Reykjavíkurborg tapaði 1,3 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins

Rekstur Reykja­vík­ur­borgar var undir áætlun á fyrsta árs­fjórð­ungi 2020. Borgin segir lækk­un­ina vera vegna „sam­dráttar í efna­hags­líf­inu sem var þegar far­inn að birt­ast og að ein­hverju leyti til heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru COVID-19.“

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík.
Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík. Mynd: Bára Huld Beck

Sá hluti rekstrar Reykja­vík­ur­borgar sem fjár­magn­aður er með skatt­tekj­um, svo­kall­aður A-hluti, skil­aði 1.324 milljón króna tapi á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins 2020.

Fjár­hags­á­ætlun hafði gert ráð fyrir því að afkoma af rekstri hans yrði jákvæð um 964 millj­ónir króna. Því var afkoma A-hlut­ans 2.288 millj­ónum króna undir áætl­un. Rekstr­ar­nið­ur­staða fyrir fjár­magnsliði var enn lengra frá áætlun, sem hafði gert ráð fyrir að hún yrði jákvæð um 1.586 millj­ónir króna. Nið­ur­staða var hins vegar nei­kvæð afkoma upp á 1.171 millj­ónir króna.

Þetta kemur fram í rekstr­ar­upp­gjöri A-hluta Reykja­vík­ur­borgar fyrir fyrstu þrjá mán­uði árs­ins 2020 sem birt var í dag. Rekstr­ar­upp­gjörið var lagt fram í borg­ar­ráð í dag í sam­ræmi við tíma­á­ætlun árs­hluta­upp­gjöra á árinu 2020.

[adspot]Þar segir að lak­ari nið­ur­staða skýrist einkum af lægri skatt­tekjum sem reynd­ust 22.908 millj­ónum krónur en áætlun hafði gert ráð fyrir 24.585 millj­ónum krónum. Þá hafi tekjur af sölu bygg­inga­réttar verið undir áætlun. „Lækkun tekna má rekja til sam­dráttar í efna­hags­líf­inu sem var þegar far­inn að birt­ast og að ein­hverju leyti til heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru COVID-19.“

Hagnaður í fyrra undir áætlun

A-hluti rekstrar borg­ar­innar skil­aði 1.358 milljón króna hagn­aði í fyrra, en áætlun þess árs hafði gert ráð fyrir að afkoman yrði jákvæð u,m 3.572 millj­ónir króna. Því var afkoma A-hlut­ans 2.214 millj­ónum króna undir áætl­un. Rekstr­ar­nið­ur­staða fyrir fjár­magnsliði var svo umtals­vert lak­ari, var jákvæð um 930 millj­ónir króna en áætl­anir hafi reiknað með að hún yrði rúm­lega fjórir millj­arðar króna.

Hinn hlut­inn í rekstri borg­ar­inn­ar, B-hlut­inn, skil­aði umtals­verðum hagn­aði í fyrra, og gerði það að verkum að sam­an­lögð rekstr­ar­nið­ur­staða var jákvæð um 11,2 millj­arða króna.

Hann nær yfir afkomu þeirra fyr­ir­tækja sem borgin á að öllu leyti eða að hluta. Fyr­ir­tækin sem telj­­ast til B-hlut­ans eru Orku­veita Reykja­vík­­­ur, Faxa­fló­a­hafnir sf., Félags­­­bú­­staðir hf., Íþrótta- og sýn­inga­höllin hf., Mal­bik­un­­ar­­stöðin Höfði hf., Slökkvi­lið höf­uð­­borg­­ar­­­svæð­is­ins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Afl­vaka hf og Þjóð­ar­leik­vangs ehf.

Mestu skiptu mats­breyt­ingar fjár­fest­inga­eigna Félags­bú­staða, sem skil­uðu 3.454 millj­óna króna hærri tekju­færslu en fjár­hags­á­ætlun hafði reiknað með. Það þýðir að bók­fært virði félags­legra íbúða í eigu dótt­ur­fyr­ir­tækis borg­ar­innar hafi hækkað um þá upp­hæð umfram það sem vænst var á árinu 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

reykjavíkurborg

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár