Langur hali alþjóðasamninga bíður birtingar í Stjórnartíðindum

Síðustu 12 ár er áætlað að um 300 alþjóða­samn­ingar hafi verið full­giltir af íslenskum stjórn­völdum, án þess að aug­lýs­ing um full­gild­ingu hafi birst í Stjórn­ar­tíð­indum. Utan­rík­is­ráðu­neytið ætlar að vinna þetta upp á þremur árum.

Ætla má að um 300 alþjóða­samn­ingar frá árunum 2007-2018 bíði þess að vera birtir í C-deild Stjórn­ar­tíð­inda, þrátt fyrir að hafa verið full­giltir af íslenskum stjórn­völdum.

Þetta má rekja til þess að dregið var veru­lega úr fjár­munum til þess að birta slíka samn­inga eftir efna­hags­hrun, sam­kvæmt svari Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar utan­ríkis- og þró­un­ar­sam­vinnu­ráð­herra við fyr­ir­spurn Andrésar Inga Jóns­sonar, þing­manns utan flokka, sem birt var á vef Alþingis í gær.

For­gangröðun við birt­ingu þeirra var end­ur­skoðuð þannig að á áhersla hefur verið lögð á að birta samn­inga þar sem birt­ing væri nauð­syn­leg for­senda rétt­ar­á­hrifa.

„Þannig hafa t.d. samn­ingar um upp­lýs­inga­skipti og tví­skött­un­ar­mál verið birtir, samn­ingur um rétt­indi fatl­aðs fólks og nýverið var birtur samn­ingur um ráð­staf­anir vegna útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu og Evrópska efna­hags­svæð­inu,“ segir í svari ráð­herra, en 10-12 ár geta liðið frá full­gild­ingu til aug­lýs­ingar í Stjórn­ar­tíð­indum ef birt­ingin hefur ekki bein rétt­ar­á­hrif.

Þarf að vera á hreinu hvaða reglur eru í gildi

Andrés Ingi segir í sam­tali við Kjarnann að málið snú­ist um að almenn­ingur viti hvaða reglur séu í gildi. „Á meðan að alþjóða­samn­ingar eru óbirtir þá er það ekki alveg á hreinu,“ segir þing­mað­ur­inn.

Í svari ráð­herra við fyr­ir­spurn Andrésar kemur einnig fram að fyrr á árinu hafi verið ákveðið að ráð­ast í átaks­verk­efni til að ljúka birt­ingu upp­safn­aðra samn­inga á næstu þremur árum, en aðgerða­á­ætlun verk­efn­is­ins hafi taf­ist vegna heims­far­ald­urs­ins.

Andrés Ingi segir að sam­þykkt hafi verið að ráð­ast í átaks­verk­efnið á rík­is­stjórn­ar­fundi um mán­uði eftir að hann lagði fram fyr­ir­spurn sína, en þá hafði hann fengið ábend­ingu um að ráðu­neytið væri komið með ansi langan hala af óbirtum full­gildum alþjóða­skuld­bind­ingum á eftir sér, sem vænt­an­lega hefði verið að valda ein­hverjum vand­ræðum hjá fólki, þá sér­stak­lega lög­mönnum.

Samkvæmt svari ráð­herra virð­ast samn­ing­arnir þó hættir að safn­ast upp í þeim mæli sem verið hefur, en fram kemur að unnið sé að því að birta alla samn­inga sem full­giltir hafa verið frá 2019 og að stefnt sé að því að ljúka þeirri vinnu næsta haust.

Að með­al­tali eru um 25-30 samn­ingar full­giltir á ári hverju, en síð­ustu tólf árum hafa ekki nema 5-7 verið birtir í Stjórn­ar­tíð­indum árlega að með­al­tali. Hinir, sem ekki hefur þótt brýnt að birta vegna rétt­ar­á­hrifa, hafa fengið að bíða.

Í lögum um Stjórn­ar­tíð­indi og Lög­birt­inga­blað er kveðið á um að fyr­ir­mælum sem fel­ast í lögum, aug­lýs­ingum, reglu­gerðum, sam­þykktum eða öðrum slíkum ákvæðum almenns efnis megi ekki beita fyrr en birt­ing í Stjórn­ar­tíð­indum fari fram, nema þau geymi ákvæði sem séu alger­lega einka­mála­eðlis og aðilar hafi komið sér saman um að skipti þeirra skuli fara eftir óbirtum fyr­ir­mælum. Óbirt fyr­ir­mæli binda þó stjórn­völd frá gild­is­töku þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

alþjóðasamstarf

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár