Ekki um spillingu eða brot á reglum Evrópuráðsþingsins að ræða

Í svari for­seta Evr­ópu­ráðs­þings­ins til Ásmundar Frið­riks­sonar við erindi hans um brot þing­manns Pírata á siða­reglum Alþingis kemur fram að sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem for­seta hafa borist sé ekki um að ræða spill­ingu eða brot á reglum þings­ins.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, Lili­ane Maury Pasqui­er og Ásmundur Friðriksson.
Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, Lili­ane Maury Pasqui­er og Ásmundur Frið­riks­son. Mynd: Samsett mynd

Forseti Evr­ópu­ráðs­þings­ins, Lili­ane Maury Pasqui­er, hefur svarað erindi þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Ásmundar Frið­riks­sonar, en hann vakti nýlega athygli á því við for­seta þings­ins að Þór­hildur Sunna Ævar­s­dótt­ir, þing­­maður Pírata, hefði gerst brot­­leg við siða­­reglur alþing­is­­manna, fyrst þing­­manna hér á land­i.

Þór­hildur Sunna birtir svar­bréfið á Facebook-síðu sinni í dag og segir hún meðal ann­ars í stöðu­upp­færslu að hún hafi verið ófeimin við að upp­lýsa kollega sína í Evr­ópu­ráðs­þing­inu um siða­reglu­úr­skurð­inn allt frá því að hann féll. „Enda um brot á mínu tján­ing­ar­frelsi að ræða,“ skrifar hún.

Í bréfi Pasqui­er segir að eftir að hafa farið yfir þær upp­lýs­ingar sem liggja fyrir um álit siða­nefndar Alþingis þá sé „alls ekk­ert sem bendi til þess að um spill­ingu sé að ræða eða brot á sér­stökum reglum Evr­ópu­ráðs­þings­ins“ af hendi Þór­hildar Sunnu sem ætti að heim­ila frek­ari athug­anir þings­ins eða for­seta.

Ásmundur sagðist ekki fara fram á að þingið gripi til aðgerða

[links]Þór­hildur Sunna segir í færslu sinni á Facebook að alveg eins og við hafi verið búast að þá sé einmitt ekki bannað að benda á spill­ingu í Evr­ópu­ráðs­þing­inu. „Loks get ég líka sýnt fram á þau ósann­indi sem Ásmundur hélt fram á Bylgj­unni í gær um að hann hafi ekki farið fram á við­ur­lög gegn mér. Það er lygi. Hann vildi bæði að ég yrði svipt rétt­indum og að ég yrði jafn­vel rekin úr Íslands­deild Evr­ópu­ráðs­þings­ins. Eins og með­fylgj­andi bréf sýna,“ skrifar hún.

Ásmundur sagði í útvarps­þætt­inum Reykja­vík síð­degis á Bylgj­unni í vik­unni að hann hefði kallað eftir því að Þór­hildur Sunna myndi sjálf upp­lýsa Evr­ópu­ráðs­þingið um að hún hefði verið fundin sek um brot á siða­reglum Alþingis. Það hefði hún ekki gert og því hefði hann sent bréfið til for­seta Evr­ópu­ráðs­þings­ins.

Lagði til tímabundinnar sviptingar réttinda

Hann sagði jafn­framt að hann myndi ekki fara fram á að þingið grípi til ein­hvers konar aðgerða gegn Þórhildi Sunnu. Í erindi Ásmundar til Pasqui­er segir aftur á móti að það sé hans skoðun að taka ætti til skoð­unar hvort brot Þór­hildar Sunnu á siða­reglum Alþingis ættu að sæta við­ur­lögum, til að mynda tíma­bund­innar svipt­ingar rétt­inda á vett­vangi Evr­ópu­ráðs­þings­ins.

Þór­hildur Sunna segir að hans auma afsökun „fyrir þessu til­gangs­lausa klögu­bréfi sínu“ sé því ekki sönn.

„Þó Ásmundur hafi ekki hug­mynd um hvað ég er að gera í Evr­ópu­ráðs­þing­inu þýðir það ekki að hann megi bara fabúlera eitt­hvað út í loftið til þess að reyna að rétt­læta þann aug­ljósa hefnd­ar­hug sem liggur að baki þessu bréfi sem hann skrif­aði,“ skrifar hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

siðanefnd alþingis

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár