Einkafyrirtæki á fræðslumarkaði vilja aðild að sumarúrræðum stjórnvalda fyrir námsmenn

Námskeið á vegum end­ur­mennt­un­ar­deilda háskól­anna eru end­ur­greidd í sumar vegna sum­ar­úr­ræða stjórn­valda. For­svars­menn tveggja einka­fyr­ir­tækja sem starfa í sama geira segj­ast ekki hafa tök á að keppa við verðin sem háskól­arnir geta nú boðið upp á.

Fjölbreytt námskeið standa fólki til boða í sumar og haust í endurmenntunardeildum háskólanna.
Fjöl­breytt nám­skeið standa fólki til boða í sumar og haust í end­ur­mennt­un­ar­deildum háskól­anna. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Algjör­lega er horft fram hjá einka­fyr­ir­tækjum sem sér­hæfa sig í nám­skeiða­haldi og fræðslu­miðlun í sum­ar­úr­ræðum stjórn­valda er lúta að námi. Þetta er mat tveggja fram­kvæmda­stjóra slíkra fyr­ir­tækja.

Háskól­arnir fá um 500 millj­ónir króna vegna sér­stakra sum­ar­úr­ræða fyrir náms­menn. Hluti þess fjár­magns fer svo til end­ur­mennt­un­ar­deilda háskól­anna.. Vegna þessa geta skól­arnir boðið upp á nám­skeið fyrir þrjú þús­und krónur, nám­skeið sem áður gátu kostað tugi þús­unda. Nám­skeiðin eru sér­stak­lega ætluð ungum náms­mönnum sem og þeim sem hafa misst atvinnu sína í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum en í raun og veru getur hver sem er sótt nám­skeiðin. Meðal skól­anna sem bjóða upp á nám­skeiðin eru Háskóli Íslands, Háskól­inn í Reykja­vík, Háskól­inn á Akureyri, Land­bún­að­ar­há­skóli Íslands og Lista­há­skóli Íslands.

Endurmenntunardeildir í samkeppni við einkamarkaðinn

„Okkur finnst þetta dálítið sér­stakt, að það sé í raun og veru verið að halda þessu innan rík­is­ins. Eins og við horfum á þetta þá er auð­vitað nógu erfitt að reka einka­fyr­ir­tæki með öllum þeim áföllum sem hafa dunið yfir síð­ustu mán­uði. Okkar rekstur hér í mars og apríl, við stöðv­uðum hann út af til­mælum stjórn­valda,“ segir Jón Jósafat Björns­son fram­kvæmda­stjóri Dale Carnegie á Íslandi.

Hann seg­ist vera orð­inn dálítið óþreyju­fullur í bið sinni eftir aðgerðum stjórn­valda sem gætu nýst í rekstr­inum, brú­ar­lán eða lok­un­ar­styrki. „Svo kemur að því að mennta ungt fólk og aðra yfir sum­arið og þá ger­ast hlut­irnir mjög hratt. Menn færa fé inn í ráðu­neytið og snúa sér ein­göngu að háskól­anum sem aftur lætur fjár­magnið flæða inn í end­ur­mennt­un­ar­deildir sínar til að keppa beint við einka­mark­að­inn, það er auð­vitað sér­stök staða.“

Hann segir að stuðn­ingur við menntun sé af hinu góða en að sam­ráð við þá sem þekkja til í geir­anum hafi vantað: „Það sem er klár­lega grát­legt í þessu fyrst að menn fóru af stað í þetta sem er auð­vitað frá­bært, hvers vegna var ekki sest niður með öllum aðilum? Hvers vegna treysta menn ekki öðrum til að koma fram með fram­boð sem vantar?“

Getur ekki keppt við verð endurmenntunar

Ingrid Kuhlman fram­kvæmda­stjóri hjá Þekk­ing­ar­miðlun tekur í sama streng. „Auðvitað styð ég það að við gerum allt sem í okkar valdi stendur til að styrkja atvinnu­leit­endur og fólk sem vill bæta við sig þekk­ingu. Vanda­málin við þessi úrræði er að þau standa bara háskól­unum til boða,“ segir Ingrid.

End­ur­mennt­un­ar­deild­irnar bjóða upp á fjöl­breytt nám­skeið og fram­boð þeirra skar­ast að ein­hverju leyti við fram­boð einka­fyr­ir­tækj­anna, líkt og Ingrid bendir á: „Þetta eru meðal ann­ars nám­skeið um jákvæða sál­fræði, um breyt­inga­stjórnun og um árang­urs­ríka fram­komu. Þetta eru allt nám­skeið sem einka­að­ilar bjóða líka upp á. Nú er ég með fram­kom­unám­skeið og um teym­is­vinnu. Það er alveg ljóst að við sem einka­að­ilar á fræðslu­mark­aði getum ekki keppt við þessi verð. Það er alveg ljóst að ég mun ekki bjóða upp á nein nám­skeið í jákvæðri sál­fræði í bili.“

„Okkur finnst þetta ekki sann­gjarnt og þetta skekkir sam­keppn­ina,“ segir Ingrid sem vonar að hugs­un­ar­leysi hjá stjórn­völdum hafi ráðið því að einka­fyr­ir­tæki hafi ekki fengið að vera með í ráðum.

Hugsað fyrir þá sem lenda í atvinnuvandræðum

Kristín Jóns­dóttir Njarðvík, end­ur­mennt­un­ar­stjóri hjá End­ur­menntun Háskóla Íslands, hefur þetta að segja um fram­boð nám­skeiða hjá End­ur­menntun HÍ: „Þetta eru úrræði stjórn­valda og þau setja 500 millj­ónir í háskóla­stigið eins og komið hefur fram. Þeir setja 500 millj­ónir í háskól­ana til þess að koma með úrræði fyrir háskóla­nema, bæði þá sem eru í háskól­anum, þá sem hyggj­ast fara í háskóla­nám og þá líka fyrir fólk sem er á kross­götum atvinnu­lega séð og myndi vilja breyta að ein­hverju leyti um starfs­vett­vang.“

Spurð að því hvort þetta sé ekki und­ar­legt í sam­keppn­is­legu til­liti svarar Kristín: „Þetta er ákvörðun stjórn­valda, það er ekki mitt að hafa skoðun á því, við tökum bara þátt í þessu með Háskóla Íslands. Í sjálfu sér finnst mér þetta gott fram­tak hjá stjórn­völdum til að koma til móts við þennan hóp.“

Aðspurð um það hvort að nám­skeiðin geti einnig hentað þeim sem eru í hluta­starfi segir Kristín: „Þetta er hugsað svona fyrir þá sem eru að lenda í vand­ræðum í vinnu, geta verið í hluta­starfi eða verið búin að missa vinn­una eða sjá fram á að missa hana.“

Námskeiðin standa öllum til boða

Þrátt fyrir að nám­skeiðin sem falla undir sum­ar­úr­ræði stjórn­valda séu sér­stak­lega ætluð

„ungum námsönnum og þeim sem misstu atvinnu sína í Covid-19 far­aldr­inum,“

þá standa þau hverjum sem er til boða. Til dæmis stendur

í nám­skeiðs­lýs­ingu fyrir nám­skeiðið Gagna­söfn og SQL

hjá End­ur­menntun Háskóla Íslands að það sé „Tilvalið fyrir starfs­menn hug­bún­að­ar­fyr­ir­tækja eða –deilda sem ekki eru tölv­un­ar­fræð­ingar. Hentar t.d. einnig við­skipta­fræð­ingum sem vinna með mikið gagna­magn og vilja kanna kosti þess að færa gögnin og vinnslu þeirra yfir í „alvöru“ gagna­safns­kerfi.“

Hinir skól­arnir bjóða líka upp á nám­skeið sem höfðað gætu sér­stak­lega til fag­fólks. Hjá Opna háskól­anum sem er end­ur­mennt­un­ar­deild Háskól­ans í Reykja­vík er boðið upp á nám­skeiðið Að leiða mark­aðs­starf í gegnum krefj­andi tíma­bil. Í nám­skeiðs­lýs­ingu segir um nám­skeiðið: „Nám­skeiðið hentar ein­stak­lingum sem vilja styrkja stöðu sína. Einnig þeim stjórn­endum sem þurfa að takast á við áskor­anir á eft­ir­spurna­hlið fyr­ir­tækja. Fyrir sér­fræð­inga í mark­aðs­málum og/eða stjórn­endur og starfs­menn fyr­ir­tækja sem eru undir áhrifum Covid-krís­unnar.“

Þessi nám­skeið eru ein­ingis hluti þeirra nám­skeiða sem í boði eru hjá end­ur­mennt­un­ar­deildum háskól­anna. Einnig eru í boði nám­skeið sem sér­stak­lega munu nýt­ast náms­fólki í und­ir­bún­ingi fyrir háskóla­nám svo dæmi séu tekin. Öll nám­skeið sem eru hluti af fram­boði end­ur­mennt­un­ar­deilda vegna sum­ar­úr­ræða stjórn­valda kosta, líkt og áður segir, þrjú þús­und krónur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár