Taldi tölvupósta ráðuneytis hafa komið í veg fyrir að hann fengi norræna ritstjórastöðu

Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál gerði fjár­mála­ráðu­neyt­inu að afhenda tölvu­pósta um ein­stak­ling sem sótt­ist eftir því að verða rit­stjóri nor­ræns fræða­tíma­rits. Sá hinn sami taldi póstana hafa spillt fyrir sér, en ráðu­neytið segir að svo sé ekki.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu var gert að láta umbeðna tölvupósta af hendi.
Fjármála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu var gert að láta umbeðna tölvu­pósta af hendi. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ein­stak­lingur sem taldi tölvu­pósta frá starfs­manni fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins til starfs­manna fjár­mála­ráðu­neyta á hinum Norð­ur­lönd­unum og ann­arra hafa komið í veg fyrir ráðn­ingu sína í rit­stjóra­starf fræði­tíma­rits, hefur fengið aðgang að umræddum tölvu­póstum.

Þetta segir fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans, en ráðu­neyt­inu var gert að afhenda tölvu­póstana á grund­velli upp­lýs­inga­laga. Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál komst að nið­ur­stöðu í mál­inu 20. maí og var úrskurð­ur­inn birtur fyrr í vik­unni.

Tölvu­póst­sam­skiptin áttu sér stað 4.-11. nóv­em­ber í fyrra og sam­kvæmt yfir­ferð nefnd­ar­innar á efni þeirra er ljóst að sá sem fjallað var um í póst­unum frá starfs­manni fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins var á meðal þeirra sem komu til greina í starf sem rit­stjóri fræða­tíma­rits­ins Nordic Economic Policy Review. Tíma­ritið er sam­starfs­verk­efni nor­rænu fjár­mála­ráðu­neyt­anna og nor­rænu rann­sókna­stofn­un­ar­innar Nor­dregio.

Tölvu­póst­arnir voru sendir frá starfs­manni ráðu­neyt­is­ins á starfs­menn finnska, norska og danska fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins, auk starfs­manna Nor­dregio.

Í kæru til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál sagði að kær­and­inn teldi ráðu­neytið hafa átt í sam­skiptum um per­sónu sína með ótil­hlýði­legum hætti og sett fram rang­færslur, sem hafi orðið til þess að ráðn­ing hans í rit­stjóra­starf var dregin til baka.

Ráðuneytið segir ekki rétt að búið hafi verið að ráða einstaklinginn

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið segir að það sé búið að leið­rétta upp­lýs­ingar sem settar hafi verið fram um kær­anda, sem í ljós hefði komið að væru úreltar.

Ráðu­neytið neit­aði þó að afhenda kær­anda afrit tölvu­póstana sem hann óskaði eftir að fá að sjá og vís­aði til þess að traust og trún­aður þyrfti að gilda um sam­skipti við Norrænu ráð­herra­nefnd­ina um mál­efni af þessum toga, rétt eins og um sam­skipti við aðrar fjöl­þjóða­stofn­anir.

Sagði ráðu­neytið að þeir mik­il­vægu almanna­hags­munir sem fælust í að tryggja góð sam­skipti og gagn­kvæmt traust í alþjóða­sam­starfi stæðu í vegi fyrir að kær­anda yrði veittur aðgangur að póst­unum.

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið sagð­ist einnig hafa leið­rétt þann skiln­ing kær­anda að hann hefði verið ráð­inn í starfið. Ráðu­neytið segir að kær­andi hafi bara verið einn af mörgum sem komið hafi til greina í stöð­una og að starfstil­boð eða ráðn­ing í stöðu rit­stjóra Nordic Economic Policy Review þurfi sam­hljóða sam­þykkt aðild­ar­ríkj­anna.

Ríkur réttur til að sjá hvernig stjórnvöld miðla upplýsingum til erlendra aðila í tengslum við atvinnutækifæri

Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál segir í nið­ur­stöðu sinni um málið að ekki verði annað séð, af þeim reglum sem Norð­ur­löndin hafa komið sér saman um að eigi að gilda um aðgengi að gögnum Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar, en að umsækj­endur um störf hjá nefnd­inni og öðrum sam­bæri­legum stofn­unum eigi almennt rétt til aðgangs að gögnum sem varða þá sjálfa.

Þá er enn fremur ekk­ert í umbeðnum gögnum sem gefur til­efni til að ætla að raun­veru­legt tjón muni hljót­ast af því að umbeðin gögn verði afhent kær­anda, að mati úrskurð­ar­nefnd­ar­innar, sem segir hann eiga ríkan rétt til aðgangs að gögnum um það hvernig íslensk stjórn­völd miðla upp­lýs­ingum um hann til erlendra aðila í tengslum við hugs­an­leg atvinnu­tæki­færi á grund­velli meg­in­reglu 1. mgr. 14. gr. upp­lýs­inga­laga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

alþjóðasamstarf

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár