Þórhildur Sunna gagnrýnir niðurstöðu siðanefndar

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, gagn­rýnir nið­ur­stöðu siða­nefndar sem telur ummæli Önnu Kol­brúnar, þing­manns Mið­flokks­ins, um Freyju ekki brot á siða­reglum.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata.
Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, gagn­rýnir nið­ur­stöðu siða­nefndar að leyfa Önnu Kolbrúnu Árna­dóttur og Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni að njóta vafans um hvort þau hafi verið að gera lítið úr Freyju Har­alds­dóttur vegna fötl­unar hennar á fundi þeirra á Klaustur bar. Þór­hildur Sunna skrifar um málið á stöðu­færslu á Facebook síðu sinni.

Á upp­tökum af sam­tali þing­manna Mið­flokks­ins á barnum Klaustur þann 20.nóv­em­ber 2018 má heyra þá gera grín að Freyju, sem þjá­ist af sjald­­­gæfum beina­­­sjúk­­­dómi. Anna Kol­brún, kall­aði hana „Freyju eyju“ og „Eyju“ og Sig­­mundur Davíð Gunn­laugs­­son, for­­maður Mið­­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­­sæt­is­ráð­herra, gerði grín af því að tveir hinna mann­anna við borðið hefðu sér­­stakan áhuga á Freyju og nafn­­greindri þing­­konu Sam­­fylk­ing­­ar­inn­­ar. Ein­hver úr hópnum hermdi í kjöl­farið eftir sel.

[adspot]Freyja segir ummælin fötlunarfyrirlitningu og kvenfyrirlitningu

Í kjöl­farið gagn­rýndi Freyja ummæli þing­mann­anna harð­lega og sagði meðal ann­ars að um kerf­is­bundið hatur vald­hafa væri að ræða. „Að líkja mér við dýr og upp­­­nefna mig (og vegg) Freyju Eyju í kjöl­far aðgeng­is­breyt­inga er aug­­ljós­­lega eins ­fötl­un­ar­teng­t og það getur orð­ið. Að taka mig fyrir með þessum hætti vegna þess að póli­­tískar skoð­­anir mín­­ar, sem byggja á fem­inískum ­gild­um, hug­­mynda­fræði mann­rétt­inda og upp­­ræt­ing­u a­bleis­ma, fara í taug­­arnar á sumum körlum, ER fötl­un­ar­fyr­ir­litn­ing og kven­­fyr­ir­litn­ing. Það er líka hlut­­gerv­ing. Ég er ekki bara eins og dýr heldur líka dauður vegg­­ur. Það er til þús­und og ein leið til þess að tjá skoð­ana­á­­grein­ing önnur en að hæð­­ast að lík­­ama og útliti kvenna,“ skrif­aði Freyja í aðsendri grein í Kjarn­anum í des­em­ber síð­ast­liðn­um.

[links]Siða­nefnd ákvað að láta Önnu Kol­brúnu njóta vafans og nið­ur­staða ­nefnd­ar­inn­ar er að ummæli hennar fari ekki gegn siða­reglum Alþing­is. „Í ljósi afmörk­unar for­sætis­nefndar og hversu tak­mark­aðar upp­lýs­ingar liggja til grund­vallar þessum ummælum telur siða­nefnd rétt að Anna Kol­brún Árna­dóttir njóti vafans að þessu leyti. Í ljósi fram­an­greinds er það nið­ur­staða siða­nefndar að ummæli Önnu Kol­brúnar Árna­dóttur frá 20. nóv­em­ber 2018 fari ekki gegn c- og d-lið 1. mgr. 5. gr. og 7. og 8. gr. siða­reglna alþing­is­manna, eins og þau eru afmörk­uð.“

Sorglegt að siðanefnd viðurkenni ekki að brotið hafi verið gegn henni

Þór­hildur Sunna rifjar upp ummæli Klaust­ur­manna um Freyju. Hún segir jafn­framt sorg­legt að siða­nefnd hafi ekki getað sýnt Freyju þann virð­ing­ar­vott að við­ur­kenna að minnsta kosti að brotið hafi verið gegn henni.

„Kannski skýrist þessi óskilj­an­lega nið­ur­stöða gagn­vart Freyju á þeirri furðu­legu afstöðu siða­nefndar að sann­leiks­gildi ummæla hafi ekk­ert vægi í mati nefnd­ar­innar. Sann­leikur, sam­hengi og ásetn­ingur virð­ast alla­vega atriði sem siða­nefnd á erfitt með að vega og meta,“ skrifar Þór­hildur Sunna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár