Norðurlöndin ættu að móta sameiginlega stefnu gagnvart auknum áhuga Kína

Björn Bjarna­son fyrr­ver­andi ráð­herra hefur skilað af sér skýrslu um öryggis- og utan­rík­is­mál til utan­rík­is­ráð­herra Norð­ur­land­anna. Þar leggur hann til 14 til­lögur um nor­rænt sam­starf til fram­tíðar.

Björn Bjarnason afhendir hér Guðlaugi Þór Þórðarsyni skýrsluna.
Björn Bjarna­son afhendir hér Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni skýrsl­una. Mynd: Utanríkis- og þróunarsamvinnuráðuneytið

Norð­ur­löndin ættu að koma sér saman um sam­eig­in­lega stefnu í lofts­lags­málum og beita sér fyrir henni á alþjóða­vett­vangi, þar sem það hefur oft og tíðum sýnt sig að sam­eig­in­legt nor­rænt átak innan alþjóða­stofn­ana getur hjálpað til við að setja mál á dag­skrá.

Einnig ættu Norð­ur­löndin að vinna sam­eig­in­lega að stefnu og nálgun varð­andi norð­ur­slóða­stefnu Kína, þar sem auk­inn áhugi Kínverja á norð­ur­slóðum mun hafa áskor­anir í för með sér fyrir örygg­is­mál í heims­hlut­anum.

Þetta er á meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu um öryggis- og utan­rík­is­mál Norð­ur­land­anna sem Björn Bjarna­son, fyrr­ver­andi ráð­herra, hefur skilað af sér til nor­rænu utan­rík­is­ráð­herr­anna.

Björn var feng­inn til þess að skrifa skýrsl­una í des­em­ber í fyrra, en þá var ára­tugur frá því að Thorvald Stol­ten­berg, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra Noregs var feng­inn til að vinna sam­bæri­lega skýrslu.

Í frétta­til­kynn­ingu frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu segir að stórum hluta þeirra til­lagna sem settar voru fram í Stol­ten­berg-skýrsl­unni hafi verið hrint í fram­kvæmd. Haft er eftir Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni utan­ríkis- og þró­un­ar­sam­vinnu­ráð­herra að hann von­ist til þess að til­lögur Björns kom­ist í fram­kvæmd á næstu mán­uðum og árum.

Samstarf um viðbrögð við framtíðarfaröldrum

Birni var falið að að beina athygli sinni að lofts­lags­breyt­ingum, fjöl­þáttaógnum og net­ör­yggi auk leiða til að efla fjöl­þjóða­sam­starf og virð­ingu fyrir alþjóða­reglum við skýrslu­gerð­ina. Lagði hann fram 14 til­lögur í heild­ina, sem settar eru fram með knöppum hætti líkt og utan­rík­is­ráð­herrar Norð­ur­land­anna ósk­uðu eftir.

Á meðal til­lagna, auk þeirra sem nefndar eru hér í inn­gangi, er að hið opin­bera og einka­að­ilar vinni saman á sviði orku­skipta, Norð­ur­löndin vinni saman að haf­rann­sóknum til þess að sporn gegn áhrifum lofts­lags­breyt­inga og hafi einnig sam­starf um við­brögð við heims­f­ar­öldrum fram­tíðar.

Hvað það síð­ast­nefnda varðar leggur Björn til að rann­saka skuli hvernig Norð­ur­löndin gætu komið sér upp örygg­is­birgða­kerfi fyrir heil­brigð­is­geir­ann og mögu­leik­ann á því að koma upp sam­nor­rænum birgðum fyrir lyf og nauð­syn­legar heil­brigð­is­vörur og -tæki.

Í inn­gangi skýrsl­unnar kemur fram að við gerð hennar hafi Björn og Jóna Sólveig Elín­ar­dóttir, sem stýrir deild um alþjóð­leg öryggis- og varn­ar­mála­sam­starf í ráðu­neyt­inu, átt yfir 80 fundi með nor­rænum stjórn­mála­mönnum, diplómötum, sér­fræð­ingum og fræði­mönnum þar sem þau hafi fundið fyrir miklum og ein­lægum áhuga á að styrkja nor­rænt sam­starf innan þess mála­flokks sem skýrslan tekur til.

„Ef skýrslan verður til þess að auka nor­rænt sam­starf á sviði utan­ríkis- og örygg­is­mála er hún skref til bjart­ari fram­tíðar,“ segir Björn í inn­gangi skýrsl­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

alþjóðasamstarf

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár