Forsætisnefnd fellst á mat siðanefndar

Álit for­sætis­nefndar í Klaust­ur­mál­inu hefur verið birt og er það mat nefnd­ar­innar að fall­ast beri á mat siða­nefndar.

For­sætis­nefnd hefur á fundi sínum í dag lokið með­ferð sinni á hinu svo­kall­aða Klaust­ur­máli. Það er nið­ur­staða for­sætis­nefndar að fall­ast beri á mat siða­nefndar frá 5. júlí síð­ast­liðnum. Þetta kemur fram í áliti for­sætis­nefndar sem birt var rétt í þessu.

Samkvæmt áliti siða­nefndar Alþingis brutu Berg­þór Óla­son og Gunnar Bragi Sveins­son, þing­menn Mið­flokks­ins, siða­reglur alþing­is­manna með ummælum sem þeir létu falla á barnum Klaustri þann 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn.

[adspot]

[links]Aðrir þing­­menn sem tóku þátt í sam­tal­inu, Sig­­mund­ur Davíð Gunn­laugs­­son og Anna Kol­brún Árna­dótt­ir, þing­menn Mið­flokks­ins, og Karl Gauti Hjalta­­son og Ólaf­ur Ísleifs­­son, sem voru í Flokki fólks­ins þegar sam­talið átti sér stað en gengu síðar til liðs við Mið­flokk­inn, brutu ekki gegn siða­regl­um, að mati nefnd­ar­inn­ar.

Mikið var fjallað um málið í fjöl­miðlum í dag eftir að Morg­un­blaðið birti álit siða­nefndar Alþingis og andsvör fjög­urra þing­manna við því.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár