„Ég gerði öllum ljóst að það var mjög rangt að gera þetta“

Lars Calmfors, sænskur hag­fræði­pró­fessor sem var rit­stjóri fræða­tíma­rits­ins NEPR, mót­mælti afstöðu íslenska fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins til Þorvalds Gylfa­sonar. Hann segir póli­tískar rök­semdir ekki eiga að hafa nokkur áhrif á ráðn­ingu í stöð­una.

„Jafnvel þó það væri rétt að hann væri for­maður stjórn­mála­flokks þá hefði það ekki átt að hafa nein áhrif,“ segir sænski hag­fræði­pró­fess­or­inn Lars Calmfors, um mál Þorvalds Gylfa­sonar, sem íslenska fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið sagð­ist ekki geta stutt í stöðu rit­stjóra sam­nor­ræna fræða­tíma­rits­ins Nordic Economic Policy Review (NEPR) í nóv­em­ber síð­ast­liðnum.

Lars Calmfors var rit­stjóri NEPR frá 2017 og þar til síð­asta haust og mælti hann sjálfur með því að Þor­valdur yrði eft­ir­maður sinn í starfi. Hann er pró­fessor við Stokk­hólms­há­skóla og hefur meðal ann­ars setið í Nóbels­nefnd­inni í hag­fræði, verið ráð­gjafi í sænska fjár­mála­ráðu­neyt­inu og veitt rík­is­fjár­mála­ráði Sví­þjóðar for­mennsku á löngum ferli sínum.[links]

Calmfors segir að póli­tískar skoð­anir eða stjórn­mála­þátt­taka fræði­manna eigi ekki að hafa áhrif á fram­gang þeirra í akademísk störf og seg­ist hafa mót­mælt þeirri afstöðu sem Ólafur Heiðar Helgason, sér­fræð­ingur íslenska fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins, setti fram í tölvu­pósti 11. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn.

Í póst­inum sagði að Þor­valdur þætti of pólítískt virkur að mati ráðu­neyt­is­ins til að við­eig­andi væri að hann yrði næsti rit­stjóri tíma­rits­ins. Einnig var farið með rang­færslur um stjórn­mála­þátt­töku hans, eins og fjallað hefur verið um í Kjarn­anum í vik­unni.

[adspot]

Sænski pró­fess­or­inn segir að aðrir í nor­ræna stýri­hópnum sem tekur ákvörðun um ráðn­ingu rit­stjóra NEPR, full­trúar nor­rænna fjár­mála­ráðu­neyta, hafi einnig verið óánægðir með þá afstöðu íslenska ráðu­neyt­is­ins að hafna Þorvaldi á grund­velli stjórn­mála­þátt­töku hans.

Hreinskiptar umræður á fundi eftir að afstaða Íslands varð ljós

Fundur var hald­inn hjá stýri­hópnum skömmu eftir að afstaða Íslands um að hafna Þorvaldi lá fyrir og segir Calmfors að þar hafi farið fram hrein­skiptar umræður.

„Ég gerði öllum ljóst að það var mjög rangt að gera þetta. Við getum ekki látið póli­tískar rök­semdir hafa áhrif, þetta er akademískt starf,“ segir pró­fess­or­inn og bætir við að á þessum fundi hafi full­trúi frá íslenska ráðu­neyt­inu játað munn­lega að hafa farið með rang­færslur um Þorvald.

Þessi umdeilda afstaða Íslands til Þorvalds setti nor­ræna stýri­hóp­inn í nokkurn vanda, enda er það hefð þar inn­an­borðs að öll nor­rænu ríkin þurfi að kom­ast að sam­eig­in­legri nið­ur­stöðu um ráðn­ingu rit­stjóra NEPR.

Þó að svo sé var starfs­maður Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar búinn að bjóða Þorvaldi starfið og Þor­valdur búinn að sam­þykkja starfstil­boðið. En afstaða Íslands varð þess vald­andi að aft­ur­kalla þurfti ráðn­ingu Þorvalds þann 13. nóv­em­ber. Þor­valdur leitar nú réttar síns, enda telur hann ráðn­ing­una góða og gilda.

Kjarninn hafði í gær sam­band við Anders Hedberg, starfs­mann Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar sem gekk frá ráðn­ingu Þorvalds og spurði af hverju Þorvaldi hefði verið gert starfstil­boð fyrst ekki var komið sam­róma sam­þykki í nor­ræna stýri­hópnum.

Hedberg svar­aði því til að allar „fyr­ir­spurnir og kröfur“ vegna máls­ins ættu að bein­ast til fjár­mála­ráðu­neyt­anna fimm sem hafa veg og vanda að útgáfu NEPR, enda bæru þau ábyrgð á ráðn­ing­unni. Haft var eftir sama manni í kvöld­fréttum RÚV í gær að hann vissi ekki um nein önnur dæmi þess að fjár­mála­ráðu­neyti hefðu sett sig upp á móti ráðn­ingu í rit­stjóra­starfið.

Vildu hvorki ráða Dana né Svía

Svo spólað sé aðeins til baka, þá var tíma­rit­inu sem um ræðir komið á lagg­irnar árið 2009 undir hatti Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar, en það á þó rætur sínar að rekja til sænsks tíma­rits sem hét Swedish Economic Policy Review, sem Calmfors sjálfur kom að því að stofna á tíunda ára­tug síð­ustu aldar.

Fyrstu árin voru rit­stjórar NEPR ráðnir árlega til þess að hafa umsjón með efn­is­tök­unum, eftir því hver þau voru, en það skipu­lag gaf ekki sér­lega góða raun, að sögn Calmfors. Því var ákveðið að byrja að ráða yfir­rit­stjóra til þriggja ára í senn til þess að betri yfir­sýn feng­ist yfir útgáf­una.

Fyrstur í röð­inni var danskur hag­fræð­ingur, Torben Andersen, sem starfar við Árósa­há­skóla. Hann var ráð­inn var í starfið frá 2014 til 2017. Þá tók Calmfors sjálfur við og þegar leit hófst að eft­ir­manni hans síð­asta haust var vilji til þess að reyna að láta rit­stjóra­stöð­una ganga á milli land­anna og hvorki ráða Svía né Dana í starfið að þessu sinni. Búið var að reyna að fá bæði finnska og norska fræði­menn í starfið, án árang­urs, segir Calmfors.

Þá var reynt að finna Íslend­ing og stakk Calmfors upp á Þorvaldi, sem hann hafði haft kynni af, en Þor­valdur starf­aði um langt ára­bil sem rann­sókna­fé­lagi við Stokk­hólms­há­skóla. Calmfors taldi hann hæfan til þess að taka rit­stjóra­hlut­verkið að sér og seg­ist hafa mikið álit á honum sem fræði­manni. En afstaða íslenska ráðu­neyt­is­ins til Þorvalds varð síðan ljós og á end­anum varð nið­ur­staðan sú að áfram verður Svíi sem stýrir NEPR.

Harry Flam hefur verið ráð­inn sem yfir­rit­stjóri til næstu þriggja ára, en sá starfar með Calmfors við Alþjóða­hag­fræði­stofnun Stokk­hólms­há­skóla. Calmfors segir að nýi rit­stjór­inn hafi heyrt af afstöðu Íslands til ráðn­ingu Þorvalds áður en honum sjálfum var boðið starfið.

„Ég held að hann hafi ekki verið ánægður með að heyra af því sem átti sér stað,“ segir Calmfors.

Vonar að svipað gæti ekki átt sér stað í Svíþjóð

Blaða­maður spyr hvort hann telji mögu­legt að sænsk stjórn­völd myndu leggj­ast gegn ráðn­ingu þar­lends fræði­manns í þessa stöðu, eða svip­aða, vegna póli­tískra skoð­ana eða stjórn­mála­þátt­töku umrædds fræði­manns, eins og íslenska ráðu­neytið gerði í til­felli Þorvalds.

„Ég vona að það sé ómögu­legt, en ég myndi þó ekki segja að ég væri 100 pró­sent viss,“ segir Calmfors. Hann bætir við að það flæki málin að Norræna ráð­herra­nefndin sé þegar allt kemur til alls póli­tísk ein­ing, sem hafi umsjón með útgáfu fræða­tíma­rits sem hafi það yfir­lýsta mark­mið að birta rann­sóknir sem geti nýst nor­rænu ríkj­unum við opin­bera stefnu­mótun.

„Það er mjög sér­stakt, flest fræði­rit eru gefin út með sjálf­stæð­ari hætti,“ segir Calmfors.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár