Ummæli Önnu Kolbrúnar um Freyju ekki brot á siðareglum

Siða­nefnd Alþingis ákvað að Anna Kolbrún Árna­dóttir, þing­maður Mið­flokks­ins fengi að „njóta vafans“ og komst að þeirri nið­ur­stöðu að ummæli hennar um Freyju Har­alds­dóttur væru ekki brot á siða­reglum.

Anna Kolbrún Árnadóttir, þingmaður Miðflokksins.
Anna Kolbrún Árna­dóttir, þing­maður Mið­flokks­ins. Mynd: Miðflokkurinn

Siða­nefnd Alþingis komst að þeirri nið­ur­stöðu að ummæli Önnu Kol­brúnar Árna­dóttur, þing­manns Mið­flokks­ins, um Freyju Har­alds­dóttur, fyrr­ver­andi vara­þing­mann Bjartar fram­tíðar og þekktri bar­áttu­kona fyrir auknum mann­rétt­indum fatl­aðra, hafi ekki brotið gegn siða­reglum Alþingis. Nið­ur­staða nefnd­ar­innar er að ummæli af þessum togi geti skaðað ímynd Alþingis en að erfitt væri að slá því föstu.

„Augljóslega eins fötlunartengt og það getur orðið

[links]Á upp­tökum af sam­tali þing­manna Mið­flokks­ins á barnum Klaustur þann 20.nóv­em­ber 2018 má heyra þá gera grín að Freyju, sem þjá­ist af sjald­­gæfum beina­­sjúk­­dómi. Anna Kol­brún, kall­aði hana „Freyju eyju“ og „Eyju“ og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, gerði grín af því að tveir hinna mann­anna við borðið hefðu sér­stakan áhuga á Freyju og nafn­greindri þing­konu Sam­fylk­ing­ar­inn­ar. Ein­hver úr hópnum hermdi í kjöl­farið eftir sel.

Í kjöl­farið gagn­rýndi Freyja ummæli þing­mann­anna harð­lega og sagði meðal ann­ars að um kerf­is­bundið hatur vald­hafa væri að ræða. „Að líkja mér við dýr og upp­nefna mig (og vegg) Freyju Eyju í kjöl­far aðgeng­is­breyt­inga er aug­ljós­lega eins fötl­un­ar­tengt og það getur orð­ið. Að taka mig fyrir með þessum hætti vegna þess að póli­tískar skoð­anir mín­ar, sem byggja á fem­inískum gild­um, hug­mynda­fræði mann­rétt­inda og upp­ræt­ingu ableisma, fara í taug­arnar á sumum körlum, ER fötl­un­ar­fyr­ir­litn­ing og kven­fyr­ir­litn­ing. Það er líka hlut­gerv­ing. Ég er ekki bara eins og dýr heldur líka dauður vegg­ur. Það er til þús­und og ein leið til þess að tjá skoð­ana­á­grein­ing önnur en að hæð­ast að lík­ama og útliti kvenna,“ skrif­aði Freyja í aðsendri grein í Kjarn­anum í des­em­ber síð­ast­liðnum.

Segja ummælin ekki gefa til kynna að hún ætlaði sér að tala niður til fatlaðs fólks

Í áliti siða­nefndar segir að und­an­farin ár hafi verið unnið að því að koma í veg fyrir hvers kyns mis­munun á grund­velli fötl­unar og tryggja fötl­uðu fólki rétt­ar­vernd gegn mis­munun á öllum sviðum og efla og vinna að virð­ingu fyrir eðl­is­lægri mann­legri reisn þeirra. 

„Alþing­is­menn bera sem áður segir sér­stakar skyldur. Þeir eru opin­berar per­sónur og geta haft mikil áhrif á sam­fé­lagið. Þeir verða að ganga á undan með góðu for­dæmi. Eins og fram kemur í afmörkun for­sætis­nefndar geta siða­reglur haft áhrif á það hvernig umfjöllun um póli­tíska sam­herja og and­stæð­inga er komið á fram­færi og þannig sett þing­mönnum skorður. Á það t.a.m. við um ummæli sem vísa t.d. til kyn­ferðis, útlits eða fötl­unar þess sem um er rætt,“ segir í álit­inu.

Enn fremur segir í álit­inu að þegar ummæli þing­mann­anna séu virt í heild þá virð­ist Anna Kolbrún að mestu leyti hafa staðið utan þeirra sam­ræðna sem fram fóru. Jafn­framt segir að ummæli hennar gefi ekki til kynna að hún hafi ætlað sér að tala niður til fatl­aðs fólks almennt. Hún grípi hins vegar inn í umræð­unar með upp­nefni á til­teknum stjórn­mála­manni.

Uppnefnið ekki réttlátt með sögulegum skýringum

Í bréfi til for­sætis­nefndar sem dag­sett er þann 3. maí 2019 hafnar Anna Kolbrún því alfarið að það sé brot á siða­reglum að taka sér í munn orðin „Freyja eyja“. Hún segir að upp­nefni séu oft við­höfð um stjórn­mál og í umræddu til­viki hafi upp­nefnið ekki falið í sér ill­mælgi eins og ætti að vera ljóst ef leit­ast væri við að kynna sér heild­ar­mynd­ina.

Siða­nefndin tekur undir með Önnu Kolbrúnu og segir að rétt sé að upp­nefni hafa oft verið við­höfð um stjórn­mála­menn, auk þess sem þau hafa löngum við­geng­ist í íslensku sam­fé­lagi. „Eru þau af ýmsum toga, við­ur­nefni kann að ríma við nafn eða vísa til til­tek­inna ein­kenna við­kom­andi, eins og þau dæmi sem fram koma í athuga­semdum fjög­urra þing­manna til siða­nefndar lýsa. Þau kunna að vera góð­lát­leg og í þeim kann að fel­ast ein­hver broddur án þess að litið verði á þau sem ill­mælgi“ segir í álit­inu.

Aftur á móti telur siða­nefnd að upp­nefnið um Freyju verði ekki rétt­látt með slíkum skýr­ingum. „Það virð­ist eiga sér aðrar rætur og vísa til lík­am­legs ástands Freyju Har­alds­dóttur vegna sjúk­dóms hennar,“ segir í álit­inu.

Siða­nefndin telur því að ummæli Önnur Kol­brúnar kunni að þessu leyti að falla undir þær skorður sem for­sætis­nefnd nefnir í afmörkun sinni, að siða­reglur setji alþing­is­mönnum í umfjöllun þeirra um póli­tíska sam­herja og and­stæð­inga. Nefndin telur því að ummæli af þessum toga geti skaðað ímynd Alþingis en að erfitt sé að slá því föstu.

Nefndin ákveður því að láta Önnu Kolbrúnu njóta vafans og nið­ur­staða nefnd­ar­innar er að ummæli hennar fari ekki gegn siða­reglum Alþingis. „Í ljósi afmörk­unar for­sætis­nefndar og hversu tak­mark­aðar upp­lýs­ingar liggja til grund­vallar þessum ummælum telur siða­nefnd rétt að Anna Kolbrún Árna­dóttir njóti vafans að þessu leyti. Í ljósi fram­an­greinds er það nið­ur­staða siða­nefndar að ummæli Önnu Kol­brúnar Árna­dóttur frá 20. nóv­em­ber 2018 fari ekki gegn c- og d-lið 1. mgr. 5. gr. og 7. og 8. gr. siða­reglna alþing­is­manna, eins og þau eru afmörkuð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár