Misjafnt hvort viðurlög séu nauðsynleg eða möguleg

Fyrr­ver­andi for­maður Gagnsæis telur að betra sé að almennar siða­reglur séu ekki hugs­aðar þannig að þeim fylgi ein­hver sér­stök við­ur­lög.

Jón Ólafsson
Jón Ólafsson Mynd: Háskóli Íslands

Jón Ólafsson, pró­fessor við Háskóla Íslands og fyrr­ver­andi for­maður Gagnsæis, telur það vera mjög mis­jafnt hvort við­ur­lög séu nauð­syn­leg eða mögu­leg þegar siða­reglur eru brotnar. Þetta segir hann í sam­tali við Kjarnann.

Mikil umræða hefur skap­ast í sam­fé­lag­inu og hjá þing­mönnum um siða­reglur og siða­nefndir eftir úrskurði siða­nefndar Alþingis í sumar en til stendur að end­ur­skoða ferlið í heild sinni í haust.

Skoðun Jón er sú að betra sé að almennar siða­reglur séu ekki hugs­aðar þannig að þeim fylgi ein­hver sér­stök við­ur­lög. Sé nauð­syn­legt að setja reglur sem hafa við­ur­lög þá sé betra að hafa þær mjög skýrar og aðskildar frá almennum siða­reglum.

Stjórnsýslan hefur ekki siðanefnd

Jón segir að til­gangur siða­nefnda sé oft sá að hafa nefnd sem er fengið það hlut­verk að úrskurða um hvort siða­reglur hafi í ein­stökum til­fellum verið brotnar.

„Því fer hins vegar fjarri að siða­nefndir séu alltaf skip­aðar þegar settar eru siða­reglur. Stjórn­sýslan hefur til dæmis ekki neina siða­nefnd. Umboðs­maður Alþingis lítur meðal ann­ars til siða­reglna þegar hann fjallar um mál í stjórn­sýsl­unni en hvorki hann né nokkur annar aðili fellir beina úrskurði um hvort siða­reglur hafi verið brotnar í ein­stökum til­fellum.“

Siðareglur eiga að vera leiðbeinandi

[links]Jón telur að siða­reglur hafi tví­þættan til­gang. „Í fyrsta lagi eiga þær að vera leið­bein­andi fyrir fólk um rétt við­brögð við aðstæðum og álita­málum sem koma upp og í öðru lagi eiga þær að bæta og skýra mæli­kvarða um rétta og eðli­lega hegðun og fram­komu á vinnu­stað, innan fags­viðs eða hóps o.s.frv.,“ segir hann.

Þess vegna sé mik­il­vægt að sem flestir komi að bæði upp­haf­legri gerð siða­reglna og end­ur­skoðun þeirra sem þurfi að ger­ast reglu­lega. Þriðji til­gang­ur­inn, að hafa skýrar reglur sem hægt er að úrskurða eftir er að hans mati oft­ast síður mik­il­vægur.

Siðareglur vandasamar í viðkvæmum málum

Jón telur að siða­reglur geti verið mjög vanda­samar í við­kvæmum málum, eins og Klaust­ur­mál­inu, ef hugs­unin á bak við þær sé sú að aðal­málið sé að fá ein­hvers­konar óháðan úrskurð um brot þegar kært er eða bent á þær kunni að hafa verið brotnar.

„Í Klaust­ur­mál­inu hög­uðu nokkrir þing­menn sér þannig að það var til hábor­innar skammar og hneyksl­aði almenn­ing. Enginn ágrein­ingur var um að slík hegðun væri sið­ferði­lega ámæl­is­verð. Þegar siða­nefnd úrskurðar svo mörgum mán­uðum síðar að sumir í hópnum telj­ist alls ekki hafa brotið siða­reglur þings­ins lítur það óhjá­kvæmi­lega þannig úr í augum margra að þar með hafi það sem þeir gerðu – eða létu ógert – ekki verið sið­ferði­lega ámæl­is­vert. Hér má efast um gildi úrskurð­ar­ins og almennt um notkun á siða­reglum sem felur í sér þrönga, jafn­vel laga­tækni­lega túlkun þeirra,“ segir hann.

Smuguhugsunarháttur fullkomlega andstæður hugsuninni á bak við siðareglur

Jón álítur að þessi tvö umdeildu mál – þeirra Þór­hildar Sunnu Ævars­dóttur, þing­manns Pírata, og þing­mann­anna á Klaustur bar – ættu að vekja fólk til umhugs­unar um hvort úrskurð­ar­nefndir séu besta leiðin til að beita siða­reglum. „Ég sé frekar fyrir mér að slík siða­nefnd hafi leið­bein­ingar- og ráð­gjaf­ar­hlut­verk. Siða­regl­urnar sjálfar ættu að vera reglu­legt umræðu­efni Alþingis frekar en að spurn­ingin sé alltaf sú að koma eigi í veg fyrir að fólk brjóti þær.“

Hann segir að í heimi þröngrar siða­reglutúlk­unar sé alltaf hægt að koma and­styggi­legri hegðun og fram­komu við aðra fyrir þannig að form­lega séu engar siða­reglur brotnar. En slíkur smugu­hugs­un­ar­háttur – þar sem leitað er að smugum fram­hjá reglum – sé full­kom­lega and­stæður hugs­un­inni á bak við siða­reglur. Hugsunin sé fyrst og fremst sú að gera fólk með­vit­aðra um sið­ferði­legar hliðar hegð­unar, fram­komu og breytni og auka áhug­ann á sam­eig­in­legum sið­ferði­legum mæli­kvörðum.

Hægt er að lesa ítar­lega frétta­skýr­ingu Kjarnans um siða­reglur hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

siðanefnd alþingis

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár