Farið fram á að Bjarni mæti fyrir nefnd vegna afskipta ráðuneytis af ráðningu Þorvalds

Nefnd­ar­maður í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd vill að fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra mæti fyrir nefnd­ina til að útskýra afskipti ráðu­neytis hans að ráðn­ingu Þor­valdar Gylfa­sonar sem rit­stjóra nor­ræns fræði­rits.

Bjarni Benediktsson er fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son er fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Guð­mundur Andri Thorsson, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og nefnd­ar­maður í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd, hefur farið fram á að Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, komi fyrir nefnd­ina og útskýri afskipti ráðu­neytis hans af ráðn­ingu Þor­valdar Gylfa­sonar sem rit­stjóra nor­ræns fræði­tíma­rits um hag­fræði.

Guð­mundur Andri greinir frá þessu í stöðu­upp­færslu á Facebook.

Kjarninn greindi frá því í morgun að starfs­maður fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins hefði komið þeim boðum til kollega sinna í nor­rænum fjár­mála­ráðu­neytum og til Nor­rænu ráð­herra­nefnd­ar­innar að ráðu­neytið gæti ekki stutt að Þor­valdur, sem er hag­fræði­pró­fessor við Háskóla Íslands, yrði ráð­inn sem rit­stjóri nor­ræna fræða­tíma­rits­ins Nordic Economic Policy Review.

[adspot]Ástæðan sem ráðu­neytið gaf upp var sú að Þor­valdur hefði verið og væri enn, sam­kvæmt bestu vit­neskju ráðu­neyt­is­ins, for­maður stjórn­mála­afls. Hann væri því of póli­tískt virkur til þess að ráðu­neytið gæti stutt að hann yrði rit­stjóri fræða­tíma­rits­ins.

Þarna fór starfs­maður ráðu­neyt­is­ins með rang­færslur. Þor­valdur var vissu­lega á meðal stofn­enda Lýð­ræð­is­vakt­ar­innar árið 2013 og leiddi hana til Alþing­is­kosn­inga þar sem flokk­ur­inn hlaut 2,46 pró­sent atkvæða, en hætti síðan í stjórn flokks­ins um haustið 2013 og hefur ekki gegnt trún­að­ar­störfum í stjórn­málum síð­an.

[links]Kjarninn greindi frá því í kvöld að ­ráðu­neytið hefði stuðst við rangar upp­lýs­ing­ar, sem það segir að hafi verið að finna á Wikipedia-­síðu um Þor­vald, þegar það kom ofan­greindum boðum til sér­fræð­inga í starfs­hópi nor­rænu fjár­mála­ráðu­neyt­anna.

Sam­kvæmt svari ráðu­neyt­is­ins var ákvörð­unin um að bera fram þessi sjón­ar­mið um Þor­vald, að hann væri of póli­tískt virkur til að njóta stuðn­ings Íslands í starf­ið, „ekki borin undir ráð­herra né aðra á skrif­stofu yfir­stjórnar ráðu­neyt­is­ins.“

Ekki fékkst skýrt svar við því hvort sú ákvörðun að hafna Þor­valdi hefði verið tekin af starfs­manni ráðu­neyt­is­ins sem var í sam­skiptum við nor­ræna stýri­hóp­inn fyrir Íslands hönd eða ein­hverjum öðrum innan ráðu­neyt­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár