Fjármálaráðuneytið lagðist gegn ráðningu Þorvalds og sagði hann of virkan í pólitík

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið fór með rang­færslur um Þorvald Gylfason hag­fræði­pró­fessor við erlenda aðila er verið var að ræða hvort hann ætti að verða rit­stjóri nor­ræns fræða­tíma­rits. Þor­valdur kveðst vera með gilda ráðn­ingu í stöð­una.

Fjármála- og efnahagsráðuneytið sagði Þorvald Gylfason hagfræðiprófessor vera of virkan í stjórnmálum til að geta notið stuðnings í ritstjórastöðu samnorræns fræðatímarits.
Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið sagði Þorvald Gylfason hag­fræði­pró­fessor vera of virkan í stjórn­málum til að geta notið stuðn­ings í rit­stjóra­stöðu sam­nor­ræns fræða­tíma­rits.

Starfs­maður fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins kom þeim boðum til kollega sinna í nor­rænum fjár­mála­ráðu­neytum og til Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar að ráðu­neytið gæti ekki stutt að Þor­valdur Gylfason, hag­fræði­pró­fessor við Háskóla Íslands, yrði ráð­inn sem rit­stjóri nor­ræna fræða­tíma­rits­ins Nordic Economic Policy Review.

Ástæðan sem ráðu­neytið gaf upp var sú að Þor­valdur hefði verið og væri enn, sam­kvæmt bestu vit­neskju ráðu­neyt­is­ins, for­maður stjórn­mála­afls. Hann væri því of póli­tískt virkur til þess að ráðu­neytið gæti stutt að hann yrði rit­stjóri fræða­tíma­rits­ins.

Þarna fór starfs­maður ráðu­neyt­is­ins með rang­færslur um pró­fess­or­inn. Hann var vissu­lega á meðal stofn­enda Lýð­ræð­is­vakt­ar­innar árið 2013 og leiddi hana til Alþing­is­kosn­inga þar sem flokk­ur­inn hlaut eft­ir­minni­lega 2,46 pró­sent atkvæða, en hætti síðan í stjórn flokks­ins um haustið 2013 og hefur ekki gegnt trún­að­ar­störfum í stjórn­málum síðan.

Þor­valdur, sem fékk tölvu­póst­sam­skipti ráðu­neyt­is­ins við Norrænu ráð­herra­nefnd­ina afhent á grund­velli upp­lýs­inga­laga, segir við Kjarnann að ráðu­neytið hafi hvorki veitt sér stað­fest­ingu á að þessar rang­færslur um hann hafi verið leið­réttar, né afsök­un­ar­beiðni fyrir að hafa farið með rangt mál um sig.[links]

Hann telur ljóst að rang­færsl­urnar hafi komið í veg fyrir ráðn­ingu hans í rit­stjóra­starfið, sem Þor­valdur segir að hafi verið aft­ur­kölluð munn­lega 13. nóv­em­ber.

Kjarninn fjall­aði um úrskurð úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál í mál­inu síð­asta föstu­dag og hefur blaða­maður síðan fengið að sjá gögn sem tengj­ast mál­inu.

Þor­valdur segir að búið hafi verið að bjóða sér rit­stjóra­starfið og annað er ekki hægt að lesa út úr tölvu­póst­sam­skiptum hans við starfs­mann Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar, sem dag­sett eru 1. nóv­em­ber. 

Þann dag kann­aði starfs­maður Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar hvort Þor­valdur hefði kom­ist að nið­ur­stöðu um hvort hann vildi þiggja starf sem rit­stjóri Nordic Economic Policy Review. Það er fræða­tíma­rit sem nor­rænu fjár­mála­ráðu­neytin gefa út í sam­starfi við rann­sókna­stofn­un­ina Nor­dregio, sem heyrir undir Norrænu ráð­herra­nefnd­ina.

Þor­valdur þáði starfstil­boðið með tölvu­pósti eftir að hafa fengið upp­lýs­ingar um bæði starfs­að­stæður og kaup og kjör og fékk í kjöl­farið svar til baka frá starfs­manni Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar, þar sem honum var þakkað fyrir að þiggja starfið.

„Við hlökkum til að hafa þig og þína sér­þekk­ingu með okkur í næstu útgáfum NEPR,“ sagði emb­ætt­is­maður Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar í pósti til Þorvalds, sem segir enga fyr­ir­vara hafa verið á ráðn­ingu sinni.

Vildu frekar leggja til annan Íslending síðar

Eftir þetta fóru þó í hönd umræður á milli nor­rænu fjár­mála­ráðu­neyt­anna um hver skyldi verða ráð­inn næsti rit­stjóri tíma­rits­ins, en öll ríkin þurfa að vera sam­hljóða um ráðn­ingu rit­stjóra NEPR. Íslenska ráðu­neytið hefur sagt Þorvaldi í bréfa­skiptum þeirra á milli að hann hafi aldrei verið form­lega ráð­inn í starfið, það sé mis­skiln­ingur. Hann hafi ein­ungis verið einn margra sem komu til greina.

Þann 4. nóv­em­ber sendi starfs­maður finnska fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins póst á kollega sína á hinum Norð­ur­lönd­unum þar sem hann sagði að nú væri kom­inn annar kandídat í starfið, Þor­valdur Gylfason. Miðað við fyr­ir­sögn tölvu­póst­sam­skipt­anna stóð valið þá á milli hans og finnsks pró­fess­ors, Jukka Pekk­ar­inen.

Emb­ætt­is­maður í íslenska ráðu­neyt­inu svar­aði full­trúa finnska ráðu­neyt­is­ins per­sónu­lega 7. nóv­em­ber og sagði að Ísland gæti ekki stutt Þorvald í rit­stjóra­starfið, án þess þó að rök­styðja af hverju.

„Við tókum vel í upp­á­stung­una um að rit­stjóra­starfið myndi að nokkru leyti fær­ast á milli land­anna, en við vildum frekar leggja til Íslend­ing í starfið síðar fremur en að styðja Gylfason núna,“ sagði íslenski emb­ætt­is­mað­ur­inn.

Fulltrúi finnska ráðu­neyt­is­ins svar­aði þessu sama dag og sagð­ist „mjög undr­andi“ á þess­ari afstöðu Íslands. „Teljið þið í fjár­mála­ráðu­neyt­inu að hann væri ekki hæfur og fær um að stýra NEPR?“ spurði finnski emb­ætt­is­mað­ur­inn, sem sagð­ist enn fremur hafa skoðað opin­berar upp­lýs­ingar um Þorvald og út frá þeim talið hann mjög góðan kandídat í starfið.

„Það er rétt - hann nýtur ekki okkar stuðn­ings,“ svar­aði íslenski emb­ætt­is­mað­ur­inn þeim finnska morg­un­inn eftir, 8. nóv­em­ber, og bætti því við að íslenska ráðu­neytið gæti stutt hinn finnska Pekk­ar­inen í stöð­una.

Auk þess­ara einka­skila­boða til finnska emb­ætt­is­manns­ins kom íslenska ráðu­neytið afstöðu sinni áleiðis til allra sem fengu upp­runa­lega tölvu­póst­inn frá finnska ráðu­neyt­inu.

Í þeim pósti, sem sendur var 8. nóv­em­ber, segir að eftir smá umræður í ráðu­neyt­inu hafi verið kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Ísland myndi fremur styðja Pekk­ar­inen í stöð­una. „Við teljum að Gylfason sé ekki rétti kandídat­inn,“ segir í svari íslenska emb­ætt­is­manns­ins.

Þessi afstaða kom full­trúa danska ráðu­neyt­is­ins mjög á óvart, rétt eins og þeim finnska, og bað sá danski íslenska ráðu­neytið um að færa rök fyrir afstöðu sinni. „Á pappír virð­ist hann vera afar hæfur umsækj­andi. Við vildum gjarnan geta tekið upp­lýsta ákvörðun hérna,“ segir danski emb­ætt­is­mað­ur­inn í tölvu­pósti 8. nóv­em­ber.

Efn­is­legt svar um ástæð­urnar fyrir því að Ísland gæti ekki stutt stutt Þorvald barst svo frá íslenska emb­ætt­is­mann­inum þann 11. nóv­em­ber:

„Þor­valdur er virkur í stjórn­málum. Hann hefur verið, og er ennþá eftir því sem við best vitum, for­maður Lýð­ræð­is­vakt­ar­innar. Við teljum ekki við­eig­andi að mann­eskja sem er svo virk í stjórn­málum, hvað þá ein­hver sem veitir stjórn­mála­afli for­mennsku, sé rit­stjóri NEPR,“ segir starfs­maður ráðu­neyt­is­ins, sem stingur síðan upp á því að Friðrik Már Bald­urs­son, for­seti við­skipta­deildar Háskól­ans í Reykja­vík, væri heppi­legri í starfið.

Starfstilboð afturkallað munnlega

Þessir tölvu­póstar sem Kjarninn hefur séð varpa ekki nán­ara ljósi á það sem fór nor­rænu ráðu­neyt­anna á milli varð­andi mögu­lega ráðn­ingu Þorvalds í starfið, en þetta eru einu tölvu­póst­sam­skiptin sem úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál gerði ráðu­neyt­inu að afhenda Þorvaldi.

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið seg­ist hafa leið­rétt rang­færsl­urnar sem settar voru fram um póli­tíska þátt­töku pró­fess­ors­ins, en hann sjálfur hefur sem áður segir ekki fengið stað­fest­ingu á því, þrátt fyrir að lög­maður hans hafi sér­stak­lega óskað eftir því við ráðu­neytið að upp­lýst verði um dag­setn­ingar slíkra sam­skipta.

Þann 13. nóv­em­ber, tveimur dögum eftir að starfs­maður fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins sagði erlendum kol­legum sínum frá að Ísland gæti ekki stutt Þorvald í starfið vegna stjórn­mála­þátt­töku hans, seg­ist Þor­valdur hafa fengið sím­tal frá starfs­manni Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar þar sem honum var tjáð að hann yrði, þrátt fyrir að hafa þegar þegið starfstil­boð, ekki ráð­inn næsti rit­stjóri NEPR.

Þetta segir Þor­valdur að geti ekki stað­ist, laga­lega, þar sem tölvu­póst­sam­skipti hans við Norrænu ráð­herra­nefnd­ina um atvinnu­boðið hafi verið ígildi bind­andi samn­ings.

Í bréfi sem lög­maður hans sendi Norrænu ráð­herra­nefnd­inni 27. nóv­em­ber segir að Þor­valdur áskilji sér rétt til þess að sækja skaða­bætur til Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar vegna ólög­mætra slita á ráðn­ing­ar­sam­bandi og vegna orð­spor­s­missis.

Norræna ráð­herra­nefndin er hvött til þess að stinga upp á sátt vegna deil­unnar, en við þessu bréfi hefur ekki verið brugð­ist.

Samkvæmt upp­lýs­ingum sem Kjarninn fékk frá Norrænu ráð­herra­nefnd­inni verður Harry Flam, hag­fræði­pró­fessor við Stokk­hólms­há­skóla, næsti rit­stjóri Nordic Economic Policy Review.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár