62 börnum synjað um efnislega meðferð

Samkvæmt dóms­mála­ráð­herra var 62 börnum synjað um efn­is­lega með­ferð hér á landi og var 255 börnum synjað um vernd, við­bót­ar­vernd og mann­úð­ar­leyfi í kjöl­far efn­is­legrar með­ferðar á sex ára tíma­bili.

Af þeim 317 börnum sem þurftu að yfir­gefa Ísland í kjöl­far ákvörð­unar Útlend­inga­stofn­unar á tíma­bil­inu 13. mars 2013 til 10. apríl 2019 var 62 börnum synjað um efn­is­lega með­ferð og 255 börnum var synjað um vernd, við­bót­ar­vernd og mann­úð­ar­leyfi í kjöl­far efn­is­legrar með­ferðar.

[links]Þetta kemur fram í svari dóms­mála­ráð­herra, Þórdísar Kol­brúnar R. Gylfa­dóttur, við fyr­ir­spurn frá Jóni Þór Ólafs­syni, þing­manni Pírata, um brott­vísun barna sem sótt hafa um alþjóð­lega vernd.

Af þeim 317 börnum sem vísað er til voru 274 börn frá ríkjum sem eru á lista yfir örugg upp­runa­ríki. Af þeim voru fjögur fylgd­ar­laus, eitt 15 ára, eitt 16 ára og eitt 17 ára og eitt sem var orðið 18 ára þegar því var fylgt úr landi. Fylgd­ar­lausu börnin voru öll frá öruggum upp­runa­ríkjum, sam­kvæmt ráð­herra.

Þá spurði Jón Þór enn fremur hvort það hefði í öllum til­fellum – við ákvörðun í málum barn­anna 317 – verið tekin skrif­leg afstaða til þess sem hefði verið barn­inu fyrir bestu, eins og mælt væri fyrir um í útlend­inga­lögum og litið til mögu­leika barns á fjöl­skyldu­sam­ein­ingu, öryggis þess, vel­ferðar og félags­legs þroska og skoð­ana barns­ins í sam­ræmi við aldur þess og þroska.

„Fyrir gild­is­töku nýrra laga um útlend­inga var lagt mat á hags­muni barns­ins í sam­ræmi við Barna­sátt­mál­ann og ákvæði þágild­andi laga um útlend­inga. Matið fór fram með öðrum hætti en nú og báru ákvarð­anir Útlend­inga­stofn­unar ekki eins skýr merki um matið og nú,“ segir í svari Þórdísar.

Fram kemur í svar­inu að frá því að ný lög um útlend­inga sem tóku gildi þann 1. jan­úar 2017 hafi ákvæðum þeirra verið fylgt. Því hafi verið tekið mið af sér­stöku ákvæði í öllum málum er varða börn frá því að ákvæðið kom í lög.

Í ákvæð­inu segir að í málum sem varða börn, fylgd­ar­laus sem önnur, skuli það sem barn­inu er fyrir bestu haft að leið­ar­ljósi. Við mat á því hvað barni er fyrir bestu skuli Útlend­inga­stofnun líta til mögu­leika barns á fjöl­skyldu­sam­ein­ingu, öryggis þess, vel­ferðar og félags­legs þroska auk þess sem taka skuli til­lit til skoð­ana barns­ins í sam­ræmi við aldur þess og þroska. „Við ákvörðun í máli er varðar hags­muni barns skal Útlend­inga­stofnun taka skrif­lega afstöðu til fram­an­greindra atriða sam­kvæmt grein þess­ari. Við fram­kvæmd þess­arar greinar skal stofn­unin eiga sam­ráð við barna­vernd­ar­yf­ir­völd og þegar um er að ræða fylgd­ar­laus börn er skylt að leita umsagnar Barna­vernd­ar­stofu áður en ákvörðun er tekin.“

Leita eftir umsögn Barnaverndarstofu

Þá segir í svar­inu að sam­kvæmt fyrr­nefndu ákvæði útlend­inga­laga skuli Útlend­inga­stofnun eiga sam­ráð við barna­vernd­ar­yf­ir­völd við fram­kvæmd grein­ar­innar og hafi það verið gert með reglu­legum fundum, eða að minnsta kosti einum fundi í mán­uði og oftar ef á þurfi að halda.

„Þegar um fylgd­ar­laus börn er að ræða er alltaf leitað eftir umsögn Barna­vernd­ar­stofu í sam­ræmi við það sem segir í ákvæð­inu. Í sam­ráði við Barna­vernd­ar­stofu veitti Barnahús starfs­fólki Útlend­inga­stofn­unar sér­staka fræðslu um hvernig taka skuli rann­sókn­ar­við­töl við börn. Í kjöl­farið var við­mið­un­ar­aldur barna sem boðið er í við­tal hjá Útlend­inga­stofnun lækk­aður niður í sex ára en áður hafði verið miðað við 15 ára,“ segir í svar­inu.

Í dag sé ekki miðað við neinn sér­stakan aldur og sé börnum boðið við­tal að teknu til­liti til þroska þeirra og getu. „Hjá Útlend­inga­stofnun er lögð áhersla á að innan stofn­un­ar­innar sé til staðar nauð­syn­leg sér­þekk­ing á mál­efnum barna í leit að alþjóð­legri vernd, bæði hvað varðar þau sem eru í fylgd og þau sem eru fylgd­ar­laus. Meðal ann­ars hefur starfs­maður stofn­un­ar­innar sótt sér sér­staka fræðslu í mál­efnum barna hjá EASI, evr­ópsku stuðn­ings­skrif­stof­unni í mál­efnum umsækj­enda um alþjóð­lega vernd. Fræðslan fólst fyrst og fremst í við­tals­tækni þegar tekin eru rann­sókn­ar­við­töl við börn og þjálfun í að veita öðru starfs­fólki stofn­un­ar­innar slíka fræðslu.“

Úrskurðirnir birtir án nafna, kennitalna og annarra persónugreinanlegra auðkenna

Að lokum spurði Jón Þór hvort ráð­herra teldi að rök­stuðn­ingur Útlend­inga­stofn­unar í málum þess­ara 317 barna félli undir upp­lýs­inga­lög. Ef ekki, hvaða laga­heim­ildir hefði ráð­herra til að birta rök­stuðn­ing­inn og hverjum mætti birta hann – ann­ars vegar í heild sinni og hins vegar án per­sónu­grein­an­legra upp­lýs­inga?

Ráðherra segir í svar­inu að í lögum um útlend­inga komi fram að kæru­nefnd útlend­inga­mála skuli að jafn­aði birta þá úrskurði sína sem fela í sér efn­is­nið­ur­stöðu, eða eftir atvikum útdrætti úr þeim. Úrskurð­irnir séu birtir án nafna, kennitalna og ann­arra per­sónu­grein­an­legra auð­kenna aðila að við­kom­andi málum. Að öðru leyti fari um heim­ildir ráð­herra og ann­arra stjórn­valda til að veita aðgang að upp­lýs­ingum eftir stjórn­sýslu­lögum og upp­lýs­inga­lögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár