sendur var á þá sem fengu upp­runa­lega póst­inn, 29. nóv­em­ber.

Segir nafngreiningu starfsmanns ósmekklega

Í gær nafn­greindu nokkrir fjöl­miðlar starfs­mann ráðu­neyt­is­ins sem sendi póst­inn þar sem afstaða íslenska fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins var komið á fram­færi. Bjarni segir í stöðu­upp­færsluni að starfs­mað­ur­inn hafi verið settur í for­grunn og nafn­greindur á mjög ósmekk­legan hátt vegna ákvörð­unar sem var ekki á nokkurn hátt hans.

Hann segir að um ákvörð­un­ina sé fjallað í starfs­hópi sér­fræð­inga í fjár­mála­ráðu­neytum Norð­ur­land­anna. „Starfið er ekki aug­lýst, heldur fer fram umræða í hópnum um þá ein­stak­linga sem hvert ráðu­neyti leggur til. Engar sér­stakar hæfn­is­kröfur eru gerðar aðrar en þær að við­kom­andi njóti trausts allra sem að val­inu koma. Fulltrúi fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins lagði fyrir mína hönd til konu sem hefur mikla reynslu af störfum, rann­sóknum og skrifum á þessu fræða­sviði. Til vara voru tvö önnur. Hvorugt þeirra var Þor­valdur Gylfason.“

Bjarni leggur áherslu á að ákvörðun um ráðn­ingu sé tekin sam­hljóða og að kraf­ist sé sam­sinnis allra fyrir ráðn­ingu. „Ekkert slíkt sam­þykki lá fyrir þann 1. nóv­em­ber sl., þegar Þorvaldi á að hafa verið boðin vinnan, sem var áður en nafn hans hafði nokkurn tím­ann verið nefnt við full­trúa fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins. Reyndar er það svo að þegar ég heyrði af þeirri upp­á­stungu var ég afar skýr um að hann kæmi ekki til greina, enda tel ég að sýn og áherslur Þor­valdar Gylfa­sonar í efna­hags­málum geti engan veg­inn stutt við stefnu­mótun ráðu­neytis sem ég stýri.“

Sjálfsagt að mæta fyrir þingnefnd

Guð­mundur Andri Thorsson, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og nefnd­ar­maður í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd, hefur farið fram á að Bjarni mæti fyrir nefnd­ina og rök­styðji þar af hverju Þor­valdur hafi ekki fengið starfið. Bjarni segir það meira en sjálf­sagt að mæta og rekja sín sjón­ar­mið nánar. „Þá gefst mögu­lega tæki­færi til að fara nánar ofan í saumana á því hvers vegna ég tel Þorvald Gylfason tæp­lega eiga sam­leið með mínu ráðu­neyti í þessu verk­efni eða yfir­höfuð um önnur stefnu­mark­andi mál. Það verður þá í fyrsta sinn sem ég ræði um mögu­legt sam­starf við Þorvald Gylfason en ekki þarf að leggj­ast í mikla rann­sókn­ar­vinnu til að finna út hvaða hug Þor­valdur hefur borið til þeirra rík­is­stjórna sem ég hef setið í und­an­farin ár. Ef þörf krefur skal farið betur yfir það fyrir þing­nefnd.

Ég mun þá einnig kalla eftir því hvernig full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar telur það óeðli­leg afskipti af ráðn­ingu rit­stjóra Nordic Economic Policy Review að fjár­mála­ráðu­neytið sam­þykki ekki umyrða­laust hug­mynd­ina um Þorvald Gylfason. Ekki að ég efist um að hæfn­is­nefnd Sam­fylk­ing­ar­innar hafi borið Þorvald saman við aðra til­nefnda, en dugar það eitt og sér? Og hvers eiga aðrir þeir sem óform­leg til­laga var gerð um að gjalda?“

Ísland ekki eina ríkið sem ekki féllst á tillöguna

Bjarni segir að lokum að þegar til kast­anna hafi komið hafi Ísland ekki verið eina ríkið sem ekki féllst á til­lögu um ráðn­ingu Þor­valdar Gylfa­sonar.

Um það hefðu starfs­menn nor­rænu ráð­herra­nefnd­ar­innar upp­lýst Þorvald. „En telji hann sig eiga eitt­hvað inni vegna óupp­fylltra vænt­inga þarf hann að reka þau mál við þann sem sendi honum þetta meinta atvinnu­til­boð, - í full­komnu heim­ildar- og umboðs­leysi. Mögulega mun hann njóta full­tingis ein­hverra þing­manna Sam­fylk­ingar, jafn­vel Pírata, á þeirri leið. Spurning er bara hvort það væru ekki óeðli­leg afskipti af þeirra hálfu af ráðn­ingu í starf sem aldrei hefur verið aug­lýst.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

efnahagmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár