Fjármálaráðuneytið segist hafa stuðst við úrelta Wikipedia-síðu um Þorvald

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið seg­ist hafa stuðst við rangar upp­lýs­ingar á Wikipedia-síðu um Þorvald Gylfason, þegar það kom rang­færslum um stjórn­mála­þátt­töku hans til nor­rænna ráðu­neyta. Ráðu­neytið segir að virða eigi akademískt frelsi í hví­vetna.

Wikipedia-síða um Þorvald Gylfason. Þangað segist ráðuneytið hafa sótt sér rangar upplýsingar, sem það byggði á þegar það sagðist ekki geta stutt Þorvald í stöðu ritstjóra fræðatímarits.
Wikipedia-síða um Þorvald Gylfason. Þangað seg­ist ráðu­neytið hafa sótt sér rangar upp­lýs­ingar, sem það byggði á þegar það sagð­ist ekki geta stutt Þorvald í stöðu rit­stjóra fræða­tíma­rits. Mynd: Skjáskot af Wikipedia

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið studd­ist við rangar upp­lýs­ingar, sem það segir að hafi verið að finna á Wikipedia-síðu um Þorvald Gylfason hag­fræði­pró­fessor, þegar það kom boðum til sér­fræð­inga í starfs­hópi nor­rænu fjár­mála­ráðu­neyt­anna um að Þor­valdur væri of virkur í póli­tísku starfi til þess að Ísland gæti sam­þykkt að hann yrði rit­stjóri nor­ræna fræða­tíma­rits­ins Nordic Economic Policy Review, sem gefið er út af Norrænu ráð­herra­nefnd­inni.[links]

Þetta segir ráðu­neytið í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans, þar sem það biðst einnig vel­virð­ingar á því að hafa farið með rang­færslur um Þorvald í tölvu­pósti sem sendur var 11. nóv­em­ber í fyrra. Ráðu­neytið seg­ist einnig hafa leið­rétt rang­færsl­urnar um pró­fess­or­inn í tölvu­pósti, sem sendur var á þá sem fengu upp­runa­lega póst­inn, 29. nóv­em­ber.

Ráðu­neytið segir að upp­lýs­ing­unum um Þorvald sem finna mátti á Wikipedia hafi síðar verið breytt. Wikipedia er eins og flestir vita alfræði­rit á net­inu þar sem hver sem er getur breytt þeim upp­lýs­ingum sem þar koma fram um menn og mál­efni. Þar má gjarnan reka sig á úreltar upp­lýs­ingar.

Ekki borið undir fjármálaráðherra eða aðra á skrifstofu yfirstjórnar

Samkvæmt svari ráðu­neyt­is­ins var ákvörð­unin um að bera fram þessi sjón­ar­mið um Þorvald, að hann væri of póli­tískt virkur til að njóta stuðn­ings Íslands í starfið, „ekki borin undir ráð­herra né aðra á skrif­stofu yfir­stjórnar ráðu­neyt­is­ins.“

Ekki fékkst skýrt svar við því hvort sú ákvörðun að hafna Þorvaldi hefði verið tekin af starfs­manni ráðu­neyt­is­ins sem var í sam­skiptum við nor­ræna stýri­hóp­inn fyrir Íslands hönd eða ein­hverjum öðrum innan ráðu­neyt­is­ins.

„Virða beri í hvívetna akademískt frelsi fræðimanna“

Kjarninn spurði ráðu­neytið einnig að því hvort það væri mat ráðu­neyt­is­ins að stjórn­mála­þátt­taka íslenskra fræði­manna kæmi í veg fyrir að hægt væri að mæla með þeim í fræða­störf, á sam­nor­rænum vett­vangi eða ann­ars­staðar.

„Ekki eru til neinar reglur um að stjórn­mála­þátt­taka íslenskra fræði­manna eigi að hafa áhrif á það hvort þeir komi til álita í fræða­störf, hvorki á sam­nor­rænum vett­vangi né ann­ars­staðar. Líta verður svo á að virða beri í hví­vetna akademískt frelsi fræði­manna, en alvana­legt er að ein­stak­lingar sem tekið hafa þátt í stjórn­mála­starfi séu valdir til að taka þátt í alþjóða­sam­vinnu og það á vit­an­lega við um verk­efni á borð við rit­stjórn fræði­legs tíma­rits,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins.

Í tölvu­póst­sam­skiptum sér­fræð­ings ráðu­neyt­is­ins við nor­rænu kollega sína var þó skýrt tekið fram að stjórn­mála­þátt­taka Þorvalds væri ástæðan fyrir því að íslenska fjár­mála­ráðu­neytið teldi óvið­eig­andi að hann rit­stýrði NEPR.

Ekkert samhljóða samþykki lá fyrir

Kjarninn bað um útskýr­ingu frá ráðu­neyt­inu á því hvernig ráðn­ing­ar­ferli rit­stjóra NEPR er háttað, en eins og fram hefur komið telur Þor­valdur Gylfason sig hafa fengið fyr­ir­vara­lausa ráðn­ingu í starfið, vegna tölvu­póst­sam­skipta hans við emb­ætt­is­mann Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar 1. nóv­em­ber.

Ráðu­neytið segir að fjallað sé um ráðn­ingu á rit­stjóra tíma­rits­ins í starfs­hópi sér­fræð­inga í fjár­mála­ráðu­neytum Norð­ur­land­anna. „Vanalegt er að í aðdrag­anda slíkrar ákvörð­unar séu ýmsir nefndir til sög­unnar og svo var einnig í því til­viki sem hér um ræðir. Ákvörðun um ráðn­ingu er tekin sam­hljóða, þ.e. að kraf­ist er sam­sinnis allra fyrir ráðn­ingu. Ekkert slíkt sam­þykki lá fyrir þann 11. nóv­em­ber sl., en óform­leg skoð­ana­skipti áttu sér stað meðal þeirra sér­fræð­inga sem að ákvörð­un­inni koma,“ segir ráðu­neytið í svari sínu.

Þor­valdur hefur þann skiln­ing eftir sam­skipti sín við Norrænu ráð­herra­nefnd­ina að hann hafi verið ráð­inn til starfans. Emb­ætt­is­maður Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar skrif­aði til hans, 1. nóv­em­ber: „Við hlökkum til að hafa þig og þína sér­þekk­ingu með okkur í næstu útgáfum NEPR.“ Þá hafði Þor­valdur þegar fengið upp­lýs­ingar um kaup og kjör og sam­þykkt að taka að sér starfið.

Það er þó ljóst af sam­skiptum stýri­hóps nor­rænu ráðu­neyt­anna, sem úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál lét Þorvaldi í té með úrskurði sínum í síð­asta mán­uði, að eng­inn í þeim hópi leit svo á að búið væri að taka end­an­lega ákvörðun, enda þarf, eins og fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið hefur sagt frá, sam­hljóða sam­þykki allra aðild­ar­ríkj­anna til þess að ein­stak­lingur sér ráð­inn í þetta starf.

Þor­valdur segir að starfstil­boð sitt hafi verið dregið til baka munn­lega 13. nóv­em­ber af hálfur Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar, tveimur dögum eftir að rang­færslur um hann voru settar fram af hálfu sér­fræð­ings íslenska ráðu­neyt­is­ins og 16 dögum áður en þær voru leið­réttar.

Norræna ráðherranefndin svarar engu

Norræna ráð­herra­nefndin hefur ekki svarað erindi lög­manns Þorvalds Gylfa­sonar, sem sent var 27. nóv­em­ber. Þar seg­ist hann áskilja sér rétt til að sækja bætur vegna ólög­mætra slita á ráðn­ing­ar­sam­bandi, sem mynd­ast hafi með tölvu­póst­sam­skipt­unum þann 1. nóv­em­ber.


Norræna ráð­herra­nefndin svar­aði ekki heldur form­legum fyr­ir­spurnum frá úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál þegar nefndin var með gagna­beiðni Þorvalds til með­ferðar.

Athuga­semd rit­stjórnar: Frétt­inni hefur verið breytt. Í fyrri útgáfu hennar sagði að fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið hefði sagt að Wikipedia-síðu um Þorvald hefði verið upp­færð fyrir 29. nóv­em­ber, þegar það sendi leið­rétt­ingu til þeirra sem fengu rang­færslur ráðu­neyt­is­ins um Þorvald sendar. Hið rétta er að ráðu­neytið til­tók ekki sér­stak­lega hvenær Wikipedia-síð­unni hefði verið breytt, ein­ungis að henni hefði verið síðar breytt. Beðist er vel­virð­ingar á þessu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár