Fermetraverð nýrra íbúða á höfuðborgarsvæðinu lækkar milli mánaða

Í nýrri mán­að­ar­skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar kemur fram að fer­metra­verð nýrra íbúða hafi lækkað um fjögur pró­sent milli mán­aða. Munur á verði nýrra íbúða og eldri hefur farið vax­andi á und­an­förnum þremur árum.

Þrátt fyrir verðlækkun milli mánaða hefur fermetraverð nýbyggðra íbúða hækkað um átta prósent á síðustu tólf mánuðum.
Þrátt fyrir verð­lækkun milli mán­aða hefur fer­metra­verð nýbyggðra íbúða hækkað um átta pró­sent á síð­ustu tólf mán­uðum. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fer­metra­verð nýrra íbúða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu lækk­aði um tæp fjögur pró­sent á milli mæl­inga í mars og apríl. Þetta kemur fram í nýrri mán­að­ar­skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar um hús­næð­is­mark­að­inn. Lækkun á verði eldri íbúða nam tæpum tveimur pró­sentum.

Lækkun á fer­metra­verði nýrra íbúða var enn meiri í nágrenni höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, um níu pró­sent. Fer­metra­verð eldri íbúða þar stóð hins vegar í stað. Á lands­byggð­inni lækk­aði verð nýrra íbúða um tvö pró­sent en verð eldri íbúða hækk­aði um 5,5 pró­sent.

Á síð­ustu tólf mán­uðum hefur íbúða­verð hækkað um 3,4 pró­sent á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og hækkun á raun­verði nemur því um einu pró­senti. Í nágrenni höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins hefur verðið hækkað um 1,4 pró­sent sem þýðir að raun­verðið hefur lækkað um eitt pró­sent. Á lands­byggð­inni hefur íbúða­verð hækkað um 2,5 pró­sent og raun­verð því staðið í stað.

Þegar tólf mán­aða tíma­bil er skoðað sést að fer­metra­verð nýbyggðra íbúða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur hækkað hraðar heldur en eldri íbúða. Verð­hækk­unin á tíma­bil­inu nemur átta pró­sentum á nýjum íbúðum en 2,5 pró­sentum á eldri íbúðum. Í nágranna­sveit­ar­fé­lög­unum hækk­aði fer­metra­verð nýbyggðra íbúða um 3,5 pró­sent en eldri íbúða um 7 pró­sent.

Á síð­ustu tólf mán­uðum varð mest breyt­ing á verði eldri íbúða á lands­byggð­inni, fer­metra­verðið hefur hækkað um tíu pró­sent á tíma­bil­inu. Fer­metra­verð eldri íbúða á lands­byggð­inni lækk­aði um 6,5 pró­sent á sama tíma.

Þróun meðalstærðar hefur áhrif á verðmun

Í skýrsl­unni segir að munur á fer­metra­verði nýrra íbúða og ann­arra íbúða hafi verið vax­andi und­an­farin þrjú ár. Í upp­hafi árs 2017 mun­aði sex pró­sentum á fer­metra­verði nýrra íbúða og eldri íbúða en nú mælist mun­ur­inn 19 pró­sent. Þar gæti minnk­andi stærð íbúða haft áhrif.

„Þróun á með­al­stærð nýbyggðra íbúða kann að útskýra að ein­hverju leyti hvers vegna fer­metra­verð þeirra hefur hækkað eins og raun ber vitni. Fer­metra­verð íbúða er mis­mun­andi eftir stærð og er að með­al­tali hærra fyrir minni íbúðir. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur með­al­stærð nýrra íbúða farið úr því að vera um 120 fm árin 2013 ­ 2017 í tæp­lega 100 fm á und­an­förnum þremur árum.“

Svipaða sögu er að segja af þró­un­inni á lands­byggð­inni. Með­al­stærð íbúða hefur farið úr 120 fer­metrum í tæp­lega 80. Verð­munur á nýbyggðum íbúðum og eldri íbúðum mælist meiri á lands­byggð­inni heldur en á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og nágrenni þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

efnahagmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár