Þórólfur leggur níu valkosti fyrir stjórnvöld

„Áhrifa­rík­asta leiðin til að koma í veg fyrir að veiran ber­ist hingað til lands að mínu mati er að skima alla far­þega á landa­mærum, krefja þá um sótt­kví í 4-6 daga og skima þá aftur að þeim tíma liðnum,“ segir Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

Þó að almennt megi full­yrða að skimun á landa­mærum hafi reynst árang­urs­rík til að koma í veg fyrir að smit ber­ist hingað hafa tvö afbrigði veirunnar náð að kom­ast fram hjá skimun­inni og valda hér far­aldri með alvar­legum heilsu­fars­legum afleið­ingum, skrifar Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir, í minn­is­blaði sínu til heil­brigð­is­ráð­herra um fram­hald aðgerða á landa­mærum vegna far­ald­urs COVID-19. Í því fer Þórólfur yfir níu aðgerðir sem mest hafa verið til umræðu og leggur sitt mat á hverja og eina þeirra.

1. Aðgangur ferðamanna til landsins verði óheftur.

Mat Þórólfs: „Ég mæli því alls ekki með þessum kosti á þess­ari stundu sér­stak­lega í ljósi þess að far­ald­ur­inn er í miklum vexti víða í heim­inum. Miklar líkur eru á að þessi ráð­stöfun leiði til útbreidds far­ald­urs sem erfitt yrði að ráða við og myndi lík­lega valda miklu álagi á heil­brigð­is­kerfið með alvar­legum afleið­ingum.“

2. Beitt verði ítrustu hömlum á komur einstaklinga hingað til lands.

Mat Þórólfs: „Ég tel því að slíkar aðgerðir muni ekki koma að fullu í veg fyrir dreif­ingu veirunnar hingað og muni ekki koma í veg fyrir dreif­ingu hennar inn­an­lands.“

3. Öllum einstaklingum sem koma hingað til lands verði gert að fara í 14 daga sóttkví án skimunar.

Mat Þórólfs: „Þessar aðgerðir myndu því minnka veru­lega líkur á dreif­ingu veirunnar hingað til lands en ekki koma í veg fyrir slíkt.“

4. Skimun allra á landamærum við komuna hingað til lands.

Mat Þórólfs: „Þessi aðgerð mun því minnka líkur á að smit ber­ist hingað til lands en ekki koma í veg fyrir slíkt.“

5. Skimun allra á landamærum, sóttkví í 4-6 daga og í framhaldi af því sýnataka 2.

Mat Þórólfs: „Þessi aðgerð er að lík­indum mjög áhrifa­rík í því skyni að lág­marka áhætt­una á því að veiran ber­ist hingað til lands. Fjöldi ferða­manna hingað til lands myndi tak­markast við skimun­ar­getu.“

6. Skimun allra á landamærum sem koma frá áhættusvæðum en einstaklingum frá lág áhættusvæðum yrði sleppt.

Mat Þórólfs: „Þessi aðferð er vel fram­kvæm­an­leg í dag m.t.t. afkasta­getu skimun­ar­innar og minnkar líkur á að veiran kom­ist hingað til lands en kemur ekki í veg fyrir slíkt. Hins vegar tak­markast fjöldi ferða­manna við afkasta­getu skimun­ar­innar.“

7. Skimun allra einstaklinga á landamærum, sóttkví í 5-7 daga fyrir einstaklinga frá áhættusvæðum og síðan sýnataka 2 hjá einstaklingum í sóttkví.

Mat Þórólfs: „Þessi kostur er því álit­legur en fjöldi ferða­manna tak­markast við skimun­ar­getu.“

8. Sóttkví allra í 7 daga sem lýkur með sýnatöku.

Mat Þórólfs: „Þessi kostur er ekki eins álit­legur og ýmsir aðrir kostir og fjöldi ferða­manna tak­markast við skimun­ar­getu.“

9. Skimun einstaklinga frá lág áhættusvæðum en 14 daga sóttkví hjá einstaklingum frá áhættusvæðum.

Mat Þórólfs: „Þessi aðgerð dregur úr líkum á að veiran ber­ist hingað til lands en er ekki eins áhrifa­rík eins og sumar aðrar aðgerðir sem nefndar hafa verið. Farþegum frá áhættu­svæðum myndi lík­lega fækka en erfitt yrði að flokka far­þega eftir svæðum.“

Þórólfur bendir að lokum á að allar tak­mark­andi aðgerðir á landa­mærum minnki áhætt­una á því að SARS-CoV-2, veiran sem veldur COVID-19, ber­ist hingað til lands en að engin aðgerð komi alger­lega í veg fyrir að það geti gerst. Skimun á landa­mærum getur tak­markað fjölda ferða­manna og getur jafn­fram dregið úr líkum á að veiran ber­ist hingað. „Áhrifa­rík­asta leiðin til að koma í veg fyrir að veiran ber­ist hingað til lands að mínu mati er að skima alla far­þega á landa­mærum, krefja þá um sótt­kví í 4-6 daga og skima þá aftur að þeim tíma liðnum.“

Segir Þórólfur að aðrar aðferðir hafi mis­mun­andi kosti og galla en séu ekki jafn áhrifa­ríkar.

Tak­mark­anir sem nú eru á land­mærum Íslands gilda fram í miðjan sept­em­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár