Siðanefndir óþarfar í fullkomnum heimi

Pró­fessor í heim­speki segir að heppi­leg­ast sé að hafa siða­nefnd Alþingis án tengsla við stjórn­málin, þá komi síður upp van­hæfn­is­spurn­ingar. Kjarninn spjall­aði við Sigurð Krist­ins­son um siða­reglur og siða­nefndir.

„Í full­komnum heimi þarf ekki siða­nefndir heldur bara almenn við­mið til að umræðan þok­ist í ein­hverja góða átt. Í ófull­komnum heimi þarf stundum siða­nefnd.“ Þetta segir Sigurður Krist­ins­son, pró­fessor í heim­speki við félags­vís­inda­deild Háskól­ans á Akureyri, en hann hefur skrifað bók og greinar um siða­reglur til fjölda ára.

Til stendur að end­ur­skoða siða­reglur fyrir alþing­is­menn eftir að upp kom mis­klíð eftir að fyrstu nið­ur­stöður siða­nefndar birt­ust, sem for­sætis­nefnd stað­festi síðan.

Sigurður telur að sem flestir þing­menn þurfi að taka þátt í að skapa ferlið. „Heppi­leg­ast væri að hafa siða­nefnd­ina án tengsla við stjórn­málin, þá koma síður upp van­hæfn­is­spurn­ingar,“ segir hann. Þá sé mik­il­vægt að for­sætis­nefnd mati ekki siða­nefnd, að hún hafi frjáls­ara umboð – það er taki við kvört­unum og setji sér sjálf starfs­reglur sem þingið stað­festi. „Vonandi skilar hún sér þessi vinna sem fram framundan er,“ segir hann.

Siðareglur eiga að bæta menningu innan hóps

Sigurður segir enn fremur að til­gang­ur­inn með siða­reglum sé marg­vís­legur. Að hans mati er þó mik­il­væg­asti til­gangur skráðra siða­reglna sá að bæta menn­ingu innan hóps­ins sem setur sér regl­unar. Það þýði að þessi hópur hagi sam­skiptum sínum og vinnu­brögðum á betri hátt með til­liti til til­gangs hóps­ins.

Þá sé hægt að spyrja sig hvort „dýnamíkin“ innan hóps hjálpi honum að sinna hlut­verki sínu vel og ef svo er ekki þá þurfi að bæta menn­ing­una innan hans. Að setja siða­reglur væri þá að aðferð til að gera hann betur færan til að sinna sínu hlut­verki og gætu þær jafn­framt miðlað upp­safn­aðri þekk­ingu. Þá sé hægt að læra af mis­tökum, til að mynda er varða sam­skipti og freistni­vanda.

Umræðan ætti að verða málefnalegri

[links]„Með því að setja siða­reglur er gerður nokk­urs konar sátt­máli innan hóps­ins,“ segir Sigurður. Þá lofi fólk – þegar það gengst við siða­regl­unum – að standa við þær gegn því að aðrir geri það líka og að taka þær fram yfir sína eigin hags­muni. Hann bendir á að siða­reglur miðli einnig mik­il­vægum skila­boðum út á við, það er þegar lof­orð er gefið til skjól­stæð­inga, eða í til­viki stjórn­mála­manna til kjós­enda sem síðan dæma gjörðir þeirra á end­anum.

„Þegar slíkur sátt­máli er kom­inn þá verður umræðan mál­efna­legri,“ segir hann og bætir því við að í þeim til­fellum verði siða­reglur hjálp­ar­tæki þegar á þarf að halda.

Sigurður segir að til­gangur siða­reglna sé að bæta þessa menn­ingu og að þær séu þetta hjálp­ar­tæki, meðal ann­ars til að sam­ræma vænt­ingar – frekar en ytra eft­ir­lit. „Lyk­il­at­riðið er að þær eru liður í sjálf­ræði hóps­ins, sam­eig­in­legar reglur. Þær virka ekki sem ytra vald­boð.“ Mik­il­vægt er, að hans mati, að vandað sé til verka þegar siða­reglur eru gerðar. „Ferlið skiptir oft meira máli en útkoman sjálf,“ segir hann. Á end­anum sé engin for­skrift að siða­reglum.

Fara verður varlega í að beita viðurlögum

Þegar talið berst að siða­reglum þing­manna þá segir Sigurður að fara verði var­lega í það að beita við­ur­lögum. „Ef við lítum á siða­reglur sem innri og ytri sátt­mála þá koma ytri við­ur­lögin frá kjós­endum.“ Þeir ákveði með atkvæði sínu hvort þing­menn hafi staðið við sátt­mál­ann. Hvað varðar innri sátt­mála þá væri hægt að líta svo á að ef þing­menn brjóta siða­reglur þá njóti þeir ekki trausts innan þings­ins. Viðurlög gætu í því til­felli verið tíma­bundin, þeir gætu til að mynda ekki verið for­menn í nefndum eða sinnt ákveðnum trún­að­ar­störfum. Þessi leið er þó vand­með­farin að mati Sigurðar.

Hann segir enn fremur að siða­reglur geti verið til trafala í erf­iðum og flóknum málum á borð við Klaust­ur­málið. „Það er alltaf sú hætta fyrir hendi að þegar búið er að setja upp siða­nefnd sem úrskurðar um brot þá fari málið að snú­ast um máls­með­ferð – eins og fyrir dóm­stólum.“ Kost­ur­inn við að hafa siða­reglur en ekki siða­nefnd er sá að þá sé skýr­ara að hlut­verk regln­anna sé að styðja við mál­efna­lega umræðu og ígrundun.

Á hinn bóg­inn séu ákveðin rök fyrir því að setja á fót sér­staka siða­nefnd, til dæmis hjá fag­fé­lögum. Það geti verið liður í að vernda skjól­stæð­inga og þá gef­ist fólki jafn­framt kostur á að verja sig gegn til­hæfu­lausum ásök­unum. Vandaðir úrskurðir geta búið til gagn­leg við­mið.

Áhersla verði lögð á að reglurnar verði fáar og almennar

En hvað þyrfti Alþingi að gera til að öðl­ast traust almenn­ings og þing­heims? Sigurður telur það skyn­sam­legt að end­ur­skoða siða­regl­urnar og ferlið í heild sinni á ný, eins og til stendur að gera í vetur. „Mér finnst það vera aðal­at­riðið að allir þing­menn­irnir hafi sam­ráð og að úr verði raun­veru­legur sátt­máli milli þeirra.“

Þá vonar hann að sú end­ur­skoðun verði ekki gerð að póli­tísku bit­beini og að áhersla verði lögð á að regl­urnar séu fáar og almennar. Með umræðum um siða­reglur þok­ist málin í átt að nið­ur­stöðu sem almenn sátt geti verið um.

Hægt er að lesa frétta­skýr­ingu Kjarnans um siða­reglur hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

siðanefnd alþingis

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár