Þriðji hver flugfarþegi skilaði sér til landsins í gær

Á bil­inu 8-900 far­þegar komu til lands­ins í gegnum Kefla­vík­ur­flug­völl í gær en gert hafði verið ráð fyrir um 2600 far­þegum. Nýjar reglur ein­falda skimun á landa­mær­unum að sögn verk­efn­is­stjóra þar sem eitt gildir nú fyrir alla.

Þórólfur Guðnason og Páll Þórhallsson á upplýsingafundi dagsins.
Þórólfur Guðnason og Páll Þór­halls­son á upp­lýs­inga­fundi dags­ins. Mynd: Almannavarnir

Á bil­inu 8-900 far­þegar komu til lands­ins í gegnum Kefla­vík­ur­flug­völl í gær en gert hafði verið ráð fyrir um 2.600 far­þegum. Þetta sagði Páll Páll Þór­halls­son, verk­efn­is­stjóri í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu, á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna sem hald­inn var fyrr í dag. Margir far­þegar hafi einnig afbókað far með Norrænu sem varð til þess að mun færri far­þegar hafi komið til Seyð­is­fjarðar í morgun heldur en ráð­gert var.

„Tíminn verður auð­vitað að leiða í ljós að hvaða marki ferða­menn vilji koma til lands­ins undir þessum skil­málum. Við sjáum strax í ein­hverjum til­vikum að fólk hefur, í stað þess að afbóka, lengt ferð sína og taka þá til­lit til sótt­kví­ar­innar,“ sagði Páll þar að auki. Fyr­ir­komu­lagið á landa­mær­unum sé í stöðugri end­ur­skoðun og því ekki hægt að segja hversu lengi þær ráð­staf­anir sem nú eru í gildi vari.

Framkvæmdin gengið vel

„Ég held að það megi segja að fram­kvæmdin á þessum nýju reglum hafi í stórum dráttum gegnið vel. Þessar nýju reglur eru auð­vitað ein­fald­ari heldur en það sem gilti áður. Það fara allir sömu leið inn í landið, það er að segja í tvö­falda skimun og sótt­kví á milli og það er ekki neinn grein­ar­munur gerður á milli landa eins og áður var,“ sagði Páll um nýjar ráð­staf­anir á landa­mærum.

Fólkið sem vinnur á landa­mær­unum, hjúkr­un­ar­fræð­ingar við skimanir og lög­reglu­þjónar við landamæra­vörslu, eiga hrós skilið að mati Páls. Þetta fólk hafi til við­bótar við hefð­bundin störf þurft að sinna upp­lýs­inga­gjöf. „Þetta frá­bæra starfs­fólk sem við eigum á landa­mær­unum er auð­vitað að gera mun meira kannski heldur en ella, jafn­vel að leið­beina fólki um gisti­mögu­leika og benda á hvaða gist­ing upp­fylli kröfu til sótt­kvíar,“ sagði Páll.

Hnykkt á ábyrgð flugrekenda

Páll sagði far­þega vera mis­vel upp­lýsta við kom­una til lands­ins, það kunni að stafa af tungu­mála­örð­ug­leikum. Hann sagði að mikil vinna hefði verið lögð í að koma for­skrán­ingu og leið­bein­ingum á fleiri tungu­mál en íslensku og ensku. Þá er upp­lýs­inga­gjöf af hálfu flug­fé­laga mis­jöfn.

„Við sjáum það líka að það er mis­jafnt eftir flug­fé­lögum hversu vel upp­lýs­ingum hefur verið komið til skila til far­þega og í nýrri reglu­gerð heil­brigð­is­ráð­herra er hnykkt á ábyrgð flug­rek­enda að upp­lýsa far­þega um þessa kröfu um for­skrán­ingu,“ sagði Páll um upp­lýs­inga­gjöf­ina til far­þega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár