317 börn yfirgefið Ísland eftir synjun stjórnvalda á sex árum

Á tíma­bil­inu 13. mars 2013 til 10. apríl 2019 yfir­gáfu 317 börn, sem sótt höfðu um alþjóð­lega vernd, landið í kjöl­far ákvörð­unar stjórn­valda þess efnis að synja þeim um efn­is­með­ferð eða synja þeim um vernd í kjöl­far efn­is­legrar með­ferðar.

Rúmlega þrjú hund­ruð börn, sem sótt höfðu um alþjóð­lega vernd, hafa yfir­gefið Ísland í kjöl­far ákvörð­unar stjórn­valda þess efnis að synja þeim um efn­is­með­ferð eða synja þeim um vernd í kjöl­far efn­is­legrar með­ferðar á tíma­bil­inu 13. mars 2013 til 10. apríl 2019 eða frá því að lög um samn­ing Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi barns­ins tóku gildi.

Þetta kemur fram í svari dóms­mála­ráð­herra, Þórdísar Kol­brúnar R. Gylfa­dóttur, við fyr­ir­spurn frá Jóni Þór Ólafs­syni um börn sem vísað hefur verið úr landi.

Í svar­inu kemur jafn­framt fram að af þessum börnum hafi mik­ill meiri hluti verið í fylgd með for­eldrum sínum. Þá segir að afar umfangs­mikið verk sé að gera grein fyrir rök­stuðn­ingi í hverju og einu máli enda sé hvert mál metið með til­liti til aðstæðna hvers og eins.

Eftirfylgni með börnunum fellur utan valdsviðs íslenskra stjórnvalda

„Börn eins og aðrir sem sækja um alþjóð­lega vernd á Íslandi fá skrif­lega rök­studda ákvörðun í máli sínu frá Útlend­inga­stofnun og eftir atvikum kæru­nefnd útlend­inga­mála. Við fram­kvæmd laga um útlend­inga er lögð áhersla á mik­il­vægi þess að tryggja ein­ingu fjöl­skyld­unnar og almennt hefur verið lagt til grund­vallar að hags­munum barns sé best borgið með því að hún sé tryggð,“ segir í svari ráð­herra.

Þá kemur fram að Útlend­inga­stofnun, og eftir atvikum kæru­nefnd útlend­inga­mála, meti hvað barni sé fyrir bestu þegar tekin er ákvörðun um alþjóð­lega vernd hér á landi. Við það mat beri að líta til mögu­leika barns á fjöl­skyldu­sam­ein­ingu, öryggis þess, vel­ferðar og félags­legs þroska. Hafi verið kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að barn upp­fylli ekki skil­yrði þess að fá alþjóð­lega vernd hér á landi og að hags­munum barns­ins sé ekki stefnt í hættu með því að það fylgi for­eldri eða for­eldrum sínum aftur til heima­lands þeirra eða ann­ars ríkis sem þau hafa heim­ild til dvalar sé tekin ákvörðun um að vísa barn­inu frá land­inu í fylgd for­eldris eða for­eldra þess.

Jón Þór spurði jafn­framt hvaða upp­lýs­ingar stjórn­völd eða stofn­anir þeirra hefðu um afdrif þess­ara barna til að meta hvort brott­vís­unin hefði verið barni fyrir bestu. Í svar­inu kemur fram að frek­ari eft­ir­fylgni með börnum eftir að þau hafa verið flutt frá land­inu falli utan valds­viðs íslenskra stjórn­valda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár