100 þúsund krónur á ári séu „margar hafragrautsskálar“

Í fyr­ir­spurn um fátækt vitn­aði þing­maður Flokks fólks­ins í sam­tal við ein­stætt for­eldri sem borðar hafra­graut seinni hluta mán­aðar vegna fátæktar. Hækkun barna­bóta mik­il­væg fátækum að mati fjár­mála­ráð­herra, hún væri gríð­ar­leg mæld í hafra­grauts­skálum.

Bjarni og Guðmundur Ingi ræddu fátækt í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag.
Bjarni og Guð­mundur Ingi ræddu fátækt í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag. Mynd: Kjarninn/Samsett

Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, þing­maður Flokks fólks­ins, spurði hvort ekki væri hægt að finna fjár­magn til þess að útrýma sára­fá­tækt hér á landi líkt og tek­ist hefði að finna fjár­magn fyrir þær efna­hags­að­gerðir sem ráð­ist hefur verið í í kjöl­far kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Í fyr­ir­spurn sinni til Bjarna Bene­dikts­sonar vitn­aði Guð­mundur í fyrri umræður þar sem Bjarni spurði hvar ætti að fá fjár­magnið til þess að útrýma fátækt.

Guð­mundur taldi upp nokkrar þeirra aðgerða sem rík­is­stjórnin hefur ráð­ist í vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins sem kostað hafa um 80 millj­arða á síð­ustu mán­uðum. Hann tal­aði einnig sér­stak­lega um ferða­menn sem þurfa að dvelja á sótt­kví­ar­hót­eli með fæði en kostn­að­ur­inn er greiddur úr rík­is­sjóði.

„Þegar þessi útgjöld voru sett á, kom hæst­virtur fjár­mála­ráð­herra hér upp í ræðupúlt og spurði hvar í ósköp­unum við eigum að fá pen­inga til að gera þetta? Ég minn­ist þess ekki,“ sagði Guð­mundur meðal ann­ars í ræðu sinni.

Verðmætum bjargað með efnahagsaðgerðum

Bjarni tók undir það að hér byggju of margir sem ekki ná endum saman. Stuðn­ingur við þennan hóp væri samt sem áður til staðar. „En við höfum verið að styðja betur við bakið á þessum hópum. Við höfum gert það með ýmsum hætti. Við getum nefnt sem dæmi fjóra millj­arða sem við tókum sér­stak­lega til hliðar í þess­ari rík­is­stjórn í þessum til­gangi á þessu kjör­tíma­bili og það hefur verið þannig að við höfum hækkað um næstum því helm­ing stuðn­ing úr almanna­trygg­inga­kerf­inu á und­an­förnum tæpum ára­tug og kaup­máttur bóta hefur aldrei verið hærri en í dag, aldrei.“

Þá benti Bjarni á að efna­hags­að­gerð­irnar hefðu verið fjár­magn­aðar með lánum. „Við teljum að með því að gera það þá séum við að bjarga verð­mætum þannig að ég held að það verði bara að horfa til þess að við erum að reka rík­is­sjóð hér með geig­væn­legum halla og hug­myndir um að afnema allar tekju­teng­ingar, svo dæmi sé tekið, kosta tugi millj­arða,“ bætti hann við.

Hann sagði lausnin væri að halda áfram að skapa mikil verð­mæti og að kraft­mikið atvinnu­líf hér á landi væri for­senda þess að hægt væri að stoppa í götin í vel­ferð­ar­kerf­inu.

Hafragrautur á morgnanna og hafragrautur síðdegis

Guð­mundur Ingi sagði fjóra millj­arða í mála­flokk­inn vera dropa í hafið. Í kjöl­farið vitn­aði þing­mað­ur­inn í sam­tal sitt við ein­stætt for­eldri: „Einstætt for­eldri sagði við mig nýlega: „Hafra­grautur á morgn­ana og hafra­grautur seinni­part­inn eftir fimmt­ánda hvers mán­aðar.“ Þá er fjár­magnið búið og þá getur við­kom­andi, eftir að hafa borgað leigu og önnur útgjöld, ekki haft efni á öðru fæði og hann kór­ón­aði það og sagði: „Helgar? Þá er hafra­grautur líka. En þá notum við þurrk­aða ávexti, rús­ínur og annað og kanil til að fá til­breyt­ingu og lúxus.““

Að mati Guð­mundar hafi engum verð­mætum verið bjargað með því að greiða fyrir dvöl ferða­manna á sótt­kví­ar­hót­elum sem hingað koma. Betur færi á því að bjóða fátækum ein­stak­lingum að dvelja á hót­eli í fimm daga og borða ókeypis.

Margar hafragrautsskálar

Bjarni benti á að snúið væri að leggja mat á stöð­una út frá ein­stöku dæmi. „Maður vill skilja hvað er á bak við. Maður vill skilja hverjar eru tekj­urnar, hverjir eru tekju­straum­arnir, hvort við­kom­andi er virkur á atvinnu­mark­aði eða ekki?“

Til að nefna eitt dæmi, sagði Bjarni, þá hefði rík­is­stjórnin breytt barna­bótum þannig að ein­stætt for­eldri með tvö börn og 300 þús­und krónur í mán­að­ar­tekjur fengi nú meira en 100 þús­und krónur til við­bótar í barna­bætur á ári.

„Ef að hátt­virtur þing­maður vill mæla það í hafra­grauts­skálum þá eru þetta margar hafra­grauts­skálar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

efnahagmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár