Gistináttaskattur afnuminn tímabundið

Líf­væn­legum fyr­ir­tækjum sem lenda í tíma­bundnum lausa­fjár­skorti verður veitt súr­efni, sagði Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra um aðgerðir sem gripið verður til vegna COVID-19.

Bjarni Bendiktsson, fjármálaráðherra.
Bjarni Bendikts­son, fjár­mála­ráð­herra.

Rík­is­stjórnin sam­þykkti á fundi sínum í morgun að beita sér fyrir mark­vissum aðgerðum til að mæta efna­hags­legum áhrifum COVID-19. Aðgerð­irnar miða að því að draga úr tjóni, tryggja að nei­kvæð áhrif á atvinnu­líf og efna­hag vari sem skemmst og skapa aðstæður fyrir öfl­uga við­spyrnu í kjöl­farið. Þá var til­kynnt að vegna gjör­breyttra efna­hags­legra for­sendna yrði fjár­mála­á­ætlun lögð fram í maí.

Þetta kom fram á fundi í dag þar sem Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og Sigurður Ingi Jóhanns­son sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra kynntu aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar til að mæta efna­hags­legum áhrifum kór­ónu­veirunnar..

Katrín sagði að aðgerð­irnar væru bæði vegna almennrar kóln­unar í hag­kerf­inu en ekki síst vegna útbreiðslu kór­ónu­veirunnar, „sem er auð­vitað hafa mjög dramat­ísk áhrif á allar þjóðir um þessar mundir“.

Sagði hún Ísland að mörgu leyti vel í stakk búið til að takast á við „þann skell sem fyr­ir­séð er að verði“ með öfl­ugum gjald­eyr­is­vara­forða, jákvæðan við­skipta­jöfnuð, lágt skulda­hlut­fall og hag­stæð lána- og vaxta­kjör. „En það breytir því ekki að við sjáum fram á að allar okkar fyrri áætl­anir þarf nú að end­ur­skoða út af þeirri stöðu sem er uppi í heims­hag­kerf­inu.“

Lífvænlegum fyrirtækjum veitt súrefni

„Í fyrsta lagi horfum við til fyr­ir­tækj­anna,“ sagði Bjarni á fund­inum, „og spyrjum okkur hvað það er sem stjórn­völd geta gert til að létta þeim þetta erf­iða skeið. Við trúum því að þetta sé tíma­bil sem muni ganga yfir og að við taki eðli­legri tímar.“

Bjarni nefndi einnig að í und­ir­bún­ingi væri mark­aðsá­tak í sam­vinnu við ferða­þjón­ust­una sem rík­is­sjóður hefði skuld­bundið sig til að setja „veru­lega fjár­muni“ í. Átakið felst í því að mark­aðs­setja Ísland sem áfanga­stað, „þegar að ský dregur frá sólu og aðstæður eru að nýju orðnar hag­felldar til að kalla ferða­menn til lands­ins. Þá verðum við til­búin.“

Rík­is­stjórnin hefur að sögn Bjarna þegar hafið sam­starf við Samtök fjár­mála­fyr­ir­tækja til að tryggja greiðar boð­leiðir á milli. „Eins líka til þess að gera kröfu um að sam­hliða mögu­legum slíkum aðgerðum stjórn­valda að þá séu menn skipu­lagðir í því að veita líf­væn­legum fyr­ir­tækjum sem lenda í tíma­bundnum lausa­fjár­skorti súr­efni.“

Lengri frestir og skattar afnumdir

Til að verja íslenskt efna­hags­líf mun rík­is­stjórnin beita sér fyrir eft­ir­far­andi aðgerðum:

  • Fyr­ir­tækjum sem lenda í tíma­bundnum rekstr­ar­örð­ug­leikum vegna tekju­falls verði veitt svig­rúm, t.d. með lengri fresti til að standa skil á sköttum og opin­berum gjöldum.
  • Skoðað verði að fella tíma­bundið niður tekju­öflun sem er íþyngj­andi fyrir fyr­ir­tæki í ferða­þjón­ustu, t.d. gistin­átta­skatt sem verður afnum­inn tíma­bundið.
  • Mark­aðsátaki verður hleypt af stokk­unum erlendis þegar aðstæður skap­ast til þess að kynna Ísland sem áfanga­stað, auk átaks til að hvetja til ferða­laga Íslend­inga inn­an­lands.
  • Gripið verði til ráð­staf­ana sem örvað geta einka­neyslu og eft­ir­spurn, t.d. með skatta- eða stuðn­ings­kerfum.
  • Aukinn kraftur verði settur í fram­kvæmdir á vegum opin­berra aðila á yfir­stand­andi ári og þeim næstu.
  • Efnt verði til virks sam­ráðs milli stjórn­valda og sam­taka fjár­mála­fyr­ir­tækja um við­brögð þeirra við fyr­ir­sjá­an­legum lausa­fjár- og greiðslu­örð­ug­leikum fyr­ir­tækja í ferða­þjón­ustu.
  • Inn­stæður ÍL-sjóðs í Seðla­bank­anum verði fluttar á inn­láns­reikn­inga í bönkum til að styðja við svig­rúm banka og lán­ar­drottna til að veita við­skipta­mönnum sínum lána­fyr­ir­greiðslu.

Bjarni sagði að í fyrsta lagi verði rík­is­stjórnin ákveðið á fundi sínum í morgun að senda erindi til þings­ins þess efnis að litið væri svo á að for­sendur fjár­mála­stefn­unnar væru brostnar og af þeim sökum þurfi nýja stefnu og áætlun á næstu mán­uðum. „Það sem við teljum nauð­syn­legt að gera á þess­ari stundu er að boða aðgerðir sem koma að gagni í þeirri fyr­ir­séðu nið­ur­sveiflu sem hag­kerfið okkar er að fara að fást við.“

Sagði Bjarni að ferða­þjón­ustan myndi finna fyrir áhrifum þess­ara atburða sem teygi anga sína um allan heim og því væri fyrir hendi fyr­ir­séðar tíma­bundnar aðstæður sem bregð­ast þurfi við.

Af þeim sökum sæju stjórn­völd fyrir sér að fyr­ir­tæki sem eigi við lausa­fjár­vanda að etja fái frest til að standa skil á sköttum og gjöldum. Þá verði tíma­bundið felldir niður skattar á ferða­þjón­ust­una sem geta reynst íþyngj­andi.

Benti Bjarni á að um tíma­bundið ástand væri að ræða en nauð­syn­legt væri að grípa til aðgerða á þessu erf­iða skeiði sem nú færi í hönd. Í kjöl­farið myndu taka við „eðli­legir tímar“.

Nú væru góðir tímar til að örva fram­kvæmdir og til skoð­unar væri að flýta fram­kvæmdum og koma þeim af stað í ár þó að þær hafi ekki verið á fram­kvæmda­á­ætlun árs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár