Lögmenn, hagfræðingar og aðrir sérfræðingar veigri sér við að tjá sig

Þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar segir að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hiki ekki við að reyna að hafa störf af heið­virðu fólki eða eftir atvikum koma í veg fyrir slíkar stöðu­veit­ingar.

Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

„Það er nákvæm­lega svona sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn starfar. Ef þú ert ekki með þeim í liði þá ertu of póli­tískur. Þetta gerir það að verkum að meg­in­þorri lög­manna, hag­fræð­inga og ann­arra sér­fræð­inga um ýmis­legt er varðað getur stjórn­ar­hætti veigra sér við að tjá sig. Það er líka þess vegna sem fjöl­miðla­fólk margt hvert hikar frekar en að fjalla um.“

[links]Þetta segir Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, um frétt Kjarnans frá því í morgun þar sem fram kemur að starfs­maður fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins hafi komið þeim boðum til kollega sinna í nor­rænum fjár­mála­ráðu­neytum og til Nor­rænu ráð­herra­nefnd­ar­innar að ráðu­neytið gæti ekki stutt að Þor­valdur Gylfa­son, hag­fræði­pró­fessor við Háskóla Íslands, yrði ráð­inn sem rit­stjóri nor­ræna fræða­tíma­rits­ins Nor­dic Economic Policy Revi­ew.

Ástæðan sem ráðu­neytið gaf upp var sú að Þor­valdur hefði verið og væri enn, sam­kvæmt bestu vit­neskju ráðu­neyt­is­ins, for­maður stjórn­mála­afls. Hann væri því of póli­tískt virkur til þess að ráðu­neytið gæti stutt að hann yrði rit­stjóri fræða­tíma­rits­ins.

Helga Vala segir að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hiki ekki við að reyna að hafa störf af heið­virðu fólki eða eftir atvikum koma í veg fyrir slíkar stöðu­veit­ingar. „Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er í rík­is­stjórn í boði VG. Við skulum muna það,“ skrifar hún.

Íslenska útgáfan af „berufsverbot“

Gylfi Magn­ús­son, dós­ent við Háskóla Íslands, tjáir sig einnig á Facebook og segir þetta vera íslenska útgáfu af „berufsver­bot“ – sem sam­kvæmt því hug­taki er mönnum refsað sem eru stjórn­völdum ekki þókn­an­legir.

Þorvaldi refsað fyrir að „tjá sig skilmerkilega og óttalaust um þjóðmál“

Guð­mundur Andri Thorsson, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir á Facebook að málið sé hneyksli. „Dæmið af ofsóknum Sjálf­stæð­is­manna á hendur Þorvaldi Þor­valdur Gylfason sýnir í hnot­skurn þann vanda sem við er að etja í opin­berri umræðu hér á landi, jafnt í fjöl­miðlum sem í aka­demíu. Þorvaldi er refsað fyrir að tjá sig skil­merki­lega og ótta­laust um þjóð­mál í ræðu og riti.

Slíkt verður ekki liðið og ná ofsókn­irnar út fyrir land­stein­ana; Þor­valdur hefur getið sér gott orð sem hag­fræð­ingur á alþjóða­vísu og býðst því starf, sem Flokk­ur­inn hér heima kemur svo í veg fyrir að hann fái. Ekki að furða þó að fólk striti við að þegja hér á landi, hafi það eitt­hvað fram að færa sem kann að koma illa við Flokkinn,“ skrifar hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár