Freyja Haraldsdóttir: Um kerfisbundið hatur valdhafa að ræða

„Ef Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, má tala svona, þá hljóta allir að mega það,“ segir Freyja Har­alds­dóttir í stöðu­upp­færslu um það sem hún kallar sér­stak­lega hættu­lega hat­urs­orð­ræðu vald­hafa.

Freyja Har­alds­dóttir, fyrr­ver­andi vara­þing­maður Bjartrar fram­tíðar og þekkt bar­áttu­kona fyrir auknum mann­rétt­indum fatl­aðra, segir í stöðu­upp­færslu á Facebook að niðr­andi og meið­andi ummæli þing­manna á drykkju­fundi í síð­ustu viku, um hana og fjöl­marga aðra naf­greinda ein­stak­linga, séu kerf­is­bundið hatur. „Það bein­ist harð­ast að konum. Hinsegin fólki. Fötluðu fólki. Karl­mönnum sem ein­hvern­veg­inn passa ekki inn í ríkj­andi hug­myndir um (skað­lega) karl­mennsku. Það er hvorki til­viljun né eins­dæmi að akkúrat þessir hópar séu við­fang orð­a­níðs fólks með mikil for­rétt­indi. Það er alltum­lykj­andi - alltaf.“

[links]Á upp­tökum af drykkju­fundi þing­mann­anna, sem til­heyra Mið­flokknum og Flokki fólks­ins, heyr­ast þeir gera grín að Freyju, sem þjá­ist af sjald­gæfum beina­sjúk­dómi. Anna Kol­brún Árna­dóttir, þing­maður Mið­flokks­ins, kall­aði hana „Freyju eyju“ og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, gerði grín af því að tveir hinna mann­anna við borðið hefðu sér­stakan áhuga á Freyju og nafn­greindri þing­konu Sam­fylk­ing­ar­innar. Einhver úr hópnum hermdi í kjöl­farið eftir sel.

Freyja segir í stöðu­upp­færslu sinni að fyrstu við­brögð hennar við hat­urs­orð­ræðu þing­mann­anna hafi verið að verja hvorki krafti né orðum í hana og halda áfram með vinnu­dag­inn sinn. „En ég hélt auð­vitað ekk­ert áfram með dag­inn minn að neinu ráði - þetta hefur tekið sinn toll líkt og allt ofbeldi gerir.

[adspot]Eftir að hafa hugsað mikið um þetta, rætt við kær­leiks­ríkt sam­starfs­fólk, tekið við slatta af ást í gegnum sam­fé­lags­miðla, grátið tölu­vert, verið kaf­færð í faðm­lögum frá vinum og fjöl­skyldu og fylgst með umræð­unni eins og hjartað mitt og tauga­kerfi þolir er eitt og annað sem ég ætla að segja.“

Freyja segir að aðför að fötl­uðum lík­ama sínum sem dýrs­legum sé ekki bara það að „að gera grín að fötl­uðum". Það sé birt­ing­ar­mynd kven­fyr­ir­litn­ingar og fötl­un­ar­fyr­ir­litn­ingar.“ Um er að ræða fyr­ir­litn­ingu sem á sér djúpar sögu­legar rætur og end­ur­speglar æva­gömul við­horf til fatl­aðs fólks sem dýra - óæðri mann­eskjum. Það í sam­hengi við niðr­andi umræðu um útlit og kyn­þokka kvenna er kven­fjand­sam­legt. Ég er ekki bara fötluð. Ég er kona. Ég get ekki tekið mig í sundur og verið stundum fötluð og stundum kona. Ég er alltaf (stolt) fötluð kona.

Þó hat­rið bein­ist að per­sónum (sem er grafal­var­legt) er alvara máls­ins sú að um kerf­is­bundið hatur er að ræða. Það bein­ist harð­ast að konum. Hinsegin fólki. Fötluðu fólki. Karl­mönnum sem ein­hvern­veg­inn passa ekki inn í ríkj­andi hug­myndir um (skað­lega) karl­mennsku. Það er hvorki til­viljun né eins­dæmi að akkúrat þessir hópar séu við­fang orð­a­níðs fólks með mikil for­rétt­indi. Það er alltum­lykj­andi - alltaf.“

Freyja bendir á að ger­endur í þessu til­viki séu vald­hafar. Það sé sér­stak­lega hættu­legt þegar fólk í valda­stöðum við­hefur hat­urs­orð­ræðu. „Í fyrsta lagi vegna þess að það setur for­dæmi og hefur vald til þess að normalisera orð­ræðu og ofbeld­is­menn­ingu. Ef Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, má tala svona, þá hljóta allir að mega það. Í öðru lagi vegna þess að hat­urs­orð­ræða afhjúpar við­horf vald­hafa sem við höfum kosið og treyst til þess að reka sam­fé­lagið okkar og taka mik­il­vægar ákvarð­anir um hagi okkar. Ef þing­menn sjá fatlað fólk sem dýr en ekki mann­eskjur er ekki furða að það taki ákvarð­anir um líf fatl­aðs fólks byggt á ein­hverju allt öðru en mann­rétt­inda­skuld­bind­ingum. Í þriðja lagi vegna þess að rann­sóknir og reynslan sýnir okkur að hat­urs­orð­ræða vald­hafa hefur bein áhrif á tíðni hat­urs­glæpa.“

[adspot]Í enda stöðu­upp­færsl­unnar víkur Freyja að afsök­un­ar­beiðnum þeirra sem tóku þátt í athæf­inu á Klaust­ur­barnum í síð­ustu viku. Hún segir að það telj­ist almenn kurt­eisi og mann­virð­ing að biðj­ast afsök­unar þegar fólki verður á. “Það er hins­vegar mjög rotin afsök­un­ar­beiðni og ekki afsök­un­ar­beiðni í raun að afsaka sig með áfeng­is­neyslu og því að eiga vini sem til­heyra minni­hluta­hópum (sbr. Gunnar Bragi í Kast­ljósi). Það er líka eitt að verða á og annað að láta hatur gagn­vart konum og jað­ar­settum hópum vella út úr sér í marga klukku­tíma á opin­berum vett­vangi. Þegar fólk ger­ist upp­víst um slíkt er ekki for­svar­an­legt að henda í eina yfir­lýs­ingu og lofa að drekka færri bjóra næst og halda að þar með verði allt aftur fal­legt og gott. Eina leiðin til þess að biðj­ast afsök­unar af trú­verð­ug­leika og auð­mýkt er að gang­ast við gjörðum sínum og taka ábyrgð með því að segja af sér.

Í allan dag hef ég ekki getað hætt að hugsa um öll fötl­uðu börnin og ung­mennin, einkum stúlkur í óhefð­bundnum lík­ömum, sem hafa heyrt af þessu eða glefsur um þetta. Þetta hefur vissu­lega verið sárt fyrir mig og annað full­orðið fatlað fólk en sár­ast er þetta fyrir þau. Hvernig í ver­öld­inni eiga þau að þróa með sér jákvæða lík­ams- og kyní­mynd, upp­lifa sig eiga fram­tíð og búa við öryggi í sam­fé­lagi þar sem fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra líkir fyrr­ver­andi fatl­aðri sam­starfs­konu sinni við dýr - ofan á allt annað mis­rétti sem þau verða fyrir vegna fólks í valda­stöðum sem sér þau ekki sem mennsk.

Fyrir þau bregst ég við þessu hatri í dag. Við þau vil ég segja: Allir lík­amar eiga rétt á sér. Allir lík­amar eru verð­mætir og verð­ugir. Allir lík­amar mega og eiga að taka sér pláss. Allir lík­amar eiga rétt á að búa við frið­helgi frá hverskyns ofbeldi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár