Calmfors segir Dagens Nyheter að málið gæti skaðað trúverðugleika NEPR

Sænska blaðið Dagens Nyheter fjallar um ráðn­ing­ar­mál Þorvalds Gylfa­sonar á vef sínum í kvöld og hefur eftir sænska hag­fræði­pró­fess­ornum Lars Calmfors að málið gæti rýrt trú­verð­ug­leika fræða­tíma­rits­ins NEPR.

Sænska dag­blaðið Dagens Nyheter fjallar um mál Þorvalds Gylfa­sonar á vef sínum í kvöld, en í umfjöllun blaðs­ins er málið rakið og meðal ann­ars rætt við sænska hag­fræði­pró­fess­or­inn Lars Calmfors.

Hann segir blaða­manni Dagens Nyheter að sú afstaða Íslands að leggj­ast gegn því að Þor­valdur komi til greina í rit­stjóra­stöð­una á póli­tískum for­sendum geti skaðað trú­verð­ug­leika fræði­tíma­rits­ins Nordic Economic Policy Review (NEPR).[links]

Einnig er rætt við Þorvald sjálfan, sem segir frá því að Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hafi sjálfur við­ur­kennt að hafa hvorki viljað til­nefna sig né styðja í rit­stjóra­stöð­una. „Þau treysta ekki hag­fræð­ingi sem hefur verið gagn­rýn­inn á efna­hags­stefnu þeirra,“ ef haft eftir Þorvaldi.

Calmfors, sem eins og fram hefur komið lagði til nafn Þorvalds í stöð­una, segir að honum þyki óboð­legt að íslenska ráðu­neytið hafi neitað að styðja Þorvald í stöð­una á þeim for­sendum að hann hafi verið virkur í stjórn­málum, valið eigi að fara fram á fag­legum for­sendum, en ekki póli­tískum.

[adspot]

Þess má geta að Calmfors hefur beðið Bjarna Bene­dikts­son um afsök­un­ar­beiðni, fyrir að halda því fram að mögu­lega hafi hann viljað koma Þorvaldi að í rit­stjóra­stöð­una af því að þeir væru gamlir kunn­ingjar. Hann sagði Kvenna­blað­inu í dag að hann hefði aldrei áður á 50 ára starfs­ferli verið sak­aður um kunn­ingja­spill­ingu.

Dagens Nyheter rekur að málið hafi vakið mikla athygli á Íslandi og ræðir við Guðmund Andra Thorsson, þing­mann Sam­fylk­ingar, sem óskaði eftir því að fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra kæmi fyrir stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd þings­ins í dag.

Blaða­maður spurði Guðmund Andra að því hvort hann ætl­aði sér að leggja fram van­trausts­yf­ir­lýs­ingu á hendur Bjarna og Guð­mundur Andri svar­aði því til að það hefði hann ekki gert, ennþá, en fyr­ir­sögn frétt­ar­innar í sænska blað­inu er þó „Ráðn­ing­ar­hneyksli skekur rík­is­stjórn Íslands“.

Það er þó ef til vill ofsögum sagt, enda hefur Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra lýst því yfir að eðli­legt sé að fjár­mála­ráð­herrar Norð­ur­land­anna hafi sín áhrif á það hver verður rit­stjóri þessa hag­fræði­tíma­rits og stjórn­ar­liðar í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd virt­ust almennt líta á þetta mál sem storm í vatns­glasi, á fundi nefnd­ar­innar í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár