Vaxtaákvörðun Seðlabankans flýtt um viku

Ný ákvörðun pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­banka Íslands verður kynnt á vef bank­ans í fyrra­málið. Ákvörð­un­inni hefur þannig verið flýtt um eina viku, en til stóð að næsti vaxta­á­kvörð­un­ar­dagur yrði 18. mars.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri. Mynd: Bára Huld Beck

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands mun birta nýja vaxta­á­kvörðun sína á vef Seðla­bank­ans eftir kl. 8 í fyrra­málið, en frá þessu er greint í til­kynn­ingu á vef Seðla­bank­ans. Áður hafði verið áætlað að næsta vaxta­á­kvörðun yrði kynnt 18. mars og því er verið að flýta ákvörð­un­inni um eina viku.

Vefút­send­ing verður á vef bank­ans kl. 10 í fyrra­málið, en þar munu Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri og Rannveig Sig­urð­ar­dóttir vara­seðla­banka­stjóri gera grein fyrir ákvörðun nefnd­ar­innar.

Á vef Seðla­bank­ans má sjá merki þess að bank­inn sé að bregð­ast við kór­ónu­veiru­far­aldr­inum og þá með öðrum hætti en ein­ungis hvað pen­inga­stefn­una varðar.

Þar segir í nýj­ustu fréttum að myntsafni bank­ans og Þjóð­minja­safns­ins hafi verið lokað um óákveð­inn tíma og mál­stofu sem bank­inn ætl­aði að halda um hækk­andi lífaldur og umbætur í líf­eyr­is­kerf­inu hefur sömu­leiðis verið frestað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár