Katrín: Ráðningarferlið snýst um að löndin komi sér saman og geta allir fjármálaráðherrarnir haft skoðun

For­sæt­is­ráð­herra sagði á þingi í dag að stóra málið varð­andi ráðn­ing­ar­ferlið fyrir rit­stjóra Nor­dic Economic Policy Revi­ew sner­ist um að Norð­ur­löndin kæmu sér saman og þar gætu allir fjár­mála­ráð­herrar ríkj­anna haft skoðun á því hver yrði skip­aður.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag að ráðn­ing rit­stjóra tíma­rits­ins Nor­dic Economic Policy Revi­ew, eins og svo margar fleiri sem heyra undir Norrænu ráð­herra­nefnd­ina, færi þannig fram að löndin kæmu sér saman um ein­stak­ling í emb­ættin og væru störfin ekki endi­lega aug­lýst – eins og við átti í þessu til­tekna til­felli þar sem staðan var ekki aug­lýst.

Kjarninn greindi frá því í vik­unni að starfs­maður fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins hefði komið þeim boðum til kollega sinna í nor­rænum fjár­mála­ráðu­neytum og til Nor­rænu ráð­herra­nefnd­ar­innar að ráðu­neytið gæti ekki stutt að Þor­valdur Gylfa­son, hag­fræði­pró­fessor við Háskóla Íslands, yrði ráð­inn sem rit­stjóri nor­ræna fræða­tíma­rits­ins Nor­dic Economic Policy Revi­ew.

[links]Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, spurði for­sæt­is­ráð­herr­ann út í málið í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma í dag. „Í ámát­legri til­raun til að verja afskipti sín í ráðn­ingu Þor­steins Gylfa­sonar sem rit­stjóra nor­ræns fræða­tíma­rits um hag­fræði sem segir fjár­mála­mála­ráð­herra: „Þetta er ekki óháð fræði­rit heldur er því ætlað að styðja við stefnu­mótun nor­rænu ríkj­anna í efna­hags­málum.“ Þessi full­yrð­ing er röng og ekki í sam­ræmi við mark­mið blaðs­ins sem snýr að því að auka aðgengi að nýjum upp­lýs­ingum og rann­sóknum af efna­hags­málum á Norð­ur­lönd­unum með birt­ingu rit­rýnda fræði­greina. Í svari sínu við­ur­kennir ráð­herra líka grímu­laust að honum þyki ekk­ert óeðli­legt við að standa í vegi fyrir frama fræði­manns með þessum hætti af því að sam­fé­lags­þátt­taka og póli­tískar skoð­anir manns­ins eru honum ekki þókn­an­legar. Full­trúum hinna Norð­ur­land­anna blöskr­aði eðli­lega, enda vinnu­brögðin þar von­andi betri,“ sagði hann.

Stórskaðlegt fyrir samfélagið

Þá sagð­ist Logi ekki hirði um að telja upp þá flokks­gæð­inga sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefði raðað á jöt­una í gegnum árin. „Oft bein­línis vegna skoð­ana sinna og þó að van­hæfið hafi bein­línis lekið af þeim. Það er alvar­legt og grefur undan fram­gangi þeirra sem áttu störfin frekar skilið. Vont fyrir þá, stór­skað­legt fyrir sam­fé­lagið. En að beita sér gegn hæfum ein­stak­lingi eins og gert var með þessum hætti er bein­línis óhuggu­legt.“

Hann sagði að þótt for­sæt­is­ráð­herra bæri ekki beint ábyrgð á fjár­mála­ráð­herra hefði hún verk­stjórn­ar­vald, auk þess sem flokkur hennar bæri beina ábyrgð á setu Sjálf­stæð­is­flokks­ins í rík­is­stjórn. Þá sagði hann jafn­framt að Katrín hefði ítrekað þurft að kyngja hneyksl­is­málum og hags­muna­á­rekstrum sam­starfs­fé­lögum í Sjálf­stæð­is­flokknum og horft fram hjá þeim eldri – og gefið þeim lög­mæti.

Logi spurði hana hvort hún myndi „kyngja þessu hneyksl­is­máli“ eða hvort það myndi hafa ein­hverjar afleið­ingar.

Sérstaklega rætt um mikilvægi þess að ritið styddi við stefnumótun

Katrín svar­aði og sagði að hún þekkti ágæt­lega til nor­ræns sam­starfs þar sem hún hefði gegnt emb­ætti nor­ræns sam­starfs­ráð­herra á árum áður og að hún hefði kynnt sér það hvernig val færi fram á rit­stjóra þess tíma­rits sem Logi vís­aði til, Nor­dic Economic Policy Revi­ew. „Þetta er rit sem er gefið út af Norrænu ráð­herra­nefnd­inni. Það er fjár­magnað af fjár­mála­ráðu­neyt­unum Norð­ur­land­anna og það er sú ráð­herra­nefnd sem fer með útgáfu þessa rits.

Það er svo, af því að hátt­virtur þing­maður nefnir hér að þessu riti sé ekki ætlað að styðja við stefnu­mótun ráðu­neyt­anna þá kemur það eigi að síður fram í fund­ar­gerð fund­ar­stýri­hóps sem fer með umsjón þess­ara mála að það var sér­stak­lega rætt um að mik­il­vægt væri að þetta rit styddi við stefnu­mótun og grein­arnar sem í því birt­ust, svo vitnað sé til á ensku með leyfi for­seta, væru policy-ori­ented.“

Fjármálaráðuneyti Íslands vildi sérstaklega horfa til þess að kona væri valin

„Þegar kom að vali á núver­andi rit­stjóra á þessum fundi sem ég vitna til var óskað eftir til­lögum frá fjár­mála­ráðu­neytum Norð­ur­land­anna og sam­kvæmt mínum upp­lýs­ingum vildi fjár­mála­ráðu­neyti Íslands sér­stak­lega horfa til þess að það væri valin kona í þetta emb­ætti. Það kemur fram í fund­ar­gerð að stýri­hóp­ur­inn hefði ein­göngu rætt karla og lagt var til að ein­hver myndi gera atlögu að því að hugsa upp kven­kyns kandídata. Og mér skilst að slík til­laga hafi farið frá íslenska fjár­mála­ráðu­neyt­inu í þennan stýri­hóp,“ sagði Katrín.

Hún sagði að stóra málið í þessu væri „ráðn­ing­ar­ferlið sem um ræðir snýst um að löndin komi sér saman og þar geta allir fjár­mála­ráð­herrar Norð­ur­land­anna haft skoðun á því hver er skip­aður“.

Er vegið að akademísku frelsi

Logi kom aftur í pontu og sagði að honum heyrð­ist sem for­sæt­is­ráð­herra gerði ekki athuga­semdir við þetta „inn­grip fjár­mála­ráð­herra, þó svo að við­kom­andi fræði­maður hefði fengið boð um vinn­una. Nú hefur hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra starfað í aka­dem­í­unni og þess vegna væri ekki úr vegi að spyrja hvort henni finn­ist ekki vegið að akademísku frelsi með þeim skýr­ingum sem hafa verið gefnar á fyrri stigum,“ sagði hann.

„Það er ein­fald­lega ekki hægt að við tínum bara svona fal­leg­ustu berin af trjánum og sýnum þjóð­inni þau og full­yrðum að hér sé allt í lagi þegar bol­ur­inn sjálfur er fúinn. Og hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra hefur skipað merki­lega nefnd um starfs­hóps til efl­ingar trausts í stjórn­málum og stjórn­sýsl­unni sem skil­aði ágætri skýrslu og þar segir meðal ann­ars: „Stjórn­völd eru því van­búin að bregð­ast við og taka á og læra af gagn­rýni.“.“ Logi sagð­ist ótt­ast að það væri uppi á ten­ingnum núna.

Tekur ekki afstöðu til þess hver var ráðinn

Katrín svar­aði og sagði að lík­leg­ast væri ofsagt að hún hefði starfað við aka­dem­í­una þar sem hún hefði ein­göngu verið stunda­kenn­ari á þeim vett­vangi. „En það sem ég var að fara yfir hér, þó að hátt­virtur þing­maður kjósi að bregð­ast við því með þeim hætti sem hann gerir, er það ferli sem er við­haft þegar ráðið er í stöður á vegum Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar eins og til dæmis þessi til­tekna staða. Og þá má spyrja sig þegar hátt­virtur þing­maður talar hér um inn­grip hvort það sé inn­grip þegar ráð­herra sem starfar í við­kom­andi ráð­herra­ráði, sem ég hef vissu­lega gert sjálf sem sam­starfs­ráð­herra Norð­ur­landi og sem mennta­mála­ráð­herra og haft aðkomu að slíkum ákvörð­unum, hvort það sé inn­grip ef ráð­herra eða ráðu­neyti hans hefur slíka skoðun – þegar gert er ráð fyrir því í ferl­inu. Það er ein­fald­lega það sem ég er að benda á.“

Hún sagð­ist ekki taka afstöðu til þess hver hefði átt að vera ráð­inn rit­stjóri þessa tíma­rits, enda heyrði það ekki undir hennar verk­svið. „Ég er ein­fald­lega að benda hátt­virtum þing­manni á að ferlið gerir ráð fyrir því að aðild­ar­ríki Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar komi sér saman um slíka skipan og slíkt ferli þekki ég vel frá mínum fyrri emb­ætt­is­skyldum sem sam­starfs­ráð­herra.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár