Þórhildur Sunna sættir sig ekki við niðurstöðu siðanefndar

Þing­flokks­for­maður Pírata segir að fái nið­ur­staða siða­nefndar að standa séu skila­boðin til okkar allra þau að það sé verra að benda á vanda­málin en að vera sá sem skapar þau.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingflokksformaður Pírata.
Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

„Siða­nefnd Alþingis telur alvar­legra að benda á sam­trygg­ingu og sjálftöku heldur en að taka þátt í leiknum. Ég sætti mig ekki við það og mun nýta minn and­mæla­rétt til þess að fá þessu hnekkt,“ segir Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata, í stöðu­upp­færslu á Facebook-síðu sinni rétt í þessu.

Eins og fram kom í fréttum í morgun þá telur siða­nefnd Alþingis að ummæli Þór­hildar Sunnu, sem hún lét falla þann 25. febr­úar 2018 um akst­urs­greiðslur þings­ins til Ásmundar Frið­riks­sonar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hafi ekki verið í sam­ræmi við siða­reglur fyrir alþing­is­menn.

Þór­hildur Sunna segir að fái þessi nið­ur­staða að standa séu skila­boðin til okkar allra þau að það sé verra að benda á vanda­málin en að vera sá sem skapar þau. „Ég er alger­lega búin að fá nóg af slíkri með­virkni,“ segir hún.

[links]Ásmundur óskaði eftir því við for­sætis­nefnd þann 10. jan­úar síð­ast­lið­inn að tekið væri til skoð­unar hvort þing­menn Pírata Björn Leví Gunn­ars­son og Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir hefðu með ummælum sínum á opin­berum vett­vangi um end­ur­greiðslur þings­ins á akst­urs­kostn­aði Ásmundar brotið í bága við siða­regl­urn­ar.

Nið­ur­staða siða­nefndar er sem fyrr segir að ummæli Þór­hildar Sunnu frá 25. febr­úar 2018 séu ekki í sam­ræmi við a- og c-lið 1. mrg. 5. gr. og 7 gr. siða­reglna fyrir alþing­is­menn. Í þeim segir að alþing­is­menn skuli sem þjóð­kjörnir full­trúar rækja störf sín af ábyrgð, heil­indum og heið­ar­leika, ekki kasta rýrð á Alþingi eða skaða ímynd þess með fram­komu sinni. Þing­menn skuli í öllu hátt­erni sínu sýna Alþingi, stöðu þess og störfum virð­ingu.

Siða­nefnd kemst aftur á móti að þeirri nið­ur­stöðu að ummæli Björns Levís hafi ekki brotið í bága við siða­regl­urn­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

siðanefnd alþingis

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár