Finnski fulltrúinn í stýrihópnum myndi ekki hleypa stjórnmálamönnum nærri NEPR

Markku Stenborg, sem er full­trúi finnska fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins í stýri­hópi vegna útgáfu fræði­rits­ins Nordic Economic Policy Review, segir að hann myndi ekki leyfa stjórn­mála­mönnum að hafa afskipti af stjórnun rits­ins.

Í finnska fjármálaráðuneytinu er Markku Stenborg fulltrúi í stýrihópi sem sér um útgáfu ritsins NEPR. Hann myndi ekki hleypa stjórnmálamönnum þar nærri.
Í finnska fjár­mála­ráðu­neyt­inu er Markku Stenborg full­trúi í stýri­hópi sem sér um útgáfu rits­ins NEPR. Hann myndi ekki hleypa stjórn­mála­mönnum þar nærri. Mynd: Finnska fjármálaráðuneytið

Sér­fræð­ingur finnska fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins, sem situr fyrir hönd þess í nor­rænum stýri­hópi vegna útgáfu fræða­tíma­rits­ins Nordic Economic Policy Review (NEPR), segir að hann myndi ekki leyfa stjórn­mála­mönnum að hafa afskipti af stjórnun rits­ins.[links]

Þetta er á meðal þess sem kemur fram í svörum Finnans, Markku Stenborg, við fyr­ir­spurn Kjarnans sem einnig hefur verið send á full­trúa hinna Norð­ur­land­anna í stýri­hópnum.

Hann seg­ist einn vera í for­svari fyrir Finnland á þessum vett­vangi og að hann upp­lifi það sem svo að dóm­greind hans sé treyst innan ráðu­neyt­is­ins og hann vilji ekki „angra neinn“ annan í ráðu­neyt­inu með verk­efn­unum sem honum eru falin.

„Ég myndi heldur ekki láta stjórn­mála­menn­ina skipta sér af (e. inter­fere with) stjórnun NEPR. Þeir geta sagt sitt álit á ýmsum póli­tískum vett­vangi, eða mögu­lega í nefnd­inni sem starfar fyrir ofan NEPR,“ segir Stenborg.

[adspot]

„Ég per­sónu­lega myndi aldrei mis­muna neinum á grund­velli hans eða hennar póli­tísku eða ann­arra sam­bæri­legra skoð­ana. Að mínu mati er helsta hæfn­is­við­miðið að rit­stjór­inn sé fær um að finna réttu rann­sóknateymin og leiða skrif þeirra, svo úr verði hágæða gagn­reyndar greinar sem geti nýst við stefnu­mótun,“ segir Stenborg, sem segir jafn­framt að Þor­valdur Gylfason hag­fræði­pró­fessor hafi litið út fyrir að vera mjög hæfur kandídat í starfið.

Segist ekki enn vita af hverju Ísland lagðist gegn Þorvaldi

Blaða­maður spurði hvað honum þætti um þá afstöðu sem Ísland setti fram innan stýri­hóps­ins til mögu­legrar ráðn­ingar Þorvalds í stöð­una. Markku seg­ist ekki enn vita af hverju Ísland hafi lagst gegn ráðn­ingu hans.

„Ég vil ekki geta mér til um það sem lá að baki. Ég man að þau nefndu að hann væri virkur í stjórn­ar­and­stöðu og hefði eitt sinn leitt stjórn­mála­flokk.“

Markku segir að honum rámi líka í umræður í stýri­hópnum, þar sem fall­ist hafi verið á að „virkur stjórn­mála­maður væri ef til vill ekki best til þess fall­inn að vera rit­stjóri,“ í ljósi þess að rit­inu sé ætlað að dreifa og túlka fræði­legar greinar á sviði rann­sókna og stefnu­mót­unar.

„Í umræð­unum tókum við skýrt fram að við myndum ekki mis­muna neinum á grund­velli, t.d., hans eða hennar póli­tísku við­horfum. Á hinn bog­inn, þá vildum við ná sam­hljóða ákvörðun, ef það væri mögu­legt,“ segir Stenborg.

Ísland lagði til konu í starfið

Blaða­maður spurði hann einnig að því hvort það væri rétt að full­trúar íslenskar ráðu­neyt­is­ins hefðu lagt fram til­lögu um að ráða konu í stöð­una, eins og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra sagði á fimmtu­dag. Það segir hann alveg hár­rétt.

„Íslensk kona sem starfar í Banda­ríkj­unum var um stund til umhugs­unar, en við töldum hana ekki full­kom­inn kandídat þar sem hún býr langt í burtu og er senni­lega ekki með næga þekk­ingu á nor­ræna rann­sókna­svið­inu, er með fremur þrönga fræð­a­r­eynslu og stuttan lista rit­rýndra greina,“ segir Stenborg.

Telur fyrirvara um samþykki hafa verið á starfstilboði til Þorvalds

Í lokin þá svarar hann spurn­ingu blaða­manns um það af hverju hann telji að Þorvaldi Gylfa­syni hafi verið boðið starf rit­stjóra, áður en sam­þykki stýri­hóps­ins lá fyrir.

Stenborg segir að hann hafi ekki túlkað það svo að Þor­valdur hafi fengið fyr­ir­vara­laust starfstil­boð, heldur hafi hann tekið því sem svo, er hann heyrði af því að Þor­valdur væri til í taka að sér starfið, að til­boðið til hans verið háð sam­þykki stýri­hóps­ins.

Stenborg fékk meld­ingu frá Anders Hedberg, starfs­manni Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar, um að Þor­valdur væri klár í að taka að sér starfið og bað Hedberg finnska ráðu­neyt­is­mann­inn um að koma þeim boðum áfram til stýri­hóps­ins, sem hann gerði svo.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár