Vextir Seðlabankans lækkaðir um 0,5 prósentustig og hafa aldrei verið lægri

Seðla­bank­inn til­kynnti um sitt útspil vegna áhrifa af útbreiðslu kór­ónu­veirunnar í dag þegar hann lækk­aði stýri­vexti. Þeir hafa nú helm­ing­ast á innan við ári.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri. Mynd: Bára Huld Beck

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur lækkað meg­in­vexti hans, oft kall­aðir stýri­vextir, úr 2,75 pró­sent í 2,25 pró­sent. Vaxta­lækk­unin var við­búin enda til­kynnti pen­inga­stefnu­nefndin í gær að vaxta­á­kvörð­un­ar­degi hefði verið flýtt um viku, en sam­kvæmt áætlun átti hann að vera 18. mars. Ólíklegt var talið að sú breyt­ing hefði verið gerð nema að til stæði að lækka vext­ina.

[links]Ástæðan er þau efna­hags­legu áhrif sem fyr­ir­sjá­an­lega verða á íslenskt efna­hags­líf vegna útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum.

Í til­kynn­ingu frá pen­inga­stefnu­nef­dn­inni kemur fram að hún hafi jafn­framt ákveðið að lækka með­al­tals­bindi­skyldu inn­láns­stofn­ana úr einu pró­senti niður í núll pró­sent. Föst bindi­skylda verður áfram eitt pró­sent. Þar segir að nefndin muni „áfram fylgj­ast grannt með fram­vindu efna­hags­mála og nota þau tæki sem nefndin hefur yfir að ráða til að styðja við þjóð­ar­bú­skap­inn“.

Vextir voru síð­ast lækk­aðir í febr­úar, og þá um 0,25 pró­sentu­stig. Alls hafa stýri­vextir því lækkað um 2,25 pró­­sent­u­­stig frá því í maí síð­­ast­liðnum þegar yfir­­stand­andi vaxta­­lækk­­un­­ar­­ferli hófst. Það þýðir að vextir hafa helm­ing­ast á innan við einu ári.

Ákvörð­unin kemur í kjöl­far þess að rík­is­stjórnin kynnti alls sjö aðgerðir sem hún ætlar að grípa til vegna fyr­ir­liggj­andi aðstæðna í efna­hags­líf­inu. Á meðal þeirra er að fella niður gistin­átt­ar­skatt á þau fyr­ir­tæki sem greiða slíkan. Þá hafa bankar lands­ins kynnt Seðla­banka Íslands ýmsar til­lögur sem þeir vilja að gripið verði til vegna aðstæðna.

[adspot]Í Mark­að­inum, fylgi­riti Frétta­blaðs­ins um efna­hags­mál og við­skipti, í dag segir að þeir vilji meðal ann­ars að Seðla­bank­inn beiti efna­hags­reikn­ingi sínum með því að kaupa sér­tryggð skulda­bréf fyr­ir­tækja á mark­aði. Þá vilja bank­arnir einnig að ríkið bera hluta af þeirri útlána­hættu sem fylgir því ef bank­arnir koma til móts við fyr­ir­tæki, aðal­lega í ferða­þjón­ustu, með auk­inni lausa­fjár­fyr­ir­greiðslu.

Þegar vextir voru lækk­aði í febr­úar sagði Seðla­bank­inn að það væri vegna þess að vís­bend­ingar væru um að hag­vöxtur í fyrra hafi verið heldur meiri en áður var talið en að horfur fyrir þetta og næsta ár hefðu versnað sam­kvæmt nýrri þjóð­hags­spá Seðla­bank­ans sem birt er í febr­ú­ar­hefti Pen­inga­mála. Þar var gert ráð fyrir að hag­vöxtur verði ein­ungis 0,8 pró­sent í ár en í nóv­em­ber­spá bank­ans var búist við 1,6 pró­sent vexti. Lak­ari horfur megi fyrst og fremst rekja til erf­ið­ari stöðu útflutn­ings­at­vinnu­greina og versn­andi fjár­mögn­un­ar­skil­yrða inn­lendra fyr­ir­tækja.

Nú er ljóst að sú spá verður lík­ast til tekin frekar niður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabankinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár