Félag prófessora ætlar að ræða mál Þorvalds á næsta stjórnarfundi

Félag pró­fess­ora við rík­is­há­skóla ætlar að ræða íhlutun fjár­mála- og efna­ráðu­neyt­is­ins í ráðn­ing­ar­ferli Þorvalds Gylfa­sonar hag­fræði­pró­fess­ors í rit­stjóra­stöðu á sam­nor­rænum vett­vangi á stjórn­ar­fundi sínum í næstu viku.

Félag pró­fess­ora við rík­is­há­skóla (FPR) mun ræða rang­færslur fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins um Þorvald Gylfason hag­fræði­pró­fessor og þá afstöðu ráðu­neyt­is­ins að hann þætti of póli­tískur til að Ísland gæti stutt að hann fengi ráðn­ingu í starf rit­stjóra nor­ræns fræða­tíma­rits, á næsta stjórn­ar­fundi sínum 16. júní.[links]

Þetta segir Rúnar Vil­hjálms­son, pró­fessor í félags­fræði við Háskóla Íslands og for­maður FPR, í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans. Hann segir málið ekki verða sér­stakan fund­ar­lið á vænt­an­legum stjórn­ar­fundi, en segir að það verði rætt meðal ann­arra mála og bætir við að um nið­ur­stöðu þeirrar umræðu sé ekk­ert hægt að segja á þessu stigi.

Félag pró­fess­ora við rík­is­há­skóla hefur meðal ann­ars það skil­greinda hlut­verk að vera málsvari félags­manna gagn­vart yfir­völdum háskól­anna og öðrum stjórn­völdum og sneri fyr­ir­spurn Kjarnans að því hvaða augum FPR liti mál Þorvalds.

Þónokkrir íslenskir fræði­menn inn­an­lands og erlendis hafa gagn­rýnt fram­göngu fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins gagn­vart Þorvaldi Gylfa­syni í þessu máli.

Ólafur Mar­geirs­son, doktor í hag­fræði sem starfar í Sviss, sagði til dæmis á Facebook í gær að hann hefði sjaldan verið eins feg­inn að vera óháður íslenskum stjórn­mála­mönnum um atvinnu sér til lifi­brauðs.

Þá rit­aði Gauti B. Egg­erts­son, hag­fræði­pró­fessor við Brown-háskóla í Banda­ríkj­unum, að frá­sögnin af máli Þorvalds rifj­aði upp fyrir honum þá „köfn­un­ar­til­finn­ingu“ sem hann hafði stundum er hann bjó á Íslandi fyrir rúmum tveimur ára­tugum „og horfði uppá hvernig ráðið var í hinar ýmsu stöður í þjóð­fé­lag­inu.“

Bjarni Már Magn­ús­son laga­pró­fessor við Háskól­ann í Reykja­vík deildi einnig fyrstu frétt Kjarnans af mál­inu á Twitter í gær og sagði að fyr­ir­sögnin á henni mætti vera: „Sturlun í Stjórn­ar­ráð­inu“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár