Var ekki heimilt að veita fé til einkaaðila vegna sumarúrræða fyrir námsmenn

Hluti fjár­fram­laga til háskóla vegna sum­ar­úr­ræða stjórn­valda fyrir náms­menn fór í að nið­ur­greiða nám­skeið end­ur­mennt­un­ar­deilda háskól­anna. Félag atvinnu­rek­enda hefur sent form­lega kvörtun til ESA vegna þessa.

Sumarúrræði stjórnvalda fyrir námsmenn er liður í tímabundnu átaki stjórnvalda til að skapa náms- og atvinnutækifæri fyrir einstaklinga.
Sum­ar­úr­ræði stjórn­valda fyrir náms­menn er liður í tíma­bundnu átaki stjórn­valda til að skapa náms- og atvinnu­tæki­færi fyrir ein­stak­linga. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Mennta­mála­ráðu­neytið er bundið af fjár­lögum um fjár­veit­ingar til fram­halds- og háskóla og því aðeins heim­ilt að veita því fjár­magni sem lagt var inn í sum­ar­úr­ræði stjórn­valda fyrir náms­menn til þeirra.

Þetta kemur fram í svari frá ráðu­neyt­inu við fyr­ir­spurn Kjarnans, þar sem meðal ann­ars var spurt hvers vegna sum­ar­úr­ræði stjórn­valda ná ekki til einka­að­ila á fræðslu­mark­aði.

Í svar­inu segir: „Í frum­varpi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra til fjár­auka­laga 2020 II voru lagðar til breyt­ingar á 3. og 4. gr. fjár­laga 2020, um að hækka fjár­heim­ildir til fram­halds­skóla um 300 m.kr. og til háskóla­stigs um 500 m.kr., með það að mark­miði að setja upp sér­tæk námsúr­ræði sum­arið 2020. Ráðu­neytið er bundið af fjár­lögum um fjár­veit­ingar til fram­halds- og háskóla og aðeins er heim­ilt að veita fjár­magni til þeirra skv. hækkun á fjár­heim­ildum mál­efna­sviða 20 og 21 í fjár­lögum. Því var sá mögu­leiki að láta fjár­magn ætlað fram­halds­skólum og háskólum renna til ann­arra fræðslu­að­ila ekki til staðar, enda er starf­semi þeirra fjár­mögnuð með öðrum hætti, t.d. í gegnum fræðslu­sjóð og 2 ma.kr. fjár­veit­ingu félags­mála­ráðu­neyt­is­ins vegna vinnu­mark­aðsúr­ræða. Vinnu­mála­stofnun kemur að fram­kvæmd vinnu­mark­aðsúr­ræða og sér um fram­kvæmd þjón­ustu við atvinnu­leit­endur. Sú stofnun leitar eftir þörfum til ýmissa fræðslu­að­ila s.s. símennt­un­ar­mið­stöðva og einka­að­ila sem bjóða upp á náms- og ráð­gjafa­þjón­ustu.“

[adspot]

Líkt og fram kemur í svar­inu hækk­uðu fjár­fram­lög til háskóla­stigs um 500 millj­ónir króna vegna sum­ar­úr­ræða stjórn­valda fyrir náms­menn. Pen­ing­unum var ætlað að efla nám á sum­armiss­eri bæði fyrir þá sem nú þegar eru í námi og fyrir þá sem hyggja á háskóla­nám eða vilja efla færni sína. Þegar náms­fram­boðið var svo kynnt var ljóst að hluti af fjár­fram­lög­unum hefði verið veitt inn í end­ur­mennt­un­ar­deildir háskól­anna. Það hefur gert end­ur­mennt­un­ar­deild­unum kleift að bjóða upp á nám­skeið í sumar á nið­ur­greiddu verði. Námskeið sem áður kost­uðu tugi þús­unda kosta nú þrjú þús­und krónur.

Nú hefur Félag atvinnu­rek­enda (FA) sent form­lega kvörtun til ESA, Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA, vegna nið­ur­greiðslu stjórn­valda á nám­skeiðum sem haldin eru í end­ur­menntund­ar­deild­unum. Ástæðan er sú að end­ur­mennt­un­ar­deild­irnar eru í beinni sam­keppni við einka­rekin fræðslu­fyr­ir­tæki. End­ur­mennt­un­ar­deild­irnar hafa til þessa ekki notið opin­berra fjár­fram­laga og tekjur þeirra eru fyrst og fremst í formi nám­skeiðs­gjalda.

[links]

„FA færir að því rök í kvörtun­inni til ESA að útfærsla nið­ur­greiðsl­unnar brjóti gegn 61. grein samn­ings­ins um Evrópska efna­hags­svæðið, en hún leggur bann við sam­keppn­is­hamlandi rík­is­styrkjum, sem hafa áhrif á við­skipti milli aðild­ar­ríkj­anna. Áður­nefnd nám­skeið opin­berra og/eða rík­is­styrktra háskóla eru meðal ann­ars í beinni sam­keppni við nám­skeið fyr­ir­tækja í öðrum EES-ríkjum, sem haldin eru á net­inu fyrir íslenska við­skipta­vini eða í sam­starfi við íslensk fræðslu­fyr­ir­tæki,“ segir í til­kynn­ingu á vef FA. Þá segir einnig í til­kynn­ingu að styrkirnir hafi ekki verið bornir undir ESA af hálfu stjórn­valda líkt og til dæmis ferða­gjöfin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

efnahagmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár