Standa og falla með trúverðugleikanum

Til stendur að end­ur­skoða siða­reglur fyrir alþing­is­menn og mun vinna við það hefj­ast í haust. Formaður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar telur þó að ekki sé hægt að byggja upp traust með því einu að breyta regl­unum.

Helga Vala Helgadóttir
Helga Vala Helga­dóttir Mynd: Bára Huld Beck

Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, telur að hægt sé að end­ur­skoða siða­reglur fyrir alþing­is­menn, þrátt fyrir að margt hafi „mis­tek­ist hrapal­lega“ í ferl­inu hingað til. Þetta sagði hún í sam­tali við Kjarnann á dög­unum.

Nýlegar nið­ur­stöður siða­nefndar Alþingis, sem for­sætis­nefnd stað­festi síðan, hafa vakið mikið við­brögð hjá almenn­ingi og öðrum þing­mönnum. Margir hafa bent á að end­ur­skoða þurfi ferlið í kringum siða­reglur og siða­nefnd til þess að end­ur­vekja traust á þessum fyr­ir­bærum.

Helga Vala telur þó að ekki sé hægt að byggja upp traust með því einu að breyta siða­reglum. „Hvert og eitt okkar stöndum og föllum með trú­verð­ug­leik­anum,“ segir hún.

[adspot]

Nýlega kom fram í fréttum að Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, und­ir­búi nú end­ur­skoðun siða­regln­anna í sam­vinnu við Helgu Völu.

[links]Í sam­tali við Vísi þann 3. ágúst síð­ast­lið­inn sagði hann að þau væru búin að kasta á milli sín hug­myndum og hefðu verið að sanka að sér gögnum. „Nú er komin ákveðin reynsla á fram­kvæmd­ina og búið að reyna á ýmis­legt og það er nú aðal­lega sú umgjörð sem við erum að skoða og fram­kvæmd regln­anna,“ sagði hann. Stein­grímur sagð­ist ekki eiga von á því að sjálfar hátt­ern­is­regl­urnar yrðu teknar upp heldur aðal­lega fram­kvæmd þeirra og far­vegur kvart­ana.

Ljóst að verklagið gengur ekki upp

Helga Vala stað­festir í sam­tali við Kjarnann að til stendur að end­ur­skoða ferlið og segir hún að Stein­grímur hafi haft sam­band við sig síð­asta vetur til þess að fara yfir málin. Hún segir að henni hafi strax orðið ljóst að verk­lagið í kringum siða­regl­urnar gangi ekki upp.

Hún segir að Íslend­ingar þurfi í raun ekki að finna upp hjólið. „Siða­reglur okkar eru byggðar á reglum Evr­ópu­þings sem þó eru nokkuð frá­brugðnar og má skoða hvort leita megi meira þangað. Þá hef ég áður nefnt að ÖSE hefur gefið út ítar­legar leið­bein­ingar um gerð og fram­kvæmd siða­reglna fyrir þjóð­þing aðild­ar­ríkj­anna og tel ég ein­boðið að fara vel yfir þær,“ segir hún.

Flókið að setja viðurlög við broti

„Við þurfum að kanna aðkomu ann­arra stjórn­mála­manna og for­sætis­nefndar,“ segir hún en bætir því þó við að þessar sam­ræður um regl­urnar séu enn algjör­lega óform­legar. „Þetta fer ekki á form­legan stað fyrr en for­sætis­nefnd fær drög að til­lögum um breyt­ingar og þegar drög að þings­á­lykt­un­ar­til­lögu fer til stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar.“

Helga Vala bendir á að það að setja við­ur­lög við broti á siða­reglum sé flókið út af póli­tískri stöðu. „Það væri hægt að senda fólk í leyfi eða látið það ekki gegna trún­að­ar­störfum innan þings­ins. Það væri hug­mynd til að velta fyrir sér,“ segir hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

siðanefnd alþingis

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár