„Forsætisnefnd gjörspillt af samtryggingu karlaklíkunnar“

Þing­flokks­for­maður Pírata kallar þá for­sætis­nefnd gjör­spillta af sam­trygg­ingu karlaklíkunnar sem neitar að taka afstöðu til nokk­urs nema hennar fram­komu.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingflokksformaður Pírata.
Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata. Mynd: Hringbraut

„Ég segi nei takk við þessu áliti, það er ekk­ert inn­tak í því og stenst ekki skoðun þegar kemur að siða­regl­unum sjálfum.“ Þetta segir Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata, í við­tali á Sprengisandi á Bylgj­unni í morgun.

Ástæða ummæl­anna er sú að for­sætis­nefnd féllst á nið­­ur­­­­stöður siða­­nefnd­ar þings­ins í síð­ustu viku þess efn­is að Þór­hild­ur Sunna hefði brotið gegn siða­regl­ur alþing­is­­­manna með um­­­mæl­um sín­um um Ásmund Frið­­riks­­­son, þing­­­mann Sjálf­­­stæð­is­­­flokks­ins.

Henni finnst Alþingi hafa sett sig gríð­ar­lega niður í þessu máli og í stað­inn fyrir að rann­saka fylli­lega akst­urs­greiðslur til Ásmundar þá fest­ist þau í orð­heng­ils­hætti í ummælum hennar um að til­efni sé til að rann­saka hvort hann hafi framið refsi­vert brot.

[links]„Ég skil ekki hvernig for­sætis­nefnd, sem vísar frá stað­festu til­viki um kyn­ferð­is­lega áreitni þing­manns gagn­vart blaða­manni, sem vísar frá kvörtun vegna óhóf­legrar akst­urs­greiðslna Ásmundar Frið­riks­sonar, sem vísar frá kvörtun vegna ítrek­aðra ummæla Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar um að það sé alvana­legt að karl­kyns þing­menn tali jafn ógeðs­lega um sam­þing­konur sínar – konur, fatl­aða og sam­kyn­hneigða – sem þeir félagar á Klaust­ur­bar gerðu, kemst að þess­ari nið­ur­stöðu,“ segir Þór­hildur Sunna.

Afþakkar gildisdómana

Þór­hildur Sunna segir að þetta sé sama for­sætis­nefnd sem hafi klúðrað allri með­ferð í Klaust­ur­mál­inu en kjósi að hengja sig í orð­heng­ils­hátt og gild­is­dóma um hvernig hún tjáir sig en ekki um hvað hún segir eða hvort það sé satt eða logið. Nefndin líti fram hjá öllum rökum um tján­ing­ar­frelsi þing­manna og skyldu hennar til að tjá sig um mál­efni líð­andi stundar og til þess að vinna gegn spill­ingu.

„Ég kalla þá for­sætis­nefnd gjör­spillta af sam­trygg­ingu karlaklíkunnar sem neitar að taka afstöðu til nokk­urs nema minnar fram­komu – ein­hverrar konu í stjórn­ar­and­stöðu sem móðg­aði mið­aldra karl,“ segir Þór­hildur Sunna.

Hún seg­ist afþakka þessa gild­is­dóma á fram­setn­ingu hennar og bendir hún á að engin rök hafi verið sett fram í áliti for­sætis­nefndar hvernig hún hefði átt að gera þetta betur. „Þeir neita að skoða hvort eitt­hvað hafi verið til í því sem ég var að segja.“ Þeir hefðu ein­ungis þurft að skoða sam­hengi umræð­unnar á þessum tíma og þau gögn sem fyrir lágu og þá getað gefið sér að það væri full­kom­lega rétt­mætt að segja á þessum tíma­punkti að það hefði verið rök­studdur grunur til þess að hefja rann­sókn hvort Ásmundur Frið­riks­son hefði svikið út fé.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

siðanefnd alþingis

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár