Bjarni mætir á opinn nefndarfund á mánudag til að ræða mál Þorvalds Gylfasonar

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og Tómas Brynj­ólfs­son skrif­stofu­stjóri á skrif­stofu efna­hags­mála fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins mæta á fund stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar á mánu­dag.

Bjarni Benediktsson er fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son er fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og Tómas Brynj­ólfs­son skrif­stofu­stjóri á skrif­stofu efna­hags­mála fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins munu mæta á opinn fund stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar á mánu­dag, 15. júní. Á dag­skrá fund­ar­ins er að ræða verk­lag ráð­herr­ans við til­nefn­ingar í stöður. 

Guð­mundur Andri Thors­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og nefnd­ar­maður í stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd, hafði farið fram á að Bjarni mæti fyrir nefnd­ina og rök­styddi þar af hverju Þor­valdur Gylfason, pró­fessor í hag­fræði, hefði ekki fengið starf rit­stjóra rits­ins Nor­dic Economic Policy Review.

Bjarni sagði í stöðu­upp­færslu á Facebook í gær að það væri meira en sjálf­sagt að mæta og rekja sín sjón­ar­mið nán­ar. „Þá gefst mögu­lega tæki­færi til að fara nánar ofan í saumana á því hvers vegna ég tel Þor­vald Gylfa­son tæp­lega eiga sam­leið með mínu ráðu­neyti í þessu verk­efni eða yfir­höfuð um önnur stefnu­mark­andi mál. Það verður þá í fyrsta sinn sem ég ræði um mögu­legt sam­starf við Þor­vald Gylfa­son en ekki þarf að leggj­ast í mikla rann­sókn­ar­vinnu til að finna út hvaða hug Þor­valdur hefur borið til þeirra rík­is­stjórna sem ég hef setið í und­an­farin ár. Ef þörf krefur skal farið betur yfir það fyrir þing­nefnd.“

[adspot]Kjarn­inn greindi frá því fyrr í vik­unni að starfs­­maður fjár­­­mála- og efna­hags­ráðu­­neyt­is­ins hefði komið þeim boðum til kollega sinna í nor­rænum fjár­­­mála­ráðu­­neytum og til Nor­rænu ráð­herra­­nefnd­­ar­innar að ráðu­­neytið gæti ekki stutt að Þor­­valdur Gylfa­­son, hag­fræð­i­­pró­­fessor við Háskóla Íslands, yrði ráð­inn sem rit­­stjóri nor­ræna fræða­­tíma­­rits­ins Nor­dic Economic Policy Revi­ew.

Ástæðan sem ráðu­­neytið gaf upp var sú að Þor­­valdur hefði verið og væri enn, sam­­kvæmt bestu vit­­neskju ráðu­­neyt­is­ins, for­­maður stjórn­­­mála­afls. Hann væri því of póli­­tískt virkur til þess að ráðu­­neytið gæti stutt að hann yrði rit­­stjóri fræða­­tíma­­rits­ins.

Í því svari studd­ist ráðu­neytið við rangar upp­­lýs­ing­­ar, sem það segir að hafi verið að finna á Wikiped­i­a-­­síðu um Þor­­vald. Ráðu­neytið hefur beðist vel­virð­ingar á því og leið­rétti rang­­færsl­­urnar um pró­­fess­or­inn í tölvu­­pósti, sem sendur var á þá sem fengu upp­­runa­­lega póst­­inn, 29. nóv­­em­ber.

Í stöðu­upp­færsl­unni í gær lagði Bjarni áherslu á að ákvörðun um ráðn­ingu sé tekin sam­hljóða og að kraf­ist sé sam­sinnis allra fyrir ráðn­ingu. „Ekk­ert slíkt sam­þykki lá fyrir þann 1. nóv­em­ber sl., þegar Þor­valdi á að hafa verið boðin vinn­an, sem var áður en nafn hans hafði nokkurn tím­ann verið nefnt við full­trúa fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins. Reyndar er það svo að þegar ég heyrði af þeirri upp­á­stungu var ég afar skýr um að hann kæmi ekki til greina, enda tel ég að sýn og áherslur Þor­valdar Gylfa­sonar í efna­hags­málum geti engan veg­inn stutt við stefnu­mótun ráðu­neytis sem ég stýri.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár